Alvarleg og viðvarandi hernaðarógn Arnór Sigurjónsson skrifar 16. júní 2026 15:00 Norrænir fjölmiðlar hafa birt nýlegar gerfihnattarmyndir sem sýna uppbyggingu og endurnýjun rússneskra hernaðarinnviða allt frá landamærum Noregs og Finnlands í Norðri til Póllands í Suðri. Þessi hernaðaruppbygging hefur staðið yfir í tvö ár og er talin vera til marks um einbeittan vilja Rússa til að ógna Vesturlöndum ef stríðið í Úkraínu breiðist út fyrir landamæri þess eða að rússnesk stjórnvöld telji sér hag af því að hefja átök við eitt eða fleiri Evrópuríki þegar Úkraínustríðinu lýkur. Herleyniþjónustur stærstu Evrópuríkjanna segja Vesturlönd hafa þrjú til fimm ár áður en Rússar geta látið til skarar skríða ef horft er til hernaðargetu þeirra og ekki er tekið tillit til hugsanlegra pólitískra ákvarðana. Yfirmenn sænska hersins lýsa þessari uppbyggingu sem alvarlegri og viðvarandi tilvistarógn sem verði að bregðast við. Það hafa öll Norðurlöndin og Evrópuríkin gert að Íslandi undanskildu. Á sama tíma og Noregur gerir sérstakan varnarsamning við Frakka um kjarnorkuvernd auk þeirra trygginga sem Atlantshafsbandalagið veitir þeim og allar þjóðirnar leggja meiri áherslu á að efla eigin varnir halda íslensk stjórnvöld og Alþingi fast við þá stefnu að treysta öðrum alfarið fyrir vörnum landsins. Það er áhyggjuefni að hvorki stjórnvöld, þingmenn eða almenningur virðast vera fær um eða hafa vilja til að greina öryggismál í nærumhverfi Íslands með sama hætti og nágrannar okkar. Það kemur best fram í því andvaraleysi sem ríkir gagnvart vörnum landsins og þeirri staðreynd að Íslendingar ætla ekki að verja eigið fullveldi og sjálfstæði ef ógn steðjar að landinu. Samkvæmt nýsamþykktri varnarstefnu landsins eiga aðrir að gera það fyrir okkur. Það eru þrjú atriði sem skipta hér máli: Það að núverandi stjórnvöld í Bandaríkjunum hafa gert kröfu til fullra yfirráða yfir Grænlandi á grundvelli þess að þeir geti ekki efnt varnarsamning landanna ef þörf krefur án þess ætti að valda íslenskum stjórnvöldum verulegum áhyggjum. Önnur stoð íslenskra varna er jú varnarsamningur við Bandaríkin. Núverandi viðræður bandarískra, grænlenskra og danskra stjórnvalda eru erfiðar vegna óhóflegra krafna af hálfu Bandaríkjanna og þegar utanríkisráðherra Bandaríkjanna var nýlega spurður hvort hann gerði sér grein fyrir því að Grænland væri hluti af Danmörku að þá svaraði hann „ennþá.“ Bandarísk stjórnvöld eru farin að draga úr hernaðarframlögum til Atlantshafsbandalagsins. Það er orðrómur um að þeir muni jafnvel gefa eftir stöðu yfirmanns NATO herjanna. Sú hernaðargeta sem Bandaríkin hafa lagt til bandalagsins er að mörgu leyti sérhæfð og þess eðlis að það verður áskorun fyrir Evrópuríkin að fylla þau skörð sem skilin eru eftir og að það mun taka langan tíma. Samheldni NATO er í tvísýnu vegna yfirlýsinga bandarískra stjórnvalda. Þar fara fremstir varnarmálaráðherrann og varaforsetinn. Bandaríkin hafa hingað til veitt bandalaginu forystu og ef hún hverfur að þá mun grundvöllur NATO breytast. Þar sem tuttuogtvær ESB þjóðir eru aðilar að Atlantshafsbandalaginu mun vægi Evrópu í vörnum álfunnar aukast frá því sem nú er ef fram heldur sem horfir. NATO aðildin er önnur grunnstoð íslenskra varna. Ef íslensk stjórnvöld eru ekki tilbúin til að skoða þá hugmynd að stofna íslenskan her á okkar líftíma, þrátt fyrir þann augljósa veikleika að geta ekki brugðist við skyndilegum eða ófyrirséðum árásum að þá þarf eigi að síður að efla innlendar stofnanir sem geta sinnt varnartengdum verkefnum. Þar ber fyrst að geta sérsveit ríkislögreglustjóra og drónavarnir. Afla þarf búnaðar til drónavarna samanber drónaratsjáa, tíðnitruflara og vopna til að skjóta niður eftirlits- og árásardróna. Það þarf að útvega lögreglu landsins og landhelgisgæslu vopn, búnað og þjálfun til að tryggja öryggi mikilvægra innviða og stjórnsýslu. Aðlaga þarf löggjöf hvað varðar notkun valdheimilda á hættu-eða neyðartímum. Tryggja þarf að íslensk stjórnsýsla sé í stakk búin til að takast á við komu erlends liðsauka til Íslands til varnar landinu á hættutímum þannig að fullveldi og sjálfstæði Íslands sé varðveitt. Halda þarf áfram að tryggja netvarnir og fjarskipti. Þetta ættu að vera lágmarksviðbrögð íslenskra stjórnvalda á hættutímum. Höfundur er sérfræðingur í varnarmálum. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Arnór Sigurjónsson Öryggis- og varnarmál Mest lesið Eineltið byrjar kannski við eldhúsborðið! Birta Róbertsdóttir Skoðun Icelandair undir verndarvæng ríkisins Kjartan Björgvinsson Skoðun Þegar veikindaleyfi verður að fríi Gunnar Ármannsson Skoðun Ég hata þessa manneskju út af lífinu! Hermann Stefánsson Skoðun Hvað kostar samfélag? Orri Jónsson Skoðun Hvaða skilaboð erum við að senda framtíðarkennurum? Eyrún Ósk Hjartardóttir Skoðun Forsætisráðherra endurskrifar söguna og snýr staðreyndum á hvolf Pétur Óskarsson Skoðun Útsæði á diskinn minn! Guðmundur Finnbogason Skoðun Ert þú gervigreindarsóði? Marín Jónsdóttir Skoðun Draumsýn menntamála Álfhildur Leifsdóttir ,Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir Skoðun Skoðun Skoðun Gervigreind, til góðs?Gervigreind, til góðs? Ketill Berg Magnússon skrifar Skoðun Ert þú gervigreindarsóði? Marín Jónsdóttir skrifar Skoðun Smjörklípa Þorgerðar Hjörvar Sigurðsson skrifar Skoðun Þegar undantekningarnar verða að stefnu Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Foreldraupplifun Sólný Pálsdóttir skrifar Skoðun Til varnar tímanum Eva Harðardóttir,Katrín Ólína Pétursdóttir skrifar Skoðun Forsætisráðherra endurskrifar söguna og snýr staðreyndum á hvolf Pétur Óskarsson skrifar Skoðun Það á að vera gott að eldast á Íslandi Ólafur Þór Gunnarsson,Regína Ásvaldsdóttir skrifar Skoðun Hver reiknar raunverulegan kostnað hagræðingar? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Einkunnakvarði er ekki námsmat! Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Áframhaldandi skilningsleysi nýliða Kristín Helga Schiöth skrifar Skoðun Gervigreindin getur séð allt. En hver getur séð það sem hún sér? Júlíus Einar Júlíusson skrifar Skoðun Er að eignast barn samfélagsleg busun? Stefnir Húni Kristjánsson skrifar Skoðun Jöfn laun eiga ekki að ráðast af tilviljun Kolbrún Halldórsdóttir skrifar Skoðun Bannað að plata Ágúst Elvar Bjarnason skrifar Skoðun Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen skrifar Skoðun Látum Loftbrúna vera Sindri S. Kristjánsson skrifar Skoðun Öryggi í umferð framtíðarinnar Jón Gunnar Jónsson skrifar Skoðun „Við“ skiptaráð Dofri Hermannsson skrifar Skoðun Bláskógaskatturinn hefur áhrif víða Sveinn Ægir Birgisson skrifar Skoðun Skrýtnir útreikningar og fjármálalæsi Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun Er mynstrið þitt nægilega djúpt? Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Geimvera lendir á Íslandi Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Tvískinnungur ættjarðarástar Gunnlaugur Stefánsson skrifar Skoðun Íslenska Z-kynslóðin hefur hægt um sig Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Ég hata þessa manneskju út af lífinu! Hermann Stefánsson skrifar Skoðun Bandaríkin kjósa – en hver hefur eftirlit með forsetanum? Baldur Johnsen skrifar Skoðun Er norræna módelið refsilaust fyrir seljendur vændis á Íslandi? Ari Logn,Renata Arnórsdóttir,Brynhildur Ragnarsdóttir,Guðný Þorsteinsdóttir skrifar Skoðun Icelandair undir verndarvæng ríkisins Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Útsæði á diskinn minn! Guðmundur Finnbogason skrifar Sjá meira
Skoðun Gervigreindin getur séð allt. En hver getur séð það sem hún sér? Júlíus Einar Júlíusson skrifar
Skoðun Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen skrifar
Skoðun Er norræna módelið refsilaust fyrir seljendur vændis á Íslandi? Ari Logn,Renata Arnórsdóttir,Brynhildur Ragnarsdóttir,Guðný Þorsteinsdóttir skrifar