Körfubolti

Lokuðu á Martin og héldu sér á lífi

Ágúst Orri Arnarson skrifar
Martin komst minna áleiðis en í fyrstu tveimur leikjum einvígisins.
Martin komst minna áleiðis en í fyrstu tveimur leikjum einvígisins. Vísir/getty

Bamberg vann 81-73 sigur gegn Alba Berlin og hélt sér á lífi í undanúrslitum þýsku úrvalsdeildarinnar í körfubolta.

Alba Berlin var 2-0 yfir fyrir leik kvöldsins og þarf aðeins einn sigur í viðbót til að komast í úrslit en tókst ekki að klára einvígið í kvöld.

Lykillinn að sigrinum hjá Bamberg í kvöld var varnarleikurinn sem liðið spilaði á bakverði Alba Berlin, Martin Hermannsson og Jack Kayil, samkvæmt umfjöllun Kicker.

Martin og Jack Kayil höfðu verið manna mikilvægastir í fyrstu tveimur leikjunum en tókst ekki að koma sér nógu vel inn í leikinn í kvöld. Þeir töpuðu boltanum í sitt hvor fjögur skiptin.

Martin endaði með 7 stig og 1 stoðsendingu en Kayil var með 8 stig og 7 stoðsendingar.

Bamberg leiddi leikinn nánast allan tímann og sigldi sigrinum örugglega í höfn. Liðin mætast aftur á laugardaginn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×