„Það má herma“ Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar 10. júní 2026 20:00 Ásthildur Bára Jensdóttir er viðmælandi í tískuspjalli hér á Vísi. Hún sækir meðal annars innblástur til kærustu sinnar Sóldaggar sem er hér með henni á myndinni. Instagram „Eftir því sem ég verð öruggari í eigin skinni þá tek ég fleiri sénsa og það er svo miklu skemmtilegra,“ segir rekstrarþróunarstjórinn Ásthildur Bára Jensdóttir sem er mikil tískupæja og alltaf vel til höfð. Ásthildur rekur sitt eigið fyrirtæki sem sérhæfir sig í markaðsráðgjöf og hefur alla tíð haft áhuga á klæðaburði.
Uppáhalds flík Ásthildar er í eigu Sóldaggar kærustu hennar og á undanförnum árum hefur Ásthildur þorað að fara meira út fyrir kassann í fatavali. Ásthildur er með glæsilegan stíl.Aðsend Hvað finnst þér skemmtilegast við tískuna? Ég elska hvernig tíska getur aukið sjálfstraust og gefið fólki tækifæri til að tjá sig. Það er svo fallegt að sjá fólki líða vel í eigin skinni og sýna sinn einstaka stíl. View this post on Instagram A post shared by Ásthildur Bára Jensdóttir (@asthildurbara) Hver er uppáhalds flíkin þín og af hverju? Ætli það sé ekki Ottolinger-jakkinn sem ég gaf kærustunni minni í jólagjöf. Ekki beint mín flík, en hann er bara svo ótrúlega kúl og ég elska að vera í honum af því hún á hann. Ásthildur með Sóldöggu í Ottilinger jakkanum hennar.Aðsend Eyðirðu miklum tíma í að velja föt hverju sinni? Stundum, stundum ekki. Mér finnst ég oftast velja rétt þegar ég eyði minni tíma í að velja og fer bara 100 prósent eftir skapinu sem ég er í. Ásthildi líður best þegar hún klæðir sig eftir skapi.Aðsend Hvernig myndirðu lýsa stílnum þínum? „Basic bitch“ með smá „edge“. View this post on Instagram A post shared by Ásthildur Bára Jensdóttir (@asthildurbara) Hefur stíllinn þinn breyst mikið í gegnum tíðina og hvernig þá? Já, eftir því sem ég verð öruggari í eigin skinni þá tek ég fleiri sénsa og það er svo miklu skemmtilegra. Ásthildur segir skemmtilegra að taka sénsa.Aðsend Nýturðu þess að klæða þig upp? Já, bæði fyrir tilefni og ég elska líka að vera bara í nettum kósífötum við ekkert tilefni, fyrir sjálfa mig. View this post on Instagram A post shared by Ásthildur Bára Jensdóttir (@asthildurbara) Hvað skiptir þig mestu máli í klæðaburði? Að vera í hreinum fötum. Þú finnur Ásthildi ekki í skítugum fötum.Aðsend Hvaðan sækirðu innblástur í tískunni? Fyrst og fremst til vinkvenna minna en svo er Andrá Reykjavík líka algjör leiðarvísir fyrir mig. Ásthildur og Sóldögg glæsilegar í brúðkaupi í Frakklandi. Ásthildur er mjög hrifin af versluninni Andrá Reykjavík.Aðsend Ertu með einhver boð og bönn þegar það kemur að klæðaburði? Þú sérð mig aldrei í bleiku. View this post on Instagram A post shared by Ásthildur Bára Jensdóttir (@asthildurbara) Hver er eftirminnilegasta flík sem þú hefur klæðst og af hverju? Eyland-leðursamfestingur sem vinkona mín Ása Ninna gerði. Fór í iconic outfitti á iconic aldamótatónleika með Birgittu Haukdal og var semí í stíl við hana. Ásthildur elskar Eyland. Hér er hún á pæjukvöldi með Töru Sif á Apótekinu.Aðsend Hvað finnst þér heitast fyrir sumarið? Pokabuxur (e. baggy jeans) og flip-flop sandalar, capri buxur og kisuhælar (e. kitten heels). Ásthildur er heit fyrir pokabuxum og flip flop sandölum.Aðsend Býrðu yfir einhverju góðu ráði þegar það kemur að tísku? Vertu þú sjálf/t/ur og það má herma.
Tíska og hönnun Mest lesið Hættur með fimmtíu árum yngri kærustunni Lífið Fundu ástina á Domino's Lífið „Ég er enn að venjast andlitinu á mér“ Bíó og sjónvarp Hinsegin ást í loftinu Lífið Klöppuðu fyrir ofan höfuð á Frikka Dór Lífið Ekki gálgadans heldur hæ dúddelí dæ Gagnrýni Hvað veistu um… eyjar við Ísland? Lífið Stjörnurnar fögnuðu flúruðum Maroni Tónlist „Ókrýndir hip-hop kóngar Íslands“ halda 20 ára afmælistónleika Tónlist Arnór Sig kominn á fast Lífið Fleiri fréttir Þessi eru tilnefnd til Hönnunarverðlauna Íslands Stundum gott að fara öruggu leiðina Sturluð skvísulæti í stórafmæli Góðgerðartreyja til styrktar Ingvari hönnuð af 66° Norður Verður að geta hent sér í hnébeygju Stal senunni í sex milljarða króna brjóstahaldara Ákvað strax að hann ætlaði ekki að fela stómað „Það er smá töffari í mér“ Barnaspítalabindi Billy stal senunni Gellustælar og íslenskar listagyðjur í París Kristrún valdi Victoriu Beckham Fundu hvora aðra í prjónaskapnum Sjá meira