Vilhjálmur sagði af sér þingmennsku Eiður Þór Árnason skrifar 8. júní 2026 17:52 Vilhjálmur kveður þingið eftir 13 ár en hann hefur einnig starfað sem lögreglumaður. Vísir/Vilhelm Vilhjálmur Árnason hefur gert forseta Alþingis grein fyrir afsögn sinni en hann hóf störf sem bæjarstjóri Reykjanesbæjar 2. júní. Vilhjálmur hefur verið þingmaður Sjálfstæðisflokksins fyrir Suðurkjördæmi frá árinu 2013 og var varaformaður þingflokksins.
Nýr meirihluti Sjálfstæðisflokksins og Miðflokksins tók við í Reykjanesbæ eftir nýafstaðnar sveitarstjórnarkosningar en Vilhjálmur var oddviti Sjálfstæðismanna. Miklar mannabreytingar hafa verið á þingflokki Sjálfstæðisflokksins síðustu misseri en innan við vika er liðin frá því að Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, fyrrverandi ráðherra og ritari flokksins, tilkynnti að hún myndi láta af þingmennsku. Vilhjálmur tók við af Áslaugu sem ritari Sjálfstæðisflokksins árið 2022. Þá kvaddi Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, fyrrverandi ráðherra og varaformaður Sjálfstæðisflokksins, þingið í apríl en hún hefur verið skipuð sendiherra. Bjarni Benediktsson, fyrrverandi forsætisráðherra og formaður flokksins, hætti á þingi í byrjun árs og starfar nú sem framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins. Vilhjálmur greinir frá afsögninni í færslu á Facebook-síðu sinni og þakkar fjölskyldu og kjósendum í Suðurkjördæmi fyrir stuðninginn í gegnum árin. Þar kemur fram að hann hafi síðast farið í ræðustól á fimmtudag og fjallað þar um samgöngumál, enda varið stórum hluta þingferilsins í störf umhverfis- og samgöngunefndar. „Að lokum vil ég ítreka þakklæti mitt til allra þeirra sem hafa stutt mig í gegnum árin og óska sérstaklega þingflokki Sjálfstæðisflokksins velfarnaðar í störfum sínum. Nú tekur við nýr og spennandi kafli í mínu lífi sem bæjarstjóri Reykjanesbæjar, stærsta sveitarfélags landsins utan höfuðborgarsvæðisins.“ Gegndi báðum störfum Fjallað hefur verið um þá ákvörðun Vilhjálms að segja ekki strax af sér þingmennsku og starfa samtímis sem bæjarstjóri og þingmaður í fjóra daga. Þingmenn sem hafa setið á þingi í minnst tvö kjörtímabil eiga rétt á biðlaunum í sex mánuði en samkvæmt reglum þingsins lækka þær eða falla niður ef fyrrverandi þingmaður fær annað starf innan hálfs árs. Í ljósi þess að mánaðartekjur Vilhjálms fyrir setu í bæjarstjórastóli nema um 2,8 milljónum króna á mánuði og eru þar með hærri en þingfararkaup falla biðlaunin niður samkvæmt þessum sömu reglum. Fréttin er í vinnslu.
Alþingi Reykjanesbær Vistaskipti Mest lesið Strunsaði úr viðtali: „Þú ert annaðhvort spillt eða heimsk“ Erlent Magga Friðriks leitar til almennings eftir stuðningi Innlent Marius látinn laus Erlent Sérsveitaraðgerð á Eskifirði Innlent „Svaraðu spurningunni“ Innlent Leit að arftaka Höllu Bergþóru hafin: „Kemur í ljós“ Innlent Enn í lífshættulegu ástandi Innlent Séra Guðni Már kveður Ísland Innlent „Beinin af Jónasi skipta andskotans engu máli“ Innlent Vilhjálmur sagði af sér þingmennsku Innlent Fleiri fréttir Vilhjálmur sagði af sér þingmennsku Andmæla fundarboði aðalfundar Sósíalista Konukot og börn í brottfararstöð í brennidepli í kvöldfréttum Séra Guðni Már kveður Ísland Magga Friðriks leitar til almennings eftir stuðningi „Svaraðu spurningunni“ Sérsveitaraðgerð á Eskifirði Tjón upp á hundrað milljónir og eldsupptök ráðgáta Nær tvöföldun umsókna um meistaranám „Beinin af Jónasi skipta andskotans engu máli“ Verðlaunuðu Evrópusinna fyrir að sporna gegn óreiðu Leit að arftaka Höllu Bergþóru hafin: „Kemur í ljós“ Eldur í vinnuvél á Álfsnesi Vildi vita hvort varnarsamningi við Bandaríkin yrði teflt í tvísýnu með ESB-viðræðum Enn í lífshættulegu ástandi Lýsingar á ófremdarástandi við Konukot komi á óvart ESB á Alþingi, Konukot og sáttur Bubbi Samkomulag um landaheitið Ísland undirritað „Grundvallaratriði í rekstri að fólk komist til og frá“ Eftirlýstur hrækti á starfsmann skemmtistaðar og lögreglu Drengurinn fannst heill á húfi „Ofurnjósnaskip Pútíns“ í íslenskri lögsögu Framtíð moskítóflugunnar á Íslandi óljós en ræðst á næstu vikum Taka L-listann með sér í meirihluta Óumflýjanlegt að atvinnuleysi aukist Óttaslegnir íbúar binda vonir við nýjan meirihluta Hætt við sýningarflug Airbus-þotu yfir Reykjavík Braut kynferðislega á stúlku sem lá með skerta meðvitund á bráðamóttökunni Aðstoðuðu ferðamenn að Fjallabaki „Það er prjónabylting í gangi á Íslandi“ Sjá meira