Evrópudagskrá íslensku liðanna klár Sindri Sverrisson skrifar 17. júní 2026 12:30 Víkingur og Valur vita nú hvaða Evrópuleikir bíða liðanna í júlí. vísir/Diego Dregið var í 2. umferð Sambandsdeildar Evrópu í fótbolta í dag. Alls gætu fjögur íslensk lið spilað í þeirri umferð; Víkingur, Vestri, Valur og Stjarnan, en Víkingur og Vestri fá fyrst tækifæri til að komast áfram í Meistaradeildinni og Evrópudeildinni.
Íslandsmeistarar Víkings mæta ungversku meisturunum í Györ í 1. umferð undankeppni Meistaradeildar Evrópu í júlí. Með sigri í því einvígi mæta Víkingar ísraelsku meisturunum í Hapoel Be'er Sheva í 2. umferð. Ef Víkingar hins vegar tapa gegn Györ þá fara þeir í 2. umferð Sambandsdeildar Evrópu og mæta tapliðinu úr einvígi Færeyjameistaranna í KÍ Klaksvík við Lúxemborgarmeistara Atert Bissen. Víkingar myndu spila seinni leikinn á heimavelli í þessu einvígi, 30. júlí, eftir útileik 23. júlí. Vestramenn til N-Írlands eða Lettlands? Bikarmeistarar Vestra byrja á að spila í 1. umferð Evrópudeildarinnar og mæta þar afar sterku liði Qarabag frá Aserbaísjan. Sigurliðið fer í 2. umferð Evrópudeildarinnar og mætir CSKA Sofia frá Búlgaríu eða Derry City frá Írlandi. Tapi Vestri gegn Qarabag er núna ljóst að liðið mun mæta annað hvort Glentoran frá Norður-Írlandi eða RFS frá Lettlandi í 2. umferð Sambandsdeildarinnar. Valsmenn mæta Blikabönum Valur kemur beint inn í 2. umferð Sambandsdeildarinnar, eftir að hafa náð 2. sæti í Bestu deildinni í fyrra, og dróst í dag gegn Zrinjski Mostar frá Bosníu. Bosníska liðið vann Breiðablik í undankeppni Evrópudeildarinnar í fyrra, samanlagt 3-2. Stjörnumenn til Finnlands eða Lúxemborgar? Stjarnan þarf svo að slá út Víking Götu frá Færeyjum til að komast í 2. umferðina. Takist það er núna ljóst að Stjörnumenn munu mæta Differdance frá Lúxemborg eða Ilves frá Finnlandi. Leikirnir í 2. umferð Sambandsdeildarinnar fara eins og fyrr segir fram 23. og 30. júlí.
Sambandsdeild Evrópu Valur Víkingur Reykjavík Vestri Stjarnan Mest lesið Spænski knattspyrnumaðurinn er látinn Fótbolti Handtóku fjórtán ára strák eftir uppátæki hans á fótboltaleik Sport „Eyðilagður“ yfir sögulegum titli ítalska ungstirnisins Formúla 1 Óhugnanlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Fótbolti Bellingham fáklæddur í nýrri auglýsingaherferð Calvin Klein Fótbolti LeBron James fékk sér sopa af vínglasi áhorfanda í miðjum leik Körfubolti Finnar neita að spila við Rússland á HM Sport Alvarlegar fréttir af Jesus de Miguel Fótbolti Spurðu stuðningsmenn Man. United hvaða leikmenn eigi skilið að vera áfram Enski boltinn Hafrún heiðraði mömmu sína og frænku Fótbolti Fleiri fréttir Stelpurnar okkar í riðli með Dönum og Ítölum Aðeins nokkrir dagar í nýjan samning Þrettánda mark Bjarka í ellefu leikjum kom beint úr aukaspyrnu „Þið haldið kannski að ég sé brjálaður“ Sakar Mac Allister um að reyna að veiða sig í að fá rautt spjald West Ham búið að reka stjórann Brotnaði niður á æfingu á síðustu leiktíð en er nú næstur á eftir Haaland Spænski knattspyrnumaðurinn er látinn Hafrún heiðraði mömmu sína og frænku Alvarlegar fréttir af Jesus de Miguel Spurðu stuðningsmenn Man. United hvaða leikmenn eigi skilið að vera áfram Bellingham fáklæddur í nýrri auglýsingaherferð Calvin Klein Annar sigur Everton á Newcastle á innan við viku Thelma með stoðsendingu og er Svíþjóðarmeistari Óhugnanlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Ronaldo var skilinn eftir heima Fer frá Stjörnunni í FH Man Utd með nærri 25 prósent líkur á falli Fimmta árið í röð eru Noregsmeistararnir með eina íslenska í liðinu Leikmaður Freys varð fyrir kynþáttaníði frá mótherja Aston Villa hættir við málsókn gegn Carragher Gummi Ben væri svo til í að spila með KR í dag Ólíklegt að leikmenn Man United séu með fallákvæði í samningum Orða varnarmann Barcelona við Manchester United Þjálfari Hákonar grét eftir leik Iraola mun segja Isak að láta sig falla í framtíðinni „Drengurinn minn á skilið að hans sé minnst með ást en ekki hatri“ Hjörvar gaf Ljungberg búning íslenska handboltalandsliðsins Segir að Cristiano Ronaldo hafi verið búinn árið 2021 Messi tryggði Inter Miami mikilvægan sigur Sjá meira