Vélmenni ráðið til starfa og þú rekinn Rakel Sveinsdóttir skrifar 12. júní 2026 07:03 Lengi hefur verið vinsælt að birta fréttir í fjölmiðlum um ráðningar fólks í störf. En nú eru farnar að birtast fréttir um að vélmenni sé að hefja störf. Margt er því að breytast og mögulega góð tímasetning fyrir öll að efla sig í nýrri færni og þekkingu því svo mörg ný störf eru líka að verða til. Vísir/Getty Lengi hefur það verið nokkuð vinsælt efni í fjölmiðlum að birta fréttir um ráðningar á vinnustöðum. Í atvinnulífinu getur það jafnvel verið ákveðin staðfesting á mikilvægi þínu að fjölmiðlar birti um ráðninguna þína frétt.
Svo ekki sé talað um hversu gaman það er í litlu samfélagi að átta okkur á því hverjir eru hvað, jafnvel að kannast við viðkomandi eða vita einhver deili á þeim. En nú er öldin önnur. Því á RÚV í vikunni var fyrirsögn vel lesinnar fréttar hreinlega: „Vélmenni hefur störf á hjúkrunarheimili í Fossvogi.“ Sem þýðir að í staðinn fyrir að lesa frétt um að Pétur eða Páll, Anna eða Gunna sé að hefja störf segir fréttin frá nýjum starfsmanni: Vélmenni! Guð minn góður! hugsa nú einhverjir. Er staðan virkilega sú að svo mörg störf muni hverfa að fólk sé í hættu? Ekki síst nú þegar kólnun er á vinnumarkaði, nokkuð er um uppsagnir og fyrirséð er að meira verður af þeim næstu misseri. Fleiri störf verða til En rýnum í tölur áður en við leyfum óttanum að grípa okkur. Því þótt talað sé um að mjög mörg störf muni breytast vegna sjálfvirknivæðingar og gervigreindar er líklegt að fleiri ný störf verði til. Dæmi: Í skýrslunni Future of Jobs Report 2025 er áætlað að fram til ársins 2030 muni um 22 prósent starfa breytast vegna tækniframfara, lýðfræðilegra breytinga, grænna umskipta og annarra breytinga á vinnumarkaði. Gert er ráð fyrir að um 170 milljón ný störf verði til á sama tíma og um 92 milljón störf hverfi eða breytist verulega. Nettóniðurstaðan samkvæmt spánni er því aukning um 78 milljón störf á heimsvísu. Skýrslan bendir einnig á að stærsta áskorunin sé ekki skortur á störfum heldur færni. Nærri 40 prósent af þeirri færni sem starfsfólk notar í dag gæti þurft að breytast eða endurnýjast fyrir árið 2030. Það sem þetta í raun er að segja okkur er að í stað þess að óttast tækniframfarirnar eða hræðast að missa vinnuna okkar gæti gagnlegra viðhorf verið: Hvernig get ég þróað mína færni í samræmi við breytingarnar? Því ef rétt reynist að um 40% þeirrar færni sem starfsfólk notar í dag þurfi að breytast eða endurnýjast gæti reynst skynsamlegt að huga að því hvernig við styrkjum stöðu okkar á vinnumarkaði með því að bæta við okkur nýrri þekkingu og færni. Góðu ráðin Fimm einföld ráð til að draga úr ótta við gervigreindina gætu þessu tengt verið: Prófaðu tæknina sjálf(ur) í stað þess að óttast hana Haltu áfram að læra nýja hluti, jafnvel í litlum skrefum Ræktaðu mannlega hæfni sem erfitt er að sjálfvirknivæða Fylgstu með þróuninni í þinni starfsgrein Hugsaðu um starfsferilinn sem sífellda þróun fremur en fasta stöðu.
Gervigreind Tækni Vinnumarkaður Góðu ráðin Tengdar fréttir Ekkert plan: Mun gervigreindin borga tekjuskatt? Brynjólfur Borgar Jónsson, eigandi Data Lab, segir eina stærstu áskorunina við gervigreindina í dag vera að samfélagið sjálft sé ekki tilbúið fyrir hraðann í þróuninni. 28. maí 2026 07:02 Gervigreindin að afhjúpa stjórnendur og klóna Það hljómar kannski skringilega en mjög líklega verður staðan þannig fljótlega að öll munum við eiga okkar stafræna tvíbura eða klóna. 27. maí 2026 07:02 Ósýnilegir múrar: „Ekki nóg að segja bara að fólk eigi að vinna saman“ Fyrstu viðbrögðin okkar hljóta að vera: Það eru engir sýnilegir múrar á mínum vinnustað. Bara hinna. 22. maí 2026 07:01 Enn meiri breytingar: Yfirmenn klónaðir með gervigreind Það er ólíklegt að gervigreindin leysi stjórnendur af hólmi. En nú þegar eru stjórnendur víðast hvar farnir að nýta sér gervigreindina í margvíslegum tilgangi. 30. apríl 2026 07:00 Stóra apasjálfu-málið vekur upp enn fleiri spurningar Sitt sýndist hverjum um stóra apa-sjálfumálið hér um árið. Sem endaði sem margra ára mál fyrir dómstólum. 24. apríl 2026 07:04 Mest lesið Þurfi að taka leiðinlegar ákvarðanir Viðskipti innlent Ísland sjaldnast uppfyllt upptökuskilyrði fyrir evru Viðskipti innlent Hefja rannsókn á Ryanair Viðskipti erlent Vélmenni ráðið til starfa og þú rekinn Atvinnulíf Alvöru þægindi eftir átján holur Samstarf Hækka loðnuráðgjöf aftur í um 358 þúsund tonn Viðskipti innlent Halli ríkissjóðs eykst um tugi milljarða milli ára Viðskipti innlent Lækka verð á öllum súkkulaðivörum um tíu prósent Viðskipti innlent Nýjar íbúðir í Firði: Lúxus að búa í miðbæ Hafnarfjarðar Samstarf Björgvin kjörinn nýr formaður FHG Viðskipti innlent Fleiri fréttir Vélmenni ráðið til starfa og þú rekinn Meiri árangur í líkamsrækt og íþróttum með nýrri íslenskri tækni Fjárfestu í karllægum félögum og báðu síðan um fund með forstjóranum Staðalímyndir meira vandamál en kynslóðamunur Feðgin í Firðinum: „Pabbi er besti vinur minn“ Þúsund manna hátíðir ekkert mál en ein lítil kónguló skelfileg! Kynntust í janúar og kynna nýja lausn fyrir matvælaframleiðendur „Þetta er sögudrifinn söngleikur með rómantísku ívafi“ Þegar átta stunda vinnudagur og fimm daga vinnuvika þóttu stórhættulegar hugmyndir Fimm frumkvöðlar: Afarnir, pabbarnir og nú 10 ára sonurinn „Bað maðurinn minn þig um að spyrja mig að þessu?“ Ekkert plan: Mun gervigreindin borga tekjuskatt? Gervigreindin að afhjúpa stjórnendur og klóna „Ég er bara lögfræðingurinn sem dró stutta stráið“ „Myndi ráðleggja fólki að hlusta vel á maka sinn, fjölskyldu og sitt nánasta fólk“ Er blanda af Prins Valíant og Múmínálfinum Ósýnilegir múrar: „Ekki nóg að segja bara að fólk eigi að vinna saman“ Ekki allir geta sagt: „Ég græddi fúlgur fyrir fyrirtækið í dag“ Að læra af fimm mistökum Steve Jobs Eðlilegt að fólk vinni minna mánudag eftir kosningar Gift svo góðum grillara og sér því meira um innivinnuna Kosningastreita og stemning á vinnustöðum Eins og Steve Jobs hafi verslað í fataskápinn hans Dóttirin föst á amerískum tíma og minningar um ást og andarteppu Sjá meira
Ekkert plan: Mun gervigreindin borga tekjuskatt? Brynjólfur Borgar Jónsson, eigandi Data Lab, segir eina stærstu áskorunina við gervigreindina í dag vera að samfélagið sjálft sé ekki tilbúið fyrir hraðann í þróuninni. 28. maí 2026 07:02
Gervigreindin að afhjúpa stjórnendur og klóna Það hljómar kannski skringilega en mjög líklega verður staðan þannig fljótlega að öll munum við eiga okkar stafræna tvíbura eða klóna. 27. maí 2026 07:02
Ósýnilegir múrar: „Ekki nóg að segja bara að fólk eigi að vinna saman“ Fyrstu viðbrögðin okkar hljóta að vera: Það eru engir sýnilegir múrar á mínum vinnustað. Bara hinna. 22. maí 2026 07:01
Enn meiri breytingar: Yfirmenn klónaðir með gervigreind Það er ólíklegt að gervigreindin leysi stjórnendur af hólmi. En nú þegar eru stjórnendur víðast hvar farnir að nýta sér gervigreindina í margvíslegum tilgangi. 30. apríl 2026 07:00
Stóra apasjálfu-málið vekur upp enn fleiri spurningar Sitt sýndist hverjum um stóra apa-sjálfumálið hér um árið. Sem endaði sem margra ára mál fyrir dómstólum. 24. apríl 2026 07:04