Bláa lónið festir kaup á Arctic Adventures og stefnir á markað Eiður Þór Árnason skrifar 16. júní 2026 14:05 Ásgeir Baldurs, forstjóri Arctic Adventures, og Sigríður Margrét Oddsdóttir, forstjóri Bláa lónsins. aðsend Bláa lónið hefur fest kaup á ferðaþjónustufyrirtækinu Arctic Adventures og er stefnt að samruna fyrirtækjanna. Þá hefur Bláa lónið hafið formlegan undirbúning að skráningu félagsins á íslenskan hlutabréfamarkað.
Þetta kemur fram í tilkynningu en kaupin eru gerð með fyrirvara um áreiðanleikakönnun á báðum félögunum, samþykki Samkeppniseftirlitsins og samþykki hluthafafunda félaganna. Innan við vika er liðin frá því að tilkynnt var að Arctic Adventures hf. hefði slitið viðræðum við Kynnisferðir hf. um mögulegan samruna félaganna. Arctic Adventures sérhæfir sig á sviði ævintýra- og afþreyingarferðaþjónustu á Íslandi og rekur meðal annars vinsæla áfangastaði á borð við Fjaðrárgljúfur, Kerið og Raufarhólshelli. Markmið stjórnenda er að úr verði öflugt ferðaþjónustufyrirtæki og „leiðandi afl í rekstri og þróun íslenskrar upplifunar- og vellíðunarferðamennsku.“ Bláa lónið hf. á, auk samnefnds baðlóns og nærliggjandi hótels, húðvörufyrirtæki og hótel við Kerlingarfjöll, í Hrauneyjum og Hoffelli en við það síðastnefnda má einnig finna böð. Þá vinnur fyrirtækið að uppbyggingu hótels í Þjórsárdal og baðstaðs við Hoffellslón í Hornafirði. Samanlagðar tekjur félaganna voru um 34,3 milljarðar króna á árinu 2025 og samanlagður fjöldi stöðugilda um 1.120, að því er fram kemur í tilkynningu. Heildarfjöldi stöðugilda hjá Bláa lóninu er 780 og 340 hjá Arctic Adventures. Vill staðsetja Ísland sem einn fremsta upplifunaráfangastað heims „Það er markmið okkar að Bláa Lónið leiði áfram uppbyggingu og fjárfestingar sem staðsetja Ísland sem einn af fremstu upplifunar og vellíðunar áfangastöðum heims. Kaup á Arctic Adventures er mikilvægt skref í þá átt,“ er haft eftir Sigríði Margréti Oddsdóttur, forstjóra Bláa lónsins í tilkynningu. „Bláa Lónið hefur byggt upp eitt sterkasta vörumerki Íslands á alþjóðavísu og með sameiginlegum styrk félaganna skapast einstakt tækifæri til áframhaldandi vaxtar og þróunar. Við hlökkum til að taka þátt í þeirri vegferð og styrkja enn frekar stöðu Íslands sem áfangastaðar í harðri samkeppni á alþjóðlegum ferðaþjónustumarkaði,“ segir Ásgeir Baldurs, forstjóri Arctic Adventures. Landsbankinn og Fossar fjárfestingarbanki verða umsjónaraðilar hlutafjárútboðs Bláa lónsins hf. Fréttin hefur verið uppfærð.
Bláa lónið Ferðaþjónusta Kaup og sala fyrirtækja Tengdar fréttir Ferðaþjónusturisar hætta við samruna Ferðaþjónusturisarnir Arctic Adventures hf. og Kynnisferða hf. (Icelandia) hafa ákveðið að slíta viðræðum um mögulegan samruna félaganna. 12. júní 2026 15:32 Uppsagnir hjá Bláa lóninu Uppsagnir hafa staðið yfir í morgun í Bláa lóninu. 29 stöðugildi verða lögð niður og 55 starfsmenn flytja milli sviða. Forstjóri fyrirtækisins segir markmiðið að skerpa á hlutverki móðurfélags lónsins. 28. maí 2026 11:34 Mest lesið Karl Wernersson opnar sig Viðskipti innlent Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Viðskipti innlent Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Viðskipti innlent Yfir hundrað prósenta munur á verði fyrir umfelgun Neytendur Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Viðskipti innlent Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Viðskipti innlent Vinkonur í bissness: Búnar að yfirtaka bílskúr foreldranna Atvinnulíf Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Viðskipti innlent 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Viðskipti innlent Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Viðskipti innlent Fleiri fréttir Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Karl Wernersson opnar sig Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Sjá meira
Ferðaþjónusturisar hætta við samruna Ferðaþjónusturisarnir Arctic Adventures hf. og Kynnisferða hf. (Icelandia) hafa ákveðið að slíta viðræðum um mögulegan samruna félaganna. 12. júní 2026 15:32
Uppsagnir hjá Bláa lóninu Uppsagnir hafa staðið yfir í morgun í Bláa lóninu. 29 stöðugildi verða lögð niður og 55 starfsmenn flytja milli sviða. Forstjóri fyrirtækisins segir markmiðið að skerpa á hlutverki móðurfélags lónsins. 28. maí 2026 11:34