Ísland vísar veginn í beinni nýtingu jarðhita Nótt Thorberg skrifar 10. júní 2026 14:00 Þegar rætt er um orkuskipti er athyglin oft á raforku, vindorku og nýjum tæknilausnum. Minna fer fyrir umræðu um eina áhrifamestu orku- og loftslagslausn sem Ísland hefur byggt upp á síðustu öld, beina nýtingu jarðhita. Fyrir Íslendinga er heitt vatn svo sjálfsagður hluti af daglegu lífi að við hugsum sjaldan út í þá umbyltingu á lífsgæðum sem nýting jarðhitans hafði í för með sér. Með jarðhitanum höfum við hitað heimili, skóla, sjúkrahús, sundlaugar og atvinnuhúsnæði án þess að reiða okkur á innflutt jarðefnaeldsneyti. Við höfum byggt upp samfélag sem nýtur meira orkuöryggis, meira orkusjálfstæðis og minni losunar en ella á hagkvæmara verði en flestar þjóðir. Þessi árangur varð ekki til fyrir tilviljun. Hann er afrakstur framsýni fyrri kynslóða og áratuga markvissrar uppbyggingar þar sem stjórnvöld, sveitarfélög, orkufyrirtæki, vísindasamfélagið og atvinnulífið unnu saman að því að umbreyta íslensku samfélagi. Þessar fjárfestingar lögðu grunninn að einni merkustu orkuskiptasögu heims Nú stendur heimurinn frammi fyrir sambærilegum áskorunum og Ísland glímdi við á sínum tíma. Ríki um allan heim leita leiða til að auka orkuöryggi, draga úr notkun jarðefnaeldsneytis og tryggja hagkvæmar orkulausnir fyrir heimili og atvinnulíf. Þar getur íslensk reynsla verið í lykilhlutverki. Út er komin ný hvítbók um beina nýtingu jarðhita sem sýnir hvernig nýta má jarðvarma til að styðja við sjálfbær orkuskipti og verðmætasköpun. Hvítbókin var unnin í samstarfi fjölmargra aðila innan Grænvangs en hún dregur fram þá reynslu sem Ísland hefur aflað sér undanfarna áratugi og hvernig hún getur nýst öðrum þjóðum sem standa frammi fyrir sömu verkefnum. En framtíð jarðhitans snýst ekki aðeins um að segja söguna af því sem þegar hefur verið gert. Hún snýst ekki síður um það sem við erum að gera núna. Á Íslandi standa yfir fjölmörg verkefni sem miða að því að efla nýtingu jarðhita enn frekar. Stjórnvöld hafa hrundið af stað stærsta jarðhitaátaki þessarar aldar til að jafna leikinn í húshitunarkostnaði og tryggja fleiri landsmönnum aðgang að þessari hagkvæmu og endurnýjanlegu auðlind. Samhliða fjárfesta orkufyrirtæki, sveitarfélög og atvinnulíf í rannsóknum á nýjum svæðum, þróun nýrrar borunar- og vinnslutækni og lausnum sem auka nýtingu varma sem áður var vannýttur. Jafnframt er unnið að uppbyggingu og eflingu hitaveitna á kaldari svæðum þannig að fleiri samfélög geti notið þeirra kosta sem felast í öruggri og hagkvæmri húshitun. Þá gegnir jarðhitinn sífellt stærra hlutverki í nýsköpun og atvinnuuppbyggingu. Hann styður við gróðurhúsarækt, matvælaframleiðslu, fiskeldi og fjölbreytta iðnaðarstarfsemi. Með því skapast verðmæti, störf og útflutningstekjur sem byggja á sjálfbærri nýtingu innlendrar auðlindar og styrkja samkeppnishæfni landsins. Þekkingin sem hefur byggst upp hér á landi er jafnframt orðin mikilvæg útflutningsvara. Íslensk fyrirtæki, ráðgjafar og sérfræðingar taka þátt í jarðhitaverkefnum víða um heim og aðstoða önnur ríki við að byggja upp hitaveitur, þróa jarðhitasvæði og nýta auðlindir sínar á sjálfbæran hátt. Með því leggur Ísland ekki aðeins sitt af mörkum til alþjóðlegra orkuskipta heldur skapar einnig ný tækifæri fyrir íslenska þekkingu og sérfræðiþjónustu. Þess vegna er mikilvægt að við höldum áfram að fjárfesta í rannsóknum, menntun, nýsköpun og innviðum á sviði jarðhita. Forysta Íslands byggist ekki eingöngu á því að búa yfir auðlindinni heldur á getu okkar til að þróa hana áfram, nýta hana skynsamlega og miðla þekkingunni til annarra. Í þessari viku verður hvítbókin kynnt á World Geothermal Congress í Calgary í Kanada, þar sem íslensk fyrirtæki og stofnanir munu kynna lausnir sínar fyrir alþjóðlegum gestum og eiga samtal um tækifæri til aukins samstarfs á sviði orkuskipta. Þetta er mikilvægt tækifæri til að sýna hvað Ísland hefur fram að færa, en jafnframt áminning um að forysta er ekki varanlegt ástand heldur þarf stöðugt að rækta og endurnýja. Í heimi þar sem eftirspurn eftir öruggri, hagkvæmri og hreinni orku fer ört vaxandi hefur Ísland einstakt tækifæri til að leiða áfram þróun beinnar jarðhitanýtingar. Með því að halda áfram uppbyggingu hér heima og styðja aðrar þjóðir í að nýta eigin jarðhitaauðlindir getum við skapað verðmæti, styrkt orkuskipti og sýnt í verki hvernig jarðhiti geti orðið hluti af lausninni á heimsvísu. Höfundur er forstöðumaður Grænvangs. Grænvangur er samstarfsvettvangur atvinnulífs og stjórnvalda í loftslagsmálum og grænum lausnum. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Nótt Thorberg Mest lesið Ástæðan fyrir ástandinu hjá SÁÁ Theódór S. Halldórsson Skoðun Halldór 19.09.2026 Halldór Raunveruleiki Wolt-sendla og gigg-hagkerfisins Katrin Þóra Jonsson,Joonas Tuompo Skoðun Hvers vegna er ég ekki kominn lengra? Sigurður Árni Reynisson Skoðun Allt landið eitt kjördæmi Gunnar Salvarsson Skoðun Litlar ákvarðanir geta leitt til fleiri heilbrigðra æviára Thor Aspelund Skoðun Ferðastofur í gíslingu kjaradeilna: Hver á að borga brúsann? Ásdís Eir Guðmundsdóttir Skoðun Ég ætla ekki að verða sérfræðingur í salernispappír Haukur Logi Jóhannsson Skoðun Þegar „fjölmiðlastyrkir“ eru ekki fyrir alla fjölmiðla Hólmgeir Baldursson Skoðun Ég er kominn heim - eða hvað? María Pétursdóttir,Ingólfur Már Magnússon Skoðun Skoðun Skoðun Þegar „fjölmiðlastyrkir“ eru ekki fyrir alla fjölmiðla Hólmgeir Baldursson skrifar Skoðun Litlar ákvarðanir geta leitt til fleiri heilbrigðra æviára Thor Aspelund skrifar Skoðun Ferðastofur í gíslingu kjaradeilna: Hver á að borga brúsann? Ásdís Eir Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Allt landið eitt kjördæmi Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Ég ætla ekki að verða sérfræðingur í salernispappír Haukur Logi Jóhannsson skrifar Skoðun Ástæðan fyrir ástandinu hjá SÁÁ Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Hvers vegna er ég ekki kominn lengra? Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Sagan frá hinni hliðinni Sólveig Jancauskiene skrifar Skoðun Ég er kominn heim - eða hvað? María Pétursdóttir,Ingólfur Már Magnússon skrifar Skoðun Raunveruleiki Wolt-sendla og gigg-hagkerfisins Katrin Þóra Jonsson,Joonas Tuompo skrifar Skoðun Hvað ef internetið lokaði kl.18? Tinna Tómasdóttir skrifar Skoðun Nemandinn fær tíu – en hvað hefur hann lært? Bogi Ragnarsson skrifar Skoðun Nóttin bjargar ekki deginum – hún afhjúpar hann Grétar Þór Guðjohnsen skrifar Skoðun Excel-væðing mannlífsins Sanna Magdalena Mörtudóttir skrifar Skoðun Af hverju dagaði lagareldisfrumvarpið uppi? Ráðherrann og staðreyndirnar eru ekki alveg sammála Jóhann Helgi Stefánsson skrifar Skoðun Kópavogur er klár – en þið? Ásdís Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Þegar enginn veit Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Hvers konar Ísland viljum við byggja? Albertína Friðbjörg Elíasdóttir skrifar Skoðun Fjölmiðlahelsi Sigurður Örn Hilmarsson skrifar Skoðun Að horfa heim Vera Wonder Sölvadóttir skrifar Skoðun Bættar styrkjareglur í menningarborginni Reykjavík Rúnar Freyr Gíslason skrifar Skoðun EES eftir 29. ágúst 2026 Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun D-vítamín og nýju fötin keisarans Elísabet Reynisdóttir skrifar Skoðun Eitruð jákvæðni í boði menntakerfisins Andri Þorvarðarson skrifar Skoðun Kröfur eru umhyggja Brynjar Karl Sigurðsson skrifar Skoðun Ákall til stjórnvalda Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun „Er mér óhætt hér?” sjúklingaöryggi fatlaðs fólks Jana Birta Björnsdóttir skrifar Skoðun Viðskiptaráð með rörsýn á leigumarkaðinn Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Sáttamiðlun í sakamálum á Íslandi? Helgi Gunnlaugsson skrifar Skoðun Á Reykjavík að hafa þingmenn á Alþingi? Jón Bjarnason skrifar Sjá meira
Skoðun Ferðastofur í gíslingu kjaradeilna: Hver á að borga brúsann? Ásdís Eir Guðmundsdóttir skrifar
Skoðun Af hverju dagaði lagareldisfrumvarpið uppi? Ráðherrann og staðreyndirnar eru ekki alveg sammála Jóhann Helgi Stefánsson skrifar