Sport

Fer úr For­múlu 1 yfir í NASCAR

Andri Broddason skrifar
Kevin Magnussen var tíu ár í Formúlu 1 en mun núna keppa í NASCAR
Kevin Magnussen var tíu ár í Formúlu 1 en mun núna keppa í NASCAR Formula 1/Getty Images

Ökuþórinn Kevin Magnussen mun aka í NASCAR eftir nokkrar vikur. Danski ökuþórinn hefur verið ökumaður í Formúlu 1 en mun nú spreyta sig í öðruvísi bíl.

Kevin Magnussen hefur verið tíu ár í Formúlu 1 en síðasta tímabil hans var árið 2024. Síðan þá hefur hann tekið því rólega og keppt í nokkrum mismunandi keppnum eins og 24 tíma keppninni í Le Mans. Hann hefur ekki verið fastur ökumaður hjá neinu liði síðan hann hætti í Formúlu 1.

Magnussen mun keppa í NASCAR fyrir liðið Trackhouse Racing í bíl númer 91. Hann er ekki fyrsti Formúlu 1-ökumaður til að keyra þann bíl en heimsmeistarinn Kimi Räikkönen keyrði bílinn í tvö ár á meðan hann var í pásu frá Formúlu 1.

„Ég er mjög spenntur og það er mikill heiður að fá að keppa í NASCAR,“ sagði Magnussen í tilkynningu frá Trackhouse Racing.

Búist er við að fyrsta keppni Magnussen verði 21. júní í San Diego þegar keyrðir verða 75 hringir í kringum Coronado-herstöðina.

Kevin fetar í fótspor föður síns en Jan Magnussen keppti í einni NASCAR-keppni árið 2010. Þar endaði hann í tólfta sæti af 43 bílum.

Kevin Magnussen er þekktastur fyrir að keyra fyrir lið Haas í Formúlu 1 og náði hann eina ráspól sem liðið hefur fengið í Brasilíu árið 2022.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×