Olíuverð lækkar eftir fregnir af samkomulagi Kjartan Kjartansson skrifar 15. júní 2026 06:28 Olíutankar í Þýskalandi. Verð á olíu hefur verið afar sveiflukennt frá því að Bandaríkin og Ísrael réðust með vopnum á Íran í vetur. Vísir/EPA Verð á olíu lækkaði þegar markaðir í Asíu opnuðu í nótt eftir að tilkynnt var um að Bandaríkjastjórn og klerkastjórnin í Íran hefðu náð samkomulagi um að opna Hormússund. Töluverð óvissa ríkir þó enn um hvað samkomulagið felur í sér og hvort það haldi.
Hráolía úr Norðursjó lækkaði um 4,3 prósent en bandarísk um 4,9 prósent, að því er segir í frétt breska ríkisútvarpsins. Heimsmarkaðsverð á olíu hefur tekið miklum sveiflum á undanförnum mánuðum frá því að Bandaríkin og Ísrael réðust á Íran og Íranir brugðust við með því að ráðast á skip á Hormússundi, einni helstu flutningaskipaleið heimsins með olíu. Stjórnvöld í Pakistan tilkynntu í gærkvöldi að þau hefðu haft milligöngu um samkomulag á milli Bandaríkjamanna og Írana. Skrifa eigi undir samkomulagið við formlega athöfn í Sviss á föstudag. Donald Trump Bandaríkjaforseti fullyrti í kjölfarið að olían ætti eftir að „flæða aftur“. Hann hefur þó ekki verið áreiðanlegasti sögumaðurinn um stöðu viðræðna við Írana. Sérfræðingar segja að jafnvel þótt samkomulagið haldi komist olíuflutningar um sundið ekki strax aftur á fullan skrið. Fyrst þurfti að hreinsa neðansjávarsprengjur sem Íranir komu fyrir en það gæti tekið allt frá nokkrum vikum upp í hálft ár. Áður en stríðsbrölt Bandaríkjamanna og Ísraela hófst í febrúar gekk tunnan á Norðursjávarolíu kaupum og sölum fyrir um sjötíu dollara. Verðið náði hæst 120 dollurum á tunnu en er nú rúmlega áttatíu dollarar.
Jarðefnaeldsneyti Bensín og olía Íran Bandaríkin Árásir Bandaríkjanna og Ísraels á Íran Loftslagsmál Mest lesið Karl Wernersson opnar sig Viðskipti innlent Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Viðskipti innlent Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Viðskipti innlent Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Viðskipti innlent Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Viðskipti innlent Yfir hundrað prósenta munur á verði fyrir umfelgun Neytendur Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Viðskipti innlent Vinkonur í bissness: Búnar að yfirtaka bílskúr foreldranna Atvinnulíf Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Viðskipti innlent 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Viðskipti innlent Fleiri fréttir „Stærsta tölvuinnbrot sögunnar“ hjá rafmyntarisa Lagarde hættir snemma sem seðlabankastjóri Eigandi Toblerone í mál við breskan súkkulaðiframleiðanda Bjóða fjórðungi starfsfólks Microsoft starfslokasamninga Norskir fjölmiðlar í hart við Meta EA lokar einu þekktasta leikjafyrirtæki heims Meta sektað um þrjú þúsund milljarða króna Skoða að sameina Tesla og SpaceX Klámfengið spjallmenni Zuckerbergs vekur ugg innan klámgeirans Sýndu fljúgandi Roadster Netflix segir upp þúsund starfsmönnum Starfsmaður OpenAI rekinn fyrir njósnir Bein útsending: Hver hlýtur hagfræðiverðlaun sænska seðlabankans? Adidas í mál vegna fjögurra randa hönnunar Tölvuþrjótarnir hafi ekki komist yfir kortanúmer Notendur ASOS fá tilkynningu frá meintum tölvuþrjótum Paramount og Warner Bros. heyra brátt sögunni til G7 setja hundrað milljón tunnur á markaðinn Sjá meira