„Við getum alveg fullyrt það að sumarið sé komið“ Lillý Valgerður Pétursdóttir skrifar 12. júní 2026 13:16 Blíða er í höfuðborginni í dag. Vísir/Anton Veðrið mun leika við landsmenn víðast hvar um helgina en í morgun mældist hitinn á Patreksfirði sautján stig. Veðurfræðingur segir engum blöðum um það að fletta að sumarið sé komið og forstöðumaður sundlaugar á von á að gestir leggi undir sig sólbekkina í dag.
Fínasta veður er víðast hvar á landinu núna og helgarspáin góð. „Það er sums staðar dálítill strekkingur og það hefur nú orðið hvað hlýjast í morgun á Patreksfirði, þar var 17 stig í morgun og fer enn hækkandi. Það er líka ágætt á Suður- og Vesturlandi, það er reyndar dumbungur og kaldara um norðaustanvert landið. En það er svona spurning hvað gerist suðvestanlands á höfuðborgarsvæðinu,“ segir Einar Sveinbjörnsson veðurfræðingur. Þannig sé útlit fyrir að hafgola komi inn með deginum. „Þannig að spár um að hiti gæti orðið allt að 20 stig eru nú ótrúverðugar, þannig að við erum kannski að meira tala um 15-16, en engu að síður bara fínasta veður.“ Hitinn gæti þó náð 20 stigum í fyrsta sinn þetta sumarið í uppsveitum Suðurlands í dag. „Við getum alveg fullyrt það að sumarið sé komið, ég held að það sé engum blöðum um það að fletta, það hefur verið það hlýtt undanfarna daga, líka raki í lofti og maður sér bara hvernig gróðurinn æðir áfram og ef það er ekki sumartengt þá veit ég ekki hvað.“ Búast má við að nóg verði að gera í sundlaugum landsins að minnsta kosti framan af degi. „Þegar það er gott veður og jú, það er gott uv, eins og unga fólkið segir, þá náttúrulega fyllast allir sólbekkir,“ egir Anna Kristín Sigurðardóttir, forstöðumaður Vesturbæjarlaugar, en alla jafna sé létt yfir öllum á svona sólardögum. „Það er mikið líf og svo er náttúrulega að koma leikjanámskeið inn á fullu og það er fullt af börnum yfir daginn. Þannig að það er mikið líf og fjör og fólk er að njóta sólar. En það er iðulega svona góð stemning í fólki, þú veist þó að það sé múgur og margmenni, þá er svona fólk alla jafna fólk svona glatt og jákvætt og líður vel.“ Einar segir að búast megi við því að það kólni á ný eftir helgi. „Það má kannski reikna með því að það halli sér svona meira í einhvers konar norðanáttir og svalara veður um miðja vikuna, þá er nú 17. júní, og það verði heldur kaldara veður síðari hluta vikunnar en við erum að tala um núna.“
Veður Sundlaugar og baðlón Reykjavík Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Innlent Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli Innlent Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Innlent Fleiri fréttir Sé óásættanlegt að vændiskaupendur hafi sloppið með sekt „Hann hótaði að drepa okkur“ Hinn látni hafi átt óvini vegna fíkniefnaviðskipta Lögreglumenn fari huldu höfði af ótta við ofbeldi Forvitinn minnihluti styggir bæjarstjórn: „Sláandi tölfræði“ Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Miðflokkurinn bætir við sig fylgi Skoða fæðingarorlofsmálin Dragi uppsagnirnar til baka Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Þrír handteknir fyrir rán Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk „Fræða en ekki hræða“ „Það er öllum ljóst að hann hefur frekar verið þeirra megin“ Fullyrða að Daði Már hafi logið að þinginu „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Kosningar í Bandaríkjunum og utanríkisráðherra ræðir Rússa Skipaður formaður 6. áfanga rammaáætlunar Reikna með þrettán milljarða afgangi á næsta ári Fluttur með björgunarskipi þegar þyrlan gat ekki lent vegna þoku Kynntu fjárhagsáætlun borgarinnar Kolbeinsey lifir enn þrátt fyrir spádóma um annað Játaði að hafa makað saur á hurðarhúna Sjá meira