Handbolti

Strákarnir okkar stál­heppnir með riðil á HM

Sindri Sverrisson skrifar
Strákarnir okkar hefja HM í Magdeburg í janúar.
Strákarnir okkar hefja HM í Magdeburg í janúar. EPA/JOHAN NILSSON

Ísland hafði heppnina með sér þegar dregið var í riðla fyrir HM karla í handbolta í dag. Mótið fer fram í Þýskalandi í byrjun næsta árs.

Ísland fékk Norður-Makedóníu úr næstefsta styrkleikaflokki, í stað til dæmis Frakklands eða Spánar, og svo einnig Japan og Barein í sinn riðil.

Ef þessi riðill hljómar kunnuglega þá má benda á að á HM 2019 var Ísland einmitt einnig með Norður-Makedóníu, Japan og Barein í riðli, en þá í sex liða riðli þar sem einnig voru Spánn og Króatía.

Lærisveinar Dags Sigurðssonar í Króatíu voru ekki eins heppnir en þeir fengu Spán, Síle og Tyrkland með sér í C-riðil. Dagur og Aron Kristjánsson gætu svo mögulega mæst í milliriðli því lærisveinar Arons í Kúveit eru í D-riðli, með Argentínu, Frakklandi og Brasilíu.

Dregið var í riðla í München í dag, í beinu streymi á Vísi, og hér að neðan má sjá riðlana.


Riðlarnir á HM í Þýskalandi 2027

A-riðill í München:

  • Þýskaland
  • Serbía
  • Túnis
  • Úrúgvæ

B-riðill í Stuttgart:

  • Egyptaland
  • Ítalía
  • Grænhöfðaeyjar
  • Sádi-Arabía

C-riðill í München:

  • Króatía
  • Spánn
  • Síle
  • Tyrkland

D-riðill í Stuttgart:

  • Argentína
  • Frakkland
  • Brasilía
  • Kúveit

E-riðill í Kiel:

  • Svíþjóð
  • Noregur
  • Grikkland
  • Katar

F-riðill í Magdeburg:

  • Portúgal
  • Færeyjar
  • Pólland
  • Alsír

G-riðill í Kiel:

  • Danmörk
  • Slóvenía
  • Bandaríkin
  • Angóla

H-riðill í Magdeburg:

  • Ísland
  • Norður-Makedónía
  • Barein
  • Japan

Gestgjafar HM, Þjóðverjar, höfðu þegar ákveðið að Ísland yrði í H-riðli sem spilaður verður í Magdeburg.

Ísland var í efsta styrkleikaflokki og gat því ekki fengið aðra þjóð úr þeim flokki í sinn riðil en fékk einn mótherja úr 2., 3. og 4. flokki.

Milliriðil með Dönum bíður

Þrjú af fjórum liðum úr H-riðlinum komast áfram í milliriðil og spila þar með þremur liðum úr G-riðli, í Hannover. Í þeim riðli eru meðal annars ríkjandi meistarar Danmerkur en einnig Slóvenía, Angóla og Bandaríkin.

Alls spila 32 lið á HM, í átta fjögurra liða riðlum. Þrjú lið fara áfram úr hverjum riðli og myndast þá fjórir sex liða milliriðlar. 

Úr hverjum milliriðli komast tvö lið áfram í 8-liða útsláttarkeppni sem öll fer fram í Lanxess Arena í Köln.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×