Hjallastefnan fær loksins húsnæði Sigurgeir Þorkelsson skrifar 3. júní 2026 12:58 Margrét Pála Ólafsdóttir er stofnandi Hjallastefnunnar. Vísir/Lýður Valberg Hjallastefnan stefnir á að opna nýjan leik- og grunnskóla fyrir fjögur hundruð börn við Nauthólsveg í Reykjavík. Kennt verður upp í sjöunda bekk á grunnskólastigi. Skólinn mun taka við af núverandi starfsemi Hjallastefnunnar í Öskjuhlíð. Stefnt er að því að hefja framkvæmdir um mitt ár 2027.
Í framkvæmdunum verður lögð áhersla á að lágmarka kolefnisfótspor og verður notast við forsmíðaðar húseiningar sem flýta munu uppbyggingu. Vinna við gerð deiliskipulags stendur yfir og stefnt er að því að klára það ferli fyrri hluta árs 2027. Í tilkynningu kemur fram að með þessu sé bundið enda á tuttugu ára húsnæðisvanda leikskólans Öskju og Barnaskóla Hjallastefnunnar í Reykjavík. Þá segir einnig að skóla- og frístundasvið Reykjavíkurborgar hafi sýnt verkefninu mikinn áhuga og án stuðnings borgarinnar væri ekki hægt að fagna þessum áfanga. Svona mun lífsgæðakjarninn koma til með að líta út.Reitir Skólarnir störfuðu lengst af, frá árinu 2010, í húsnæði að Nauthólsvegi 89. Húsið stóð á lóð í eigu Háskólans í Reykjavík sem leysti lóðina aftur til sín og þurfti starfsemin frá að hverfa eftir að skóla var slitið vorið 2022. Starfsemin var frá þeim tíma dreifð og í leiguhúsnæði. Var miðstig skólans meðal annars um tíma kennt í húsnæði skátafélagsins Landnema. „Það voru að koma skilaboð!“Innsent Hjallastefnan er risi á sviði sjálfstæðs reksturs leik- og grunnskóla á Íslandi. Félagið er með samninga við tíu sveitarfélög og veitir um 550 manns atvinnu. Nemendurnir eru um 1650 í tólf leikskólum og þremur grunnskólum. Uppbyggingin er hluti af lífsgæðakjarna sem Reitir munu reisa við Nauthólsveg. Mun kjarninn einnig innihalda hundrað og fimmtíu íbúðir ætlaðar sextíu ára og eldri, auk verslunar og þjónustu. Segir í tilkynningunni að hugmyndafræðin komi frá Hollandi og byggi á þveraldursbúsetu. Garðar, yfirbyggð útirými og samnýting svæða dragi úr félagslegri einangrun og bæti lífsgæði.
Húsnæðismál Leikskólar Grunnskólar Mest lesið Karl Wernersson opnar sig Viðskipti innlent Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Viðskipti innlent Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Viðskipti innlent Yfir hundrað prósenta munur á verði fyrir umfelgun Neytendur Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Viðskipti innlent Vinkonur í bissness: Búnar að yfirtaka bílskúr foreldranna Atvinnulíf Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Viðskipti innlent Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Viðskipti innlent 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Viðskipti innlent Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Viðskipti innlent Fleiri fréttir Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Karl Wernersson opnar sig Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Sjá meira