Ítrekað hjólað á móti umferð Agnar Már Másson skrifar 4. ágúst 2026 21:02 Margir virðast ekki vita að hjólastígarnir sitt hvoru megin við Hverfisgötu séu einstefnustígar. Hjóla hægra megin við götuna hverju sinni, ekki vinstra megin. Samsett Mynd Fólk á reðihjólum og rafhlaupahjólum hjólar ítrekað á móti umferð við Hverfisgötu í Reykjavík, en ekki virðast allir átta sig á því þar sé einstefna sitt hvoru megin við götuna. Formaður Landsambands hjólreiðamanna segir að bæta þurfi vegmerkingar við götuna. Einstefnuhjólastígum á að fara fjölgandi í borginni á næstu árum, að sögn Reykjavíkurborgar. Stök hjólarein liggur hvor sínu megin við Hverfisgötu og eiga hjólreiðamenn almennt að hjóla á þeirri rein sem er hægra megin við götuna. Það virðast samt ekki allir átta sig á því enda eru fáir aðrir einstefnuhjólastígar í Reykjavík. „Þetta bara þekkist ekki. Það er ofboðslega mikið af tvístefnuhjólastígum úti um allt. Þetta er bara hér og í Borgartúni og þetta virkar bara ekki, hugsanlega vegna þess að það eru lélegar merkingar,“ segir Erlendur S. Þorsteinsson, formaður Landssambands hjólreiðamanna. Í svari frá Reykjavíkurborg segir að í skilningi laganna séu hjólandi vegfarendur „ökumenn“ og því gildi sömu lög og reglur um hjólandi eins og þau sem aka bíl eða bifhjól, nema annað sé tekið fram. Þannig sé ljóst að hjólreiðamenn eigi að halda sig hægra megin við Hverfisgötu. 1. mgr., 18. gr. umferðarlaga „Ökumaður skal vera með ökutæki sitt eins langt til hægri og unnt er með tilliti til annarrar umferðar og aðstæðna að öðru leyti. Við akstur á vegi sem skipt er upp í akreinar í sömu akstursstefnu skulu ökumenn að jafnaði velja að aka á hægri akrein verði því við komið […].“ Hann segir það afar algengt að fólk hjóli á móti umferð á Hverfisgötu, sem skapi óþarfa hættu, sérstaklega þegar hjólreiðamenn mætast. Yfirborðsmerkingar á hjólreiðastígunum eiga almennt að gefa til kynna í hvora átt á að stefna. Ef dekkin á hjólamerkinu á götunni snúa að manni er maður að hjóla í rétta átt, en ef stýri og sæti hjólamerkisins snúa að manni er maður að hjóla í ranga átt. En á þeim um það bil 40 mínútum sem fréttastofa varði við Hverfisgötu í morgun sáust um tíu manns hjóla röngu megin við götuna, annaðhvort á rafhlaupahjóli eða reiðhjóli. Vill betri merkingar Erlendur segir að bæta mætti merkingar á hjólastígum í götunni – einnig svo að gangandi vegfarendur labbi ekki á þeim að óþörfu og svo að vörubílar leggi ekki þvert yfir þá þegar þeir afferma vörur. „Á stígnum sjálfum eru hjól, en það vantar til dæmis örvar til að vita hvert þú átt að fara,“ heldur hjólreiðamaðurinn áfram. Kópavogsbær merkti nýlega sína hjólastíga með örvum, sem Erlendur segir hafa svínvirkað. Í svari Reykjavíkurborgar segir að frá því að stígarnir voru gerðir hafi reglugerðin sem nær yfir þá verið endurgerð í heild sinni og þá hafi komið inn smækkuð ör fyrir hjólastíga og hjólareinar. „Ekki hefur verið tekin ákvörðun um að bæta þeim [örvum] við á stíga sem voru gerðir fyrir gildistöku reglugerðarinnar, þ.e. t.d. á Hverfisgötu, og verið er að meta hvort ástæða sé til að bæta þeim við í hönnun á nýjum stígum,“ segir í svari borgarinnar. En hjólastígurinn við Hverfisgötu hefur reynst hjólreiðamönnum eitt stórt spurningamerki, að sögn Erlends, sem nefnir meðal annars að stígurinn endi skyndilega við Ingólfsstræti og stefni þannig hjólreiðamönnum ýmist á gangstéttina, bílaumferð eða jafnvel út í runna. „Þessi hjólastígur gufar upp hérna við Ingólfsstræti. Þegar hann gufar upp og þú ert að fara á móti umferð og þú þarft skyndilega að fara út á götuna, þá ertu kominn á móti öllum. Þú ert kominn á móti öllum bílunum, hjólunum og öllum sem eru að fara upp götuna,“ segir hann. Í svari frá Reykjavíkurborg segir að merkingar fyrir stígana séu í samræmi við reglugerð, en það sé helst í tilfellum tvístefnustíga þar sem merkja þurfi sérstaklega. „Markmið Vínarsáttmálans um umferðarmerki og umferðarljós frá 1968, sem okkar reglugerð um umferðarmerki og notkun þeirra byggir á, er að fækka umferðarmerkjum en þó tryggja skýrleika,“ skrifar borgin. Gætu þurft að fara að venjast einstefnustígum Þó að einstefnuhjólastígar sem þessir séu ekki algengir í borginni í dag á þeim að fjölga á næstu árum. Samkvæmt uppfærðri hjólreiðaáætlun Reykjavíkurborgar verða hjólastígar lagðir sem hluti af götuþversniði og þá er almennt talið ákjósanlegast að gera einstefnustíga hvorn sínum megin akbrautar. „Þess fyrir utan gerir staðalþversnið Borgarlínu, sem sjá má m.a. í frumdragaskýrslu Borgarlínu, ráð fyrir einstefnuhjólastígum á þeim götum sem framkvæmt verður vegna hennar. Ekki er alls staðar rými fyrir staðalþversniðið, eins og einnig kemur fram í frumdragaskýrslunni, og því verður það ekki endilega lausn alls staðar. Það stendur því til að gera fleiri einstefnuhjólastíga í borginni,“ segir í svari Reykjavíkur. Hjólreiðar Rafhlaupahjól Skipulagsmál Reykjavík Umferðaröryggi Umferð Samgöngumál Mest lesið Bandaríkin hafi samið við Danmörku um Grænland Erlent „Þetta er örugglega dauðastríð sem tekur langan tíma“ Innlent Íhuga að fara nýja leið og bjóða Rússum viðskiptasamninga Erlent KR-ingar harma sundátökin: „Mikilvægt að við hlúum hvert að öðru“ Innlent „Við höfum iðulega verið tossinn í bekknum“ Innlent Løkke um samninginn: „Næsta vika getur orðið góð vika“ Erlent „Ég þekkti strax höfuðið á henni úr fjarska“ Innlent „Það var bara blankalogn hjá þeim og þeir voru með óvirka vél“ Innlent Vill þyngri refsingu fyrir Margréti Löf Innlent Trump rekur CNN og fleiri fjölmiðla úr Hvíta húsinu Erlent Fleiri fréttir Eftirlýstur og með vopn á sér „Þetta er örugglega dauðastríð sem tekur langan tíma“ „Það var bara blankalogn hjá þeim og þeir voru með óvirka vél“ Sjö um borð þegar bíll valt á Barðastrandarvegi „Við höfum iðulega verið tossinn í bekknum“ KR-ingar harma sundátökin: „Mikilvægt að við hlúum hvert að öðru“ „Ég þekkti strax höfuðið á henni úr fjarska“ Steinhissa á sjö ára kröfu yfir „burðardýrum“ Undirrituðu viljayfirlýsingu um stækkun VMA Segja kröfulista Icelandair tefja samninga Carlsberg og Kamala komu við sögu í málsvörnum Sundþjálfari KR með hníf á lofti fyrir lykilfund sundfólks Ölvunarakstur ungmenna nálgast sögulegt hámark Fara fram á sjö og átta ár í Dettifossmálinu Fundi lokið án árangurs fimm dögum fyrir verkfall flugvirkja Viðar Örn gaf Sævari Louis Vuitton-tösku Miklar áhyggjur af þekkingunni sem glatist með starfslokunum Moskítóflugan virðist hafa gufað upp Enginn með stöðu sakbornings vegna banaslyssins Játar innbrot í búin Reyna að afstýra verkfalli og moskítóflugan horfin Níu ákærðir fyrir að flytja inn rúm hundrað kíló kókaíns „Er þetta ekki komið út í hártoganir?“ Lífsnauðsynlegt að meðhöndla risarækjur líkt og kjúkling Ríkissjóður gæti tekið yfir skuldir Rúv: „Skattgreiðendur borga reikning sem þeir áttu ekki von á“ Útlit fyrir úrkomubakka og þokuloft Vill þyngri refsingu fyrir Margréti Löf Fundað í flugvirkjadeilu Þurftu að keyra á hnífamann sem slóst við lögreglu Fjárlögin leiði til stöðnunar Landspítalans Sjá meira
1. mgr., 18. gr. umferðarlaga „Ökumaður skal vera með ökutæki sitt eins langt til hægri og unnt er með tilliti til annarrar umferðar og aðstæðna að öðru leyti. Við akstur á vegi sem skipt er upp í akreinar í sömu akstursstefnu skulu ökumenn að jafnaði velja að aka á hægri akrein verði því við komið […].“
Hjólreiðar Rafhlaupahjól Skipulagsmál Reykjavík Umferðaröryggi Umferð Samgöngumál Mest lesið Bandaríkin hafi samið við Danmörku um Grænland Erlent „Þetta er örugglega dauðastríð sem tekur langan tíma“ Innlent Íhuga að fara nýja leið og bjóða Rússum viðskiptasamninga Erlent KR-ingar harma sundátökin: „Mikilvægt að við hlúum hvert að öðru“ Innlent „Við höfum iðulega verið tossinn í bekknum“ Innlent Løkke um samninginn: „Næsta vika getur orðið góð vika“ Erlent „Ég þekkti strax höfuðið á henni úr fjarska“ Innlent „Það var bara blankalogn hjá þeim og þeir voru með óvirka vél“ Innlent Vill þyngri refsingu fyrir Margréti Löf Innlent Trump rekur CNN og fleiri fjölmiðla úr Hvíta húsinu Erlent Fleiri fréttir Eftirlýstur og með vopn á sér „Þetta er örugglega dauðastríð sem tekur langan tíma“ „Það var bara blankalogn hjá þeim og þeir voru með óvirka vél“ Sjö um borð þegar bíll valt á Barðastrandarvegi „Við höfum iðulega verið tossinn í bekknum“ KR-ingar harma sundátökin: „Mikilvægt að við hlúum hvert að öðru“ „Ég þekkti strax höfuðið á henni úr fjarska“ Steinhissa á sjö ára kröfu yfir „burðardýrum“ Undirrituðu viljayfirlýsingu um stækkun VMA Segja kröfulista Icelandair tefja samninga Carlsberg og Kamala komu við sögu í málsvörnum Sundþjálfari KR með hníf á lofti fyrir lykilfund sundfólks Ölvunarakstur ungmenna nálgast sögulegt hámark Fara fram á sjö og átta ár í Dettifossmálinu Fundi lokið án árangurs fimm dögum fyrir verkfall flugvirkja Viðar Örn gaf Sævari Louis Vuitton-tösku Miklar áhyggjur af þekkingunni sem glatist með starfslokunum Moskítóflugan virðist hafa gufað upp Enginn með stöðu sakbornings vegna banaslyssins Játar innbrot í búin Reyna að afstýra verkfalli og moskítóflugan horfin Níu ákærðir fyrir að flytja inn rúm hundrað kíló kókaíns „Er þetta ekki komið út í hártoganir?“ Lífsnauðsynlegt að meðhöndla risarækjur líkt og kjúkling Ríkissjóður gæti tekið yfir skuldir Rúv: „Skattgreiðendur borga reikning sem þeir áttu ekki von á“ Útlit fyrir úrkomubakka og þokuloft Vill þyngri refsingu fyrir Margréti Löf Fundað í flugvirkjadeilu Þurftu að keyra á hnífamann sem slóst við lögreglu Fjárlögin leiði til stöðnunar Landspítalans Sjá meira