FÍA hvetur flugmenn til að hlaupa undir bagga og styðja við Icelandair Birgir Olgeirsson skrifar 5. júní 2026 16:23 Jón Þór Þorvaldsson formaður FÍA. Vísir/Vilhelm Félag íslenskra atvinnuflugmanna hvetur þá flugmenn Icelandair sem það geta til að hlaupa undir bagga með félaginu og styðja við rekstur þess. Þetta kemur fram í fréttabréfi FÍA sem sent var á flugmenn fyrr í dag. „
Fram undan er hábjargræðistími Icelandair félagsins okkar. Þið sem getið hlaupið undir bagga og stutt við rekstur félagsins eruð áfram hvött til þess,“ segir í fréttabréfinu. Ekki hefur þurft að aflýsa áætlunarferð á vegum Icelandair vegna mönnunarvanda síðan á mánudag þegar ferð til Zurich var aflýst. Var það tuttugasta brottförin frá Keflavíkurflugvelli sem var aflýst vegna mönnunarvanda síðan deilu flugmanna við Icelandair var vísað til ríkissáttasemjara. Í gærkvöldi lagði samninganefnd Icelandair fram heildstætt skjal með umfangsmiklum breytingum á gildandi kjarasamningi við flugmenn. Ástráður Haraldsson ríkissáttasemjari segir skjalið vera fyrsta skrefið í áttina að því að móta skýran ramma utan um hvað verður samið um í þessari kjaradeilu félagsins við flugmenn. Ekki er enn búið að ákveða næsta fund en samninganefnd Félags íslenskra atvinnuflugmanna þarf tíma til að meta tilboðið og eftir það verða næstu skref ákveðin. „Það var engum hurðum skellt,“ svarar Ástráður þegar hann var spurður hvernig flugmenn hafi tekið í tilboðið. Menn hafi einfaldlega tekið þessu með stóískri ró sagði Ástráður áður en samtali við hann lauk. Eftir því sem Vísir kemst næst þá hafi samninganefnd Icelandair færst fjær sínum ítrustu kröfum en þó sé um umfangsmiklar breytingar að ræða á gildandi kjarasamningum. Eitthvað af því sem var í skjalinu hafði samninganefnd flugmanna ekki séð áður í þessum viðræðum, sem kallar á að farið verði vandlega yfir tilboðið áður en næstu skref verða ákveðin. Á samninganefnd Icelandair að hafa færst frá sínum ítrustu kröfum um kjaraskerðingu flugmanna og meira í átt að því að ákveðnir hópar meðal flugmanna taki á sig kjaraskerðingu. Í fréttabréfi FÍA til flugmanna segist félagið deila áhyggjum Flugvirkjafélags Íslands um félagsundirboð og útvistun starfa. Segist FÍA ekki ætla að verða það félag sem veiti félagslegum undirboðum brautargengi. Er það mat félagsins að Samtök atvinnulífsins, eigendur Icelandair og stjórnvöld ættu ekki að gera það heldur.
Icelandair Kjaramál Mest lesið Kílómetragjaldið hækkar Innlent Eftirförin endaði með hvelli Innlent Ísland á Ameríkukorti Trumps Erlent „Ég átti aldrei að lifa þetta af“ Innlent Dulin hækkun rökstudd með styttingu vinnuvikunnar Innlent „Hvar ætla þau þá að spara?“ Innlent Klórar sér í kollinum Innlent „Merkilegt að sjá hvað aulaafturhaldinu dettur næst í hug“ Innlent Fær að setja þessar fasteignir á sölu Innlent Daði kynnti fjárlagafrumvarp fyrir árið 2027 Innlent Fleiri fréttir „Myndi einhverri annarri stétt vera boðið upp á svona rugl?“ „Vonandi birtist ekkert meira af myndum sem þessum“ Barnabótapotturinn stendur í stað en ýmis gjöld hækka Klórar sér í kollinum Dulin hækkun rökstudd með styttingu vinnuvikunnar Ríkisráðsfundur og styttist í setningu þings Skera niður Loftslags- og orkusjóð um rúma þrjá milljarða „Það hefur engin þjóð skattlagt sig til velsældar“ „Hvar ætla þau þá að spara?“ Hallalausa núllið eftir gamalli uppskrift Mikið útkall vegna eldamennsku á Álftanesi Rýnt í fjárlög Reykjavík í tíunda sæti yfir loftgæði Lokun á Hellisheiði og í Hvalfjarðargöngunum Fær að setja þessar fasteignir á sölu Kílómetragjaldið hækkar „Ég átti aldrei að lifa þetta af“ Ríkisútvarpið hafi stækkað á kostnað einkarekinna miðla Halla boðar til ríkisráðsfundar Daði kynnti fjárlagafrumvarp fyrir árið 2027 Erfiðara að sporna við innstreymi fíkniefna á Litla-Hrauni Tvær tilkynningar um eld „Merkilegt að sjá hvað aulaafturhaldinu dettur næst í hug“ Eftirförin endaði með hvelli „Svona er bara litróf mannlífsins“ Ökumaður bifhjóls flaug út af Kvartmílubrautinni Gríðarleg aukning í sölu á fánastöngum Þyrlan sótti slasaðan mótorhjólamann á hálendið Bandaríkjamenn sendu ekki skip til Íslands Keyrði utan í minnst fjórar bifreiðar og þar af tvo lögreglubíla Sjá meira