Mótmæli við Austurvöll Áróra L Davíðsdóttir skrifar 4. júní 2026 16:03 Um 150 mótmælendur eru á Austurvelli. Vísir/Vilhelm Um 150 manns eru samankomin á Austurvelli til að mótmæla frumvarpi dómsmálaráðherra um fyrirhugaða brottfararstöð sem fer í þriðju umræðu á Alþingi á morgun, föstudag. Mótmælin sem samtökin No Borders standa fyrir hófust klukkan þrjú og ræðuhöld hefjast klukkan fjögur. Samtökin No Borders standa fyrir mótmælunum.Vísir/Vilhelm Fréttamaður Vísis er á Austurvelli og segir mikil læti vera á svæðinu og að þingmenn kíki út um gluggann á Alþingishúsinu öðru hvoru. Lögregla stendur vörð um húsið. Vísir/Vilhelm Samkvæmt upplýsingum á Facebook-viðburði mótmælanna krefjast samtökin No Borders þess að: „1. Ríkisstjórnin hætti vistun umsækjenda um alþjóðlega vernd í gæsluvarðhaldi. 2. Frumvarpið verði dregið til baka án tafar. 3. Fundnar verði leiðir til þess að tryggja öryggi og frelsi umsækjenda um alþjóðlega vernd. Til eru mannúðarlegri og vægari úrræði.“ Silja Sóley Birgisdóttir, borgarfulltrúi Sósíalistaflokksins, er meðal mótmælenda. Meðal ræðumanna mótmælanna eru fulltrúar W.O.M.E.N in Iceland (félag kvenna af erlendum uppruna) og Amnesty International. Á síðustu dögum hafa samtök og stofnanir gefið út yfirlýsingar þar sem þau leggjast gegn frumvarpinu, einkum fyrirhugaðri vistun barna. Lögregla stendur vörð um Alþingishúsið.Vísir/Vilhelm Ekki fyrstu mótmælin vegna frumvarpsins Á mánudaginn síðastliðinn var gert hlé á þingfundi eftir að mótmælendur á vegum No Borders létu í sér heyra á þingpöllum í annarri umræðu frumvarpsins. Til stóð að afgreiða frumvarp dómsmálaráðherra um brottfararstöð á yfirstandandi þingi, fyrir mars, og að úrræðið yrði opnað í júní á þessu ári. Greint var frá því í upphafi síðasta mánaðar að allsherjar- og menntamálanefnd hygðist leggja fram breytingartillögu á frumvarpi dómsmálaráðherra sem felst í því að óleyfilegt verði að vista börn á fyrirhugaðri brottfararstöð. Fréttin hefur verið uppfærð. Alþingi Brottfararstöð fyrir útlendinga Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Reykjavík Tengdar fréttir Mótmæli við Austurvöll Um 150 manns eru samankomin á Austurvelli til að mótmæla frumvarpi dómsmálaráðherra um fyrirhugaða brottfararstöð sem fer í þriðju umræðu á Alþingi á morgun, föstudag. 4. júní 2026 16:03 Leggja til að börn verði ekki vistuð í brottfararstöðinni Allsherjar- og menntamálanefnd hyggst leggja fram breytingartillögu á frumvarpi dómsmálaráðherra sem felst í því að óleyfilegt verði að vista börn á fyrirhugaðri brottfararstöð. Nefndarmaður segir tillöguna hafa komið frá ráðuneytinu. 6. maí 2026 21:08 Mótmæla fyrirhugaðri brottfararstöð Samtökin No Borders kalla til mótmælafundar á Austurvelli klukkan þrjú í dag gegn frumvarpi dómsmálaráðherra um fyrirhugaða brottfararstöð sem fer í þriðju umræðu á Alþingi á morgun, föstudag. 4. júní 2026 13:50 Mest lesið Draumur Demókrata að rætast Erlent Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Innlent Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli Innlent Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Innlent Bein útsending: Tölur berast frá kjörstöðum vestanhafs Erlent Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Innlent Fleiri fréttir Forvitinn minnihluti styggir bæjarstjórn: „Sláandi tölfræði“ Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Miðflokkurinn bætir við sig fylgi Skoða fæðingarorlofsmálin Dragi uppsagnirnar til baka Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Þrír handteknir fyrir rán Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk „Fræða en ekki hræða“ „Það er öllum ljóst að hann hefur frekar verið þeirra megin“ Fullyrða að Daði Már hafi logið að þinginu „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Kosningar í Bandaríkjunum og utanríkisráðherra ræðir Rússa Skipaður formaður 6. áfanga rammaáætlunar Reikna með þrettán milljarða afgangi á næsta ári Fluttur með björgunarskipi þegar þyrlan gat ekki lent vegna þoku Kynntu fjárhagsáætlun borgarinnar Kolbeinsey lifir enn þrátt fyrir spádóma um annað Játaði að hafa makað saur á hurðarhúna Kynntu verkefnið Verum viðbúin „Ekki bíða eftir fyrsta snjónum“ Rússar hnýta í Þorgerði Katrínu vegna ummæla um skrif Heimis Más Fjögurra bíla árekstur við N1 í Ártúnsbrekku Sjá meira
Mótmælin sem samtökin No Borders standa fyrir hófust klukkan þrjú og ræðuhöld hefjast klukkan fjögur. Samtökin No Borders standa fyrir mótmælunum.Vísir/Vilhelm Fréttamaður Vísis er á Austurvelli og segir mikil læti vera á svæðinu og að þingmenn kíki út um gluggann á Alþingishúsinu öðru hvoru. Lögregla stendur vörð um húsið. Vísir/Vilhelm Samkvæmt upplýsingum á Facebook-viðburði mótmælanna krefjast samtökin No Borders þess að: „1. Ríkisstjórnin hætti vistun umsækjenda um alþjóðlega vernd í gæsluvarðhaldi. 2. Frumvarpið verði dregið til baka án tafar. 3. Fundnar verði leiðir til þess að tryggja öryggi og frelsi umsækjenda um alþjóðlega vernd. Til eru mannúðarlegri og vægari úrræði.“ Silja Sóley Birgisdóttir, borgarfulltrúi Sósíalistaflokksins, er meðal mótmælenda. Meðal ræðumanna mótmælanna eru fulltrúar W.O.M.E.N in Iceland (félag kvenna af erlendum uppruna) og Amnesty International. Á síðustu dögum hafa samtök og stofnanir gefið út yfirlýsingar þar sem þau leggjast gegn frumvarpinu, einkum fyrirhugaðri vistun barna. Lögregla stendur vörð um Alþingishúsið.Vísir/Vilhelm Ekki fyrstu mótmælin vegna frumvarpsins Á mánudaginn síðastliðinn var gert hlé á þingfundi eftir að mótmælendur á vegum No Borders létu í sér heyra á þingpöllum í annarri umræðu frumvarpsins. Til stóð að afgreiða frumvarp dómsmálaráðherra um brottfararstöð á yfirstandandi þingi, fyrir mars, og að úrræðið yrði opnað í júní á þessu ári. Greint var frá því í upphafi síðasta mánaðar að allsherjar- og menntamálanefnd hygðist leggja fram breytingartillögu á frumvarpi dómsmálaráðherra sem felst í því að óleyfilegt verði að vista börn á fyrirhugaðri brottfararstöð. Fréttin hefur verið uppfærð.
„1. Ríkisstjórnin hætti vistun umsækjenda um alþjóðlega vernd í gæsluvarðhaldi. 2. Frumvarpið verði dregið til baka án tafar. 3. Fundnar verði leiðir til þess að tryggja öryggi og frelsi umsækjenda um alþjóðlega vernd. Til eru mannúðarlegri og vægari úrræði.“
Alþingi Brottfararstöð fyrir útlendinga Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Reykjavík Tengdar fréttir Mótmæli við Austurvöll Um 150 manns eru samankomin á Austurvelli til að mótmæla frumvarpi dómsmálaráðherra um fyrirhugaða brottfararstöð sem fer í þriðju umræðu á Alþingi á morgun, föstudag. 4. júní 2026 16:03 Leggja til að börn verði ekki vistuð í brottfararstöðinni Allsherjar- og menntamálanefnd hyggst leggja fram breytingartillögu á frumvarpi dómsmálaráðherra sem felst í því að óleyfilegt verði að vista börn á fyrirhugaðri brottfararstöð. Nefndarmaður segir tillöguna hafa komið frá ráðuneytinu. 6. maí 2026 21:08 Mótmæla fyrirhugaðri brottfararstöð Samtökin No Borders kalla til mótmælafundar á Austurvelli klukkan þrjú í dag gegn frumvarpi dómsmálaráðherra um fyrirhugaða brottfararstöð sem fer í þriðju umræðu á Alþingi á morgun, föstudag. 4. júní 2026 13:50 Mest lesið Draumur Demókrata að rætast Erlent Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Innlent Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli Innlent Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Innlent Bein útsending: Tölur berast frá kjörstöðum vestanhafs Erlent Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Innlent Fleiri fréttir Forvitinn minnihluti styggir bæjarstjórn: „Sláandi tölfræði“ Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Miðflokkurinn bætir við sig fylgi Skoða fæðingarorlofsmálin Dragi uppsagnirnar til baka Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Þrír handteknir fyrir rán Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk „Fræða en ekki hræða“ „Það er öllum ljóst að hann hefur frekar verið þeirra megin“ Fullyrða að Daði Már hafi logið að þinginu „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Kosningar í Bandaríkjunum og utanríkisráðherra ræðir Rússa Skipaður formaður 6. áfanga rammaáætlunar Reikna með þrettán milljarða afgangi á næsta ári Fluttur með björgunarskipi þegar þyrlan gat ekki lent vegna þoku Kynntu fjárhagsáætlun borgarinnar Kolbeinsey lifir enn þrátt fyrir spádóma um annað Játaði að hafa makað saur á hurðarhúna Kynntu verkefnið Verum viðbúin „Ekki bíða eftir fyrsta snjónum“ Rússar hnýta í Þorgerði Katrínu vegna ummæla um skrif Heimis Más Fjögurra bíla árekstur við N1 í Ártúnsbrekku Sjá meira
Mótmæli við Austurvöll Um 150 manns eru samankomin á Austurvelli til að mótmæla frumvarpi dómsmálaráðherra um fyrirhugaða brottfararstöð sem fer í þriðju umræðu á Alþingi á morgun, föstudag. 4. júní 2026 16:03
Leggja til að börn verði ekki vistuð í brottfararstöðinni Allsherjar- og menntamálanefnd hyggst leggja fram breytingartillögu á frumvarpi dómsmálaráðherra sem felst í því að óleyfilegt verði að vista börn á fyrirhugaðri brottfararstöð. Nefndarmaður segir tillöguna hafa komið frá ráðuneytinu. 6. maí 2026 21:08
Mótmæla fyrirhugaðri brottfararstöð Samtökin No Borders kalla til mótmælafundar á Austurvelli klukkan þrjú í dag gegn frumvarpi dómsmálaráðherra um fyrirhugaða brottfararstöð sem fer í þriðju umræðu á Alþingi á morgun, föstudag. 4. júní 2026 13:50