STEM ævintýrið á Íslandi: Lausn við PISA-vandanum eða táknræn stefnumótun? Maren Davíðsdóttir skrifar 8. júní 2026 09:03 Niðurstöður íslenskra nemenda í alþjóðlegu PISA könnuninni hafa á síðustu árum orðið eitt stærsta umræðuefni íslenskra menntamála. Sérstaklega hafa niðurstöður í stærðfræði og náttúrufræði valdið áhyggjum þar sem þær standast ekki samanburð við árangur annarra Norðurlandaþjóða. Í kjölfarið hefur aukin áhersla á STEM greinar (vísindi, tækni, verkfræði og stærðfræði) verið kynnt sem lykillausn á vandanum. Markmiðið er að efla færni nemenda í raungreinum, bæta árangur í alþjóðlegum samanburði og tryggja betur undirbúið vinnuafl fyrir tæknivætt samfélag framtíðarinnar. STEM hefur þannig orðið miðlægt hugtak í umræðu um framtíð íslensks menntakerfis. En spurningin er hvort STEM áherslan sé raunveruleg lausn á flóknum vanda eða hvort hér sé fyrst og fremst um að ræða táknræna stefnumótun sem svar við neikvæðri umræðu um PISA. Kreppuhugsun og einfaldar lausnir Fræðimenn hafa bent á að kreppuorðræða í menntun geti haft mikil áhrif á stefnumótun. Þegar talað er um menntakerfið sem kerfi í kreppu skapast þrýstingur á stjórnvöld að sýna skjót og sýnileg viðbrögð. Slíkt leiðir oft til þess að einfaldar og mælanlegar lausnir verða ráðandi til dæmis aukin áhersla á grunnfærni, tæknivæðingu og staðlað námsmat. Í þessu samhengi hefur STEM orðið að ákveðnu lykilhugtaki í menntastefnu. Hugmyndin er einföld og auðskiljanleg: meiri áhersla á stærðfræði og vísindi eigi að skila betri árangri í PISA og styrkja samkeppnishæfni Íslands. Slík nálgun getur þó einnig þrengt sýnina á hlutverk menntunar með því að leggja ofuráherslu á það sem auðvelt er að mæla á kostnað þátta eins og sköpunar, gagnrýninnar hugsunar og félagslegs náms. STEM sem hluti af alþjóðlegri þróun Þróunin á Íslandi er ekki einsdæmi heldur hluti af víðtækri alþjóðlegri stefnumótun undir áhrifum OECD og alþjóðlegra mælinga á borð við PISA. Í mörgum löndum hafa niðurstöður PISA verið notaðar ekki aðeins til að meta námsárangur heldur einnig til að skilgreina hvaða breytingar teljast nauðsynlegar í menntakerfinu. Í kjölfarið hefur aukin áhersla verið lögð á STEM greinar sem taldar eru styðja við samkeppnishæfni ríkja og þarfir atvinnulífsins. Þessi þróun sýnir hvernig PISA hefur í auknum mæli orðið að stjórntæki í menntamálum. Slakar niðurstöður í stærðfræði og náttúruvísindum eru oft túlkaðar sem vísbending um efnahagslegan eða tæknilegan veikleika samfélaga og STEM því kynnt sem lausn sem geti styrkt stöðu ríkja í alþjóðlegri samkeppni. Á sama tíma hefur verið bent á að hætta sé á yfirborðskenndum umbótum þegar ríki taka upp STEM áherslur án þess að taka mið af eigin aðstæðum, menningu eða raunverulegum þörfum skólakerfisins. Þá getur áherslan orðið meira táknræn en raunveruleg og falist fremur í því að sýna viðbrögð við alþjóðlegum samanburði en að ráðast í djúpstæðar umbætur á menntakerfinu sjálfu. Raunveruleg vandamál enn óleyst Á sama tíma og STEM hefur fengið aukið vægi í stefnumótun hefur gagnrýni komið fram um að grunnvandamál íslenska skólakerfisins séu enn að miklu leyti óleyst. Þrátt fyrir fjölmargar tillögur um aukna STEM áherslu virðist skorta skýrar aðgerðir til að laða fagmenntað fólk inn í raungreinakennslu, tryggja fjármagn til að halda úti kennslu í fámennum raungreinaáföngum í framhaldsskólum og verklegri kennslu. Því hafa margir bent á að hætta sé á að STEM verði fyrst og fremst orðræða án raunverulegrar innistæðu. Þetta endurspeglar það sem kallað hefur verið táknræn stefnumótun þar sem stjórnvöld kynna sýnilegar lausnir sem auðvelt er að miðla til almennings án þess að ráðast í djúpstæðar breytingar á kerfinu sjálfu. PISA sem pólitískt afl Niðurstöður úr alþjóðlegum könnunum eins og PISA hafa orðið mjög áhrifamiklar í stefnumótun ríkja. Slakar niðurstöður skapa pólitískan þrýsting og kalla á skjót viðbrögð. Í slíkum aðstæðum getur orðið til gjá milli orðræðu og raunveruleika. Áhersla á STEM verður þá að sýnilegri lausn sem stjórnvöld geta vísað til sem sönnun þess að gripið sé til aðgerða, jafnvel þótt undirliggjandi vandamál eins og fjárskortur og kennaraskortur séu áfram óleyst. Nýr markaður fyrir STEM Aukin STEM áhersla hefur einnig skapað ný tækifæri fyrir einkaaðila. Alþjóðlega hefur þróunin ýtt undir vöxt fyrirtækja á sviði menntatækni, námsmats og stafrænnar kennslu sem bjóða lausnir sem eiga að bæta árangur nemenda í STEM greinum. Á Íslandi hefur þessi þróun meðal annars birst í stofnun fyrirtækisins STEM Ísland árið 2023. Fyrirtækið hefur gert samstarfssamning við Háskóli Íslands um þróun STEM/STEAM-vistkerfa á landsvísu. Markmiðið er að efla samstarf skóla, atvinnulífs og samfélags um menntun í raun- og tæknigreinum. Samstarfið vekur þó jafnframt spurningar um hlutverk einkaaðila í mótun menntastefnu og hvort aukin markaðsvæðing menntunar sé að verða hluti af þróuninni. Gagnrýnendur hafa bent á mikilvægi þess að fagleg sjónarmið og þarfir skólastarfs ráði ferðinni fremur en nýr markaður fyrir STEM lausnir og stefnumótunarhugtök. STEM sem hluti af alþjóðlegri orðræðu Hugtakið STEM á rætur að rekja til stefnumótunar í Bandaríkjunum þar sem það var þróað til að mæta þörf fyrir sérhæft vinnuafl í tækni- og vísindagreinum. Síðar hefur hugmyndafræðin orðið hluti af alþjóðlegri menntaumræðu, meðal annars í gegnum OECD og alþjóðlegar mælingar á borð við PISA. Þar með er STEM ekki aðeins kennslufræðilegt hugtak heldur einnig pólitískt og efnahagslegt verkefni sem tengist hugmyndum um hagvöxt, nýsköpun og alþjóðlega samkeppni. Mikilvægi STEM greina fyrir framtíðarþróun samfélags og atvinnulífs er óumdeilt. Til að mæta vaxandi þörf fyrir þekkingu og færni á þessum sviðum þurfa íslensk stjórnvöld að ráðast í markvissar og langtímamiðaðar fjárfestingar sem styrkja nám og kennslu í STEM greinum. Þrátt fyrir aukna umræðu um STEM er ástæða til að spyrja hvort áhersla stjórnvalda á málaflokkinn endurspegli raunverulegan vilja til umbóta eða sé fyrst og fremst hluti af pólitískri orðræðu. Án markvissrar fjárfestingar í námi og kennslu STEM greina er hætt við að STEM verði áfram hentugt slagorð í umræðu um slakan árangur í PISA rannsóknum fremur en drifkraftur raunverulegra umbóta í íslensku menntakerfi. Höfundur er framhaldsskólakennari, háskólanemi og móðir. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skóla- og menntamál PISA-könnun Mest lesið Ástæðan fyrir ástandinu hjá SÁÁ Theódór S. Halldórsson Skoðun Halldór 19.09.2026 Halldór Raunveruleiki Wolt-sendla og gigg-hagkerfisins Katrin Þóra Jonsson,Joonas Tuompo Skoðun Hvers vegna er ég ekki kominn lengra? Sigurður Árni Reynisson Skoðun Ég er kominn heim - eða hvað? María Pétursdóttir,Ingólfur Már Magnússon Skoðun Allt landið eitt kjördæmi Gunnar Salvarsson Skoðun Sagan frá hinni hliðinni Sólveig Jancauskiene Skoðun Ég ætla ekki að verða sérfræðingur í salernispappír Haukur Logi Jóhannsson Skoðun Ferðastofur í gíslingu kjaradeilna: Hver á að borga brúsann? Ásdís Eir Guðmundsdóttir Skoðun Litlar ákvarðanir geta leitt til fleiri heilbrigðra æviára Thor Aspelund Skoðun Skoðun Skoðun Þegar „fjölmiðlastyrkir“ eru ekki fyrir alla fjölmiðla Hólmgeir Baldursson skrifar Skoðun Litlar ákvarðanir geta leitt til fleiri heilbrigðra æviára Thor Aspelund skrifar Skoðun Ferðastofur í gíslingu kjaradeilna: Hver á að borga brúsann? Ásdís Eir Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Allt landið eitt kjördæmi Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Ég ætla ekki að verða sérfræðingur í salernispappír Haukur Logi Jóhannsson skrifar Skoðun Ástæðan fyrir ástandinu hjá SÁÁ Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Hvers vegna er ég ekki kominn lengra? Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Sagan frá hinni hliðinni Sólveig Jancauskiene skrifar Skoðun Ég er kominn heim - eða hvað? María Pétursdóttir,Ingólfur Már Magnússon skrifar Skoðun Raunveruleiki Wolt-sendla og gigg-hagkerfisins Katrin Þóra Jonsson,Joonas Tuompo skrifar Skoðun Hvað ef internetið lokaði kl.18? Tinna Tómasdóttir skrifar Skoðun Nemandinn fær tíu – en hvað hefur hann lært? Bogi Ragnarsson skrifar Skoðun Nóttin bjargar ekki deginum – hún afhjúpar hann Grétar Þór Guðjohnsen skrifar Skoðun Excel-væðing mannlífsins Sanna Magdalena Mörtudóttir skrifar Skoðun Af hverju dagaði lagareldisfrumvarpið uppi? Ráðherrann og staðreyndirnar eru ekki alveg sammála Jóhann Helgi Stefánsson skrifar Skoðun Kópavogur er klár – en þið? Ásdís Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Þegar enginn veit Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Hvers konar Ísland viljum við byggja? Albertína Friðbjörg Elíasdóttir skrifar Skoðun Fjölmiðlahelsi Sigurður Örn Hilmarsson skrifar Skoðun Að horfa heim Vera Wonder Sölvadóttir skrifar Skoðun Bættar styrkjareglur í menningarborginni Reykjavík Rúnar Freyr Gíslason skrifar Skoðun EES eftir 29. ágúst 2026 Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun D-vítamín og nýju fötin keisarans Elísabet Reynisdóttir skrifar Skoðun Eitruð jákvæðni í boði menntakerfisins Andri Þorvarðarson skrifar Skoðun Kröfur eru umhyggja Brynjar Karl Sigurðsson skrifar Skoðun Ákall til stjórnvalda Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun „Er mér óhætt hér?” sjúklingaöryggi fatlaðs fólks Jana Birta Björnsdóttir skrifar Skoðun Viðskiptaráð með rörsýn á leigumarkaðinn Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Sáttamiðlun í sakamálum á Íslandi? Helgi Gunnlaugsson skrifar Skoðun Á Reykjavík að hafa þingmenn á Alþingi? Jón Bjarnason skrifar Sjá meira
Skoðun Ferðastofur í gíslingu kjaradeilna: Hver á að borga brúsann? Ásdís Eir Guðmundsdóttir skrifar
Skoðun Af hverju dagaði lagareldisfrumvarpið uppi? Ráðherrann og staðreyndirnar eru ekki alveg sammála Jóhann Helgi Stefánsson skrifar