Skipulagsmál

Fréttamynd

Mikil tíma­mót fyrir Víkinga, byrja á bíla­stæðum

Framkvæmdastjóri knattspyrnufélagsins Víkings fagnar samningi við borgarráð um að félagið fái alls um tíu þúsund fermetra lóð sem Gróðrastöðin Mörk hefur haft afnot af í Fossvogsdal. Þá feli samningurinn í sér að borgin muni sjá um sjá um framtíðaruppbyggingu íþróttamannvirkja í Safamýri og við Traðarland. Fyrsta verkefnið verði bílastæði í Fossfogsdal.

Innlent
Fréttamynd

Fjölga stæðum fyrir deili­bíla og raf­hlaupa­hjól í Reykja­vík

Samþykkt var í umhverfis- og skipulagsráði í vikunni að fjölga stæðum fyrir deilibíla og rafhlaupahjól frá stöðvalausum rafhlaupahjólaleigum. Í dag eru níu safnstæði en lagt er til að þeim verði fjölgað í tuttugu til þrjátíu og þau verði annars vegar fyrir rafhlaupahjól og hins vegar fyrir deilibíla.

Innlent
Fréttamynd

„Ég elska þennan flug­völl“

Flugvöllurinn, flugið og flokkarnir er yfirskrift fundar sem hófst nú síðdegis á Hótel Loftleiðum á vegum Flugmálafélags Íslands. Þar voru fulltrúar allra framboða spurðir um afstöðuna sína til flugvallarins.

Innlent
Fréttamynd

„Við segjum stundum: Víkingur fékk okkur í af­mælis­gjöf“

Borgarráð samþykkti í dag að afhenda íþróttafélaginu Víkingi tíu þúsund fermetra lóð í Fossvogsdalnum sem Gróðrastöðin Mörk leigði af borginni. Eigandi gróðrastöðvarinnar segir sorglegt að gróður og ræktun víki fyrir steypu en er fegin að það verði að minnsta kosti hægt verði að reka hluta stöðvarinnar á svæðinu til ársins 2050.

Innlent
Fréttamynd

Lyftum arkitektúrnum upp

Það er eitthvað að hreyfast í umræðunni um arkitektúr og skipulag. Fleiri hafa skoðun, segja hana upphátt og vilja skilja. Spurningin er hvort við höfum náð einhvers konar botni og séum loksins komin á þann stað að geta lyft umræðunni upp á hærra plan. Er þetta óskhyggja í mér?

Skoðun
Fréttamynd

Hugsum lengra en næstu kosningar

Stjórnmálin vinna á fjögurra ára kjörtímabilum, en borgir, samgöngur og börnin okkar vinna á fjörutíu árum. Það er kominn tími til að brúa þessa gjá.

Skoðun
Fréttamynd

Vilja ræða um varnar­garða en byggja meira á hraunum

Bæjaryfirvöld í Hafnarfirði kalla eftir samtali við ríkið um mótvægisaðgerðir, eins og að undirbúa gerð varnargarða, vegna nýrrar skýrslu Veðurstofu um hættu á hraunrennsli yfir hluta byggðarinnar. Bæjarstjórinn telur ekki ástæðu til að falla frá áætlunum um ný hverfi á hraunasvæðum.

Innlent
Fréttamynd

Getum við raun­veru­lega skipu­lagt borgina?

Nýlega sótti ég fund með yfirskriftinni „Borgargæði“, þar sem arkitektar og stjórnmálafólk ræddu hvað það er sem gerir borgir betri til að lifa í. Þar kom margt áhugavert fram, en það sem stóð upp úr fyrir mig var erindi Eddu Ivarsdóttur, sem útskýrði á skýran og aðgengilegan hátt muninn á skipulags- og uppbyggingarferlum á Íslandi og í Svíþjóð.

Skoðun
Fréttamynd

Krefjast þess að fram­kvæmdir við Kaffi­stofuna verði stöðvaðar

Fjörutíu og fjórir íbúar og fasteignaeigendur í hverfi 108 hafa lagt fram stjórnsýslukæru til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála vegna ákvörðunar Reykjavíkurborgar um að veita byggingarleyfi fyrir starfsemi kaffistofu Samhjálpar að Grensásvegi 46. Þau krefjast þess að framkvæmdir verði stöðvaðar og vilja að samþykki borgarinnar verði fellt úr gildi. 

Innlent
Fréttamynd

Álfta­nes – ný byggð á flóðasvæði

Garðabær hefur í tveimur áföngum frá 2019 kynnt skipulag á Álftanesi á svokölluðu Norðurnesi, gegnt Bessastöðum. Meginatriði þessa skipulags er annars vegar nýr golfvöllur og hins vegar ný íbúðabyggð með sérbýli.

Skoðun
Fréttamynd

Breytingar á deiliskipulagi Suður­lands­brautar aug­lýstar

Umhverfis- og skipulagsráð hefur samþykkt að senda deiliskipulag Suðurlandsbrautar vegna Borgarlínunnar til auglýsingar í samráðsgátt. Minnihluti borgarstjórnar gagnrýnir fyrirhugaðar breytingar og sér í lagi að ekki sé búið að útfæra breytingar á bílastæðum við götuna.

Innlent
Fréttamynd

Harma að á­hyggjur í­búa séu hundsaðar

Fulltrúar Viðreisnar, Framsóknar og Sjálfstæðisflokks í umhverfis- og skipulagsráði samþykktu ekki umsókn Samhjálpar um breytingar á húsnæði sem þau hafa tekið á leigu við Grensásveg og segja í bókunum að þau hafi áhyggjur af ósætti íbúa við opnun kaffistofunnar. Þau harma að áhyggjur íbúa séu hundsaðar.

Innlent
Fréttamynd

Bjóða út fram­kvæmdir vegna Sæbrautarstokks

Vegagerðin hefur boðið út verkhönnun á undirbúningsframkvæmdum fyrir Sæbrautarstokk. Framkvæmdum á samkvæmt útboði að vera lokið í nóvember á þessu ári. Tilboðum á að skila fyrir miðjan apríl. Ofan á stokknum er gert ráð fyrir nýjum almenningsgarði.

Innlent
Fréttamynd

Rýmka bílastæðareglur en höfnuðu til­lögu sem gengur lengra

Umhverfis- og skipulagsráð samþykkti í vikunni tillögu um fleiri bílastæði við nýbyggingar í Reykjavík en hafnaði kröfu Sjálfstæðisflokksins um að ganga enn lengra og miða almennt við að minnsta kosti eitt bílastæði á hverja íbúð. Málið fer nú áfram til borgarráðs.

Innlent
Fréttamynd

Telja að bíla­stæðum fækki eftir að þau voru færð úr upp­dráttum

Meirihluti umhverfis- og skipulagsráðs Reykjavíkurborgar samþykkti á síðasta fundi sínum að auglýsa fjórar tillögur að breytingum á deiliskipulagi við Suðurlandsbraut og Sigtúnsreit. Í þremur þeirra er gert ráð fyrir að nákvæm útfærsla bílastæða verði ekki lengur sýnd á deiliskipulagsuppdráttum heldur ákveðin síðar.

Innlent
Fréttamynd

Svona lítur nýja skólaþorpið í Laugar­dal út

Skólastjóri Laugarnesskóla segir það mikinn létti að geta loks tekið nýtt skólaþorp í gagnið en þau hafa beðið í þrjú ár eftir lausn á húsnæðisvanda skólans. Gripið verður til ráðstafanna til að bæta umferðaröryggi fyrir börnin við Reykjaveg.

Innlent
Fréttamynd

Land­fylling í Skerja­firði: Óttast að borgin vaði af stað

Íbúar í Skerjafirði eru hræddir um að Reykjavíkurborg gangi á bak orða sinna og hefji landfyllingu á svæðinu án tilskilinna leyfa. Þrátt fyrir mikla andstöðu íbúa stefnir allt í að síðasta náttúrulega fjara suðurhluta Reykjavíkur verði að landfyllingu.

Innlent
Fréttamynd

Bæjar­stjórinn einn á móti stækkun frið­lýsingar Gróttu og Seltjarnar

Bæjarstjórn Seltjarnarnesbæjar samþykkti í fyrradag, með sex greiddum atkvæðum gegn einu, stækkun á friðlendi í Gróttu og Seltjarnar. Bæjarstjóri telur tillögu um friðlýsingu ganga of langt og segir afar skiptar skoðanir meðal íbúa. Unnið hefur verið að stækkun friðlendisins í um sex ár. Sjálfstæðisflokkurinn er klofinn í málinu og bæjarstjórinn greiddi einn atkvæði gegn tillögunni.

Innlent
Fréttamynd

Mikil and­staða við nýtt 160 her­bergja hótel á Laugar­vatni

Íbúar á Laugarvatni eru ekki allir sáttir við hugmyndir um byggingu fjögurra hæða hótels á Laugarvatni rétt við vatnið með 160 herbergjum. Um 8.600 fermetra byggingu verður að ræða. En um hvað snýst málið í raun og veru? Ásta Stefánsdóttir, er sveitarstjóri Bláskógabyggðar.

Innlent