Sport

Dag­skráin: Stærsta boxmót ársins á Ís­landi

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Það verður ekkert gefið eftir í hringnum á Ásvöllum í kvöld.
Það verður ekkert gefið eftir í hringnum á Ásvöllum í kvöld. Icebox

Það eru beinar útsendingar á sportstöðvunum í dag og kvöld eins og vanalega á föstudögum.

Icebox, stærsta boxmót ársins á Íslandi, á kvöldið en það verður í beinni í kvöld og nú frá nýjum stað.

Icebox verður haldið aftur í sjöunda sinn og nú í nýjum sal í Ólafssal á Ásvöllum.

Viðburðurinn hefur orðið flottari hvert sinn og samkvæmt mörgum sem þekkja til er líklegt að Icebox sé orðinn stærsti viðburður í áhugamannahnefaleikum í Evrópu.

Það hefur selst upp á síðustu viðburði og lítil hætta á öðru í þetta skiptið.

Það verður einnig sýnt frá æfingum fyrir Barcelona-kappaksturinn í Formúlu 1.

Hér fyrir neðan má sjá yfirlit yfir beinar útsendingar á sportstöðvunum í dag.

Sýn Sport

Klukkan 19.00 hefst bein útsending frá upphitunarbardögum á Icebox, stærsta boxmóti ársins á Íslandi.

Klukkan 20.30 hefst bein útsending frá aðalhlutanum á Icebox, stærsta boxmóti ársins á Íslandi.

SÝN Sport 4

Klukkan 15.00 hefst bein útsending frá Dow Championship-golfmótinu á LPGA-mótaröðinni.

Klukkan 19.00 hefst bein útsending frá Meijer LPGA Classic-golfmótinu á LPGA-mótaröðinni.

SÝN Sport Viaplay

Klukkan 11.25 hefst bein útsending frá fyrstu æfingu fyrir Barcelona-kappaksturinn í Formúlu 1.

Klukkan 14.55 hefst bein útsending frá annarri æfingu fyrir Barcelona-kappaksturinn í Formúlu 1.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×