Körfubolti

Stuðnings­menn Knicks köstuðu eggi í Wembanyama

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Victor Wembanyama og félagar í San Antonio Spurs hafa misst niður gott forskot í öllum þremur tapleikjum sínum á móti New York Knicks í úrslitaeinvíginu.
Victor Wembanyama og félagar í San Antonio Spurs hafa misst niður gott forskot í öllum þremur tapleikjum sínum á móti New York Knicks í úrslitaeinvíginu. Getty/Al Bello

Victor Wembanyama átti hræðilegt kvöld þegar hann og félagar hans í San Antion Spurs hentu frá sér 29 stiga forystu og lentu 3-1 undir á móti New York Knicks. Kvöldið varð heldur ekkert betra þegar hann sneri aftur á hótelið sitt þar sem hann varð fyrir púi frá háðsglósum aðdáenda Knicks og næstum því fyrir fljúgandi eggi.

Myndband sem deilt var á netinu sýndi að minnsta kosti einu eggi kastað í átt að ofurstjörnu San Antonio Spurs þegar hann gekk inn á hótelið sitt, umkringdur öryggisvörðum, eftir tap liðsins í fjórða leik gegn Knicks í úrslitakeppni NBA.

Ekki var ljóst hver kastaði egginu. Myndbandið sýndi háðsglósa aðdáendur þyrpast að hótelinu í nokkrum húsaröðum sunnan við Madison Square Garden. 

Nokkrum sekúndum eftir að eggið brotnaði á götuskilti sneri Wembanyama sér við og horfðist í augu við mann sem stóð nálægt inngangi hótelsins, áður en hann hélt áfram inn.

Atvikið átti sér stað í kjölfar sögulegs hruns Spurs, sem nú eru á barmi þess að falla úr keppni eftir að hafa misst niður 29 stiga forystu gegn Knicks. Wembanyama misnotaði tvö mikilvæg vítaskot á lokamínútum leiksins.

Sögulegur sigur Knicks leiddi til óreiðu og fagnaðarláta víðs vegar um New York-borg, þar sem himinlifandi aðdáendur fylltu göturnar, skutu upp flugeldum, klifruðu upp ljósastaura og lentu stundum í átökum við lögreglu.

Að sögn lögreglunnar í New York voru 56 manns teknir í gæsluvarðhald fyrir ákærur sem náðu frá líkamsárás til óspekta.

„Enn og aftur var mikill mannfjöldi sem sýndi af sér ótrúlega kærulausa og hættulega hegðun í gærkvöldi, bæði á meðan og eftir leikinn,“ sagði lögreglan í yfirlýsingu.

Talsmaður lögreglunnar í New York sagði að hún hefði engar upplýsingar um eggjaatvikið.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×