Skipti engu nema við göngum í ESB Hjörtur J. Guðmundsson skrifar 7. júní 2026 14:01 Við Íslendingar erum á meðal þeirra þjóða sem eiga í hvað mestri samvinnu við önnur ríki í heiminum. Þar á meðal þau ríki sem eru innan Evrópusambandsins og sambandið sjálft. Fyrir vikið er áhugavert þegar þeir sem vilja ganga í Evrópusambandið kjósa að stilla málum þannig upp að við séum á móti samvinnu við önnur ríki ef við viljum ekki ganga þar inn. Til dæmis var þetta sett fram þannig af Berglindi Guðmundsdóttur, frambjóðanda Viðreisnar í síðustu þingkosningum, í grein á Vísi í gær. Þar líkti hún þjóðinni við Bjart í Sumarhúsum, hina þekktu skáldsagnapersónu Halldórs Laxness sem hafi hafnað samvinnu og aðeins viljað vera sjálfstæður og einn, og sagði hann endurspegla þjóðarsál okkar. Málið er einfaldlega það að samvinna við önnur ríki á jafnræðisgrunni um sameiginleg hagsmunamál er eitt, og vitanlega af hinu góða, en samruni, sem auk þess miðar að því að til verði að lokum eitt sambandsríki, hins vegar allt annað. Þar sem vægi okkar við ákvarðanatökur færi einkum eftir íbúafjölda landsins eins og reyndin er gjarnan innan slíkra ríkja. Við eigum í miklu samstarfi við ríki um allan heim á fjölmörgum sviðum og eins Evrópusambandið en við þurfum ekki að gangast undir vald þeirra til þess líkt og raunin yrði innan sambandsins. Um það yrði ekki samið í viðræðum um inngöngu í Evrópusambandið. Varanlegar undanþágur frá yfirstjórn sambandsins eru einfaldlega ekki á boðstólum. Tal Berglindar um að rétt sé að láta reyna á viðræður um inngöngu í Evrópusambandið skautar þess utan framhjá þeim veruleika að samhliða þeim þurfa ríki að aðlaga sig að öllu regluverki og stjórnsýslu þess áður en samningur liggur fyrir. Um þetta má einfaldlega lesa í gögnum sambandsins sjálfs. Þar með talið vegna umsóknferlis Íslands síðast. Hér áður fyrr fór þessi aðlögun fram eftir að ríki gengu í Evrópusambandið en fyrir tæpum 30 árum var hún hins vegar færð fram fyrir formlega inngöngu í það. Með öðrum orðum er aðlögunin samhliða viðræðunum hluti af því að ganga í sambandið. Fyrir vikið snýst þjóðaratkvæðið í lok ágúst um það hvort við viljum hefja inngöngu í Evrópusambandið. Með málflutningi Berglindar er ekki aðeins verið að gera lítið úr þjóðinni sem slíkri heldur einnig þeirri umfangsmiklu samvinnu sem við Íslendingar eigum í á hinum ýmsu sviðum við ríki heimsins. Skilaboðin eru þau að það skipti engu máli nema við göngum í Evrópusambandið. Annars séum við bara eins og Bjartur í Sumarhúsum. Höfundur er sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur (MA í alþjóðasamskiptum) og heldur úti vefsíðunni Stjornmalin.is. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið Uppsagnir hafnar en ríkið er ekki tilbúið að taka við Sigrún Guðmundsdóttir Skoðun Grænlandssamningurinn Arnór Sigurjónsson Skoðun Þegar faglegt sjálfstæði verður að neitunarvaldi Ketill Guðmundsson Skoðun Ástæðan fyrir ástandinu hjá SÁÁ Theódór S. Halldórsson Skoðun Krónan varð eftir – nú þarf að láta hana virka Örn Sigurdsson Skoðun Litlar ákvarðanir geta leitt til fleiri heilbrigðra æviára Thor Aspelund Skoðun Halldór 19.09.2026 Halldór Raunveruleiki Wolt-sendla og gigg-hagkerfisins Katrin Þóra Jonsson,Joonas Tuompo Skoðun Ég ætla ekki að verða sérfræðingur í salernispappír Haukur Logi Jóhannsson Skoðun Penelópa í Valhöll Júlíus Valsson Skoðun Skoðun Skoðun Krónan varð eftir – nú þarf að láta hana virka Örn Sigurdsson skrifar Skoðun Grænlandssamningurinn Arnór Sigurjónsson skrifar Skoðun Uppsagnir hafnar en ríkið er ekki tilbúið að taka við Sigrún Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Þegar faglegt sjálfstæði verður að neitunarvaldi Ketill Guðmundsson skrifar Skoðun Penelópa í Valhöll Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þegar „fjölmiðlastyrkir“ eru ekki fyrir alla fjölmiðla Hólmgeir Baldursson skrifar Skoðun Litlar ákvarðanir geta leitt til fleiri heilbrigðra æviára Thor Aspelund skrifar Skoðun Ferðaskrifstofur í gíslingu kjaradeilna: Hver á að borga brúsann? Ásdís Eir Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Allt landið eitt kjördæmi Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Ég ætla ekki að verða sérfræðingur í salernispappír Haukur Logi Jóhannsson skrifar Skoðun Ástæðan fyrir ástandinu hjá SÁÁ Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Hvers vegna er ég ekki kominn lengra? Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Sagan frá hinni hliðinni Sólveig Jancauskiene skrifar Skoðun Ég er kominn heim - eða hvað? María Pétursdóttir,Ingólfur Már Magnússon skrifar Skoðun Raunveruleiki Wolt-sendla og gigg-hagkerfisins Katrin Þóra Jonsson,Joonas Tuompo skrifar Skoðun Hvað ef internetið lokaði kl.18? Tinna Tómasdóttir skrifar Skoðun Nemandinn fær tíu – en hvað hefur hann lært? Bogi Ragnarsson skrifar Skoðun Nóttin bjargar ekki deginum – hún afhjúpar hann Grétar Þór Guðjohnsen skrifar Skoðun Excel-væðing mannlífsins Sanna Magdalena Mörtudóttir skrifar Skoðun Af hverju dagaði lagareldisfrumvarpið uppi? Ráðherrann og staðreyndirnar eru ekki alveg sammála Jóhann Helgi Stefánsson skrifar Skoðun Kópavogur er klár – en þið? Ásdís Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Þegar enginn veit Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Hvers konar Ísland viljum við byggja? Albertína Friðbjörg Elíasdóttir skrifar Skoðun Fjölmiðlahelsi Sigurður Örn Hilmarsson skrifar Skoðun Að horfa heim Vera Wonder Sölvadóttir skrifar Skoðun Bættar styrkjareglur í menningarborginni Reykjavík Rúnar Freyr Gíslason skrifar Skoðun EES eftir 29. ágúst 2026 Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun D-vítamín og nýju fötin keisarans Elísabet Reynisdóttir skrifar Skoðun Eitruð jákvæðni í boði menntakerfisins Andri Þorvarðarson skrifar Skoðun Kröfur eru umhyggja Brynjar Karl Sigurðsson skrifar Sjá meira
Skoðun Ferðaskrifstofur í gíslingu kjaradeilna: Hver á að borga brúsann? Ásdís Eir Guðmundsdóttir skrifar
Skoðun Af hverju dagaði lagareldisfrumvarpið uppi? Ráðherrann og staðreyndirnar eru ekki alveg sammála Jóhann Helgi Stefánsson skrifar