Hættu við samrunann vegna afskipta Samkeppniseftirlitsins Árni Sæberg skrifar 5. júní 2026 12:49 Ekkert verður af kaupum Lyfju á Borgar apóteki. Vísir/Vilhelm Lyfja og Einar Birgir Haraldsson, eigandi Borgar apóteks, hafa komist að samkomulagi um að falla frá fyrirhuguðum kaupum Lyfju á Borgar apóteki í Borgartúni. Samrunatilkynning sem var til meðferðar hjá Samkeppniseftirlitinu hefur því verið afturkölluð. Ástæðan er sögð frummat Samkeppniseftirlitsins á samrunanum.
Í fréttatilkynningu þess efnis frá Lyfju og Borgar Apóteki segir að Lyfja hafi tilkynnt um fyrirhuguð kaup til Samkeppniseftirlitsins í apríl síðastliðnum að undangengnum forviðræðum við eftirlitið. Málið hafi síðan verið til rannsóknar hjá eftirlitinu. Í samskiptum við samrunaaðila hafi Samkeppniseftirlitið kynnt frummat sitt á mögulegum samkeppnislegum áhrifum samrunans og um þörf á frekari rannsókn af þeim sökum. Í ljósi þess hafa aðilar komist að samkomulagi um að ljúka málinu án frekari aðgerða. „Við hjá Lyfju vonuðumst til að kaupin gætu skapað tækifæri fyrir fyrirtækin. Í ljósi frummats Samkeppniseftirlitsins um möguleg samkeppnisleg áhrif samrunans var það sameiginlegt mat aðila að rétt væri að leiðir skildu þannig að fallið yrði frá kaupunum og samrunatilkynning afturkölluð. Það er miður að kaupin gangi ekki eftir en við þökkum Einari Birgi og öðrum sem komu að málinu fyrir faglegt ferli,“ er haft eftir Karen Ósk Gylfadóttur, framkvæmdastjóra Lyfju. „Ég hefði kosið að sjá viðskiptin ganga eftir og því þykir mér miður að þau skuli ekki verða að veruleika. Ég vil þó þakka Lyfju fyrir gott samstarf í ferlinu. Borgar Apótek mun áfram starfa undir núverandi eignarhaldi og þjónusta viðskiptavini sína sem fyrr í gegnum apótekið og lyfjaskömmtun,“ er haft eftir segir Einari Birgi.
Kaup og sala fyrirtækja Samkeppnismál Lyf Mest lesið Karl Wernersson opnar sig Viðskipti innlent Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Viðskipti innlent Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Viðskipti innlent Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Viðskipti innlent Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Viðskipti innlent Yfir hundrað prósenta munur á verði fyrir umfelgun Neytendur Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Viðskipti innlent Vinkonur í bissness: Búnar að yfirtaka bílskúr foreldranna Atvinnulíf Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Viðskipti innlent 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Karl Wernersson opnar sig Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Sjá meira