Ræða Höllu: Styrkleikar Íslendinga, samtakamáttur og skoðanaskipti Áróra L Davíðsdóttir skrifar 17. júní 2026 12:40 Halla Tómasdóttir segir þjóðhátíðardaginn kjörna stund til ígrundunar um sjálfstæði, framkomu hvert við annað og veganesti komandi kynslóða. vísir/Lýður Valberg Halla Tómasdóttir forseti Íslands fór um víðan völl í hátíðarræðu sinni á hátíðarstund lýðveldisins á Austurvelli í dag. Hún hafði meðal annars orð á því að styrkleikar Íslendinga væru mikilvægir á tímum átaka, umbreytinga og óvissu og að fram undan væru mikilvægar ákvarðanir um framtíð Íslands.
Áralöng hefð hefur verið fyrir því að forsætisráðherra flytji ávarp á athöfninni en í ár, líkt og í fyrra, bauð Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra Höllu að flytja ávarpið. Guðni Th. Jóhannesson, forveri Höllu í embætti forseta, lagði til í kveðjuávarpi sínu til Alþingis að forseti tæki við flutningi hátíðarávarpsins af forsætisráðherra. Þá hafði Bjarni Benediktsson, þáverandi forsætisráðherra, ekki viljað víkja fyrir Guðna og frekar viljað halda í hefðina. Styrkleikar Íslendinga afrakstur fyrri kynslóða Halla segir í ræðu sinni styrkleika Íslendinga mikilvæga á tímum átaka, umbreytinga og óvissu. „Þjóðin er vel menntuð, við njótum endurnýjanlegra orkugjafa og í hafinu í kringum landið eru fengsæl fiskimið. Metnaður, sköpunarkraftur og samheldni landsmanna hafa lagt grunn að velferðarsamfélagi í fremstu röð. 2 Við búum yfir ýmsum styrkleikum sem skipta máli, ekki síst á tímum hraðra umbreytinga, átaka og óvissu. Íslenskt samfélag byggir á trausti, jafnrétti, öflugum innviðum og djúpri tengingu okkar við landið sjálft - og við hvert annað.“ Hún segir þessa styrkleika engan sjálfsagðan, þeir séu afrakstur kynslóðanna sem á undan komu. „Þeir eru ávöxtur samtals, samvinnu og sameiginlegrar ábyrgðartilfinningar. Þeir byggja á þeirri trú að þótt við séum ekki alltaf sammála þá eigum við samleið.“ Þjóðhátíðardagurinn kjörin stund ígrundunar Halla segir þjóðhátíðardaginn ekki aðeins tilefni til hátíðarhalda, heldur einnig kjörna stund ígrundunar um sjálfstæði, framkomu okkar hvert við annað og veganesti komandi kynslóða. „Í dag fögnum við sjálfstæði okkar, þeim áfanga sem markaði þáttaskil í sögu íslensku þjóðarinnar árið 1944 og lagði grunn að þeirri velsæld og virðingu sem við njótum í dag. En þjóðhátíðardagurinn er ekki aðeins tilefni til hátíðarhalda. Hann er líka kjörin stund ígrundunar – hugleiðinga um hver við erum, hvað sameinar okkur og hvert við viljum stefna. Sjálfstæði er nefnilega ekki aðeins réttur til að ráða eigin málum. Því fylgir líka ábyrgð – ábyrgð á því hvernig við komum fram hvert við annað, hvernig við tökum ákvarðanir og hvers konar veganesti við skiljum eftir fyrir komandi kynslóðir.“ Samskipti Íslands við aðrar þjóðir Halla víkur næst að samtakamætti og skoðanaskiptum. Hún segir fram undan vera mikilvægar ákvarðanir um framtíð Íslands og samskipti við aðrar þjóðir en leiða má líkur að því að hér vísi hún til þjóðaratkvæðagreiðslu þar sem kosið verður um hvort hefja skuli á ný viðræður um aðild Íslands að Evrópusambandinu. „Fram undan eru mikilvægar ákvarðanir um framtíð Íslands og samskipti okkar við aðrar þjóðir. Skoðanir eru skiptar. Það er eðlilegt. Skoðanaskipti eru kjarni lýðræðisins. En lýðræði byggir ekki aðeins á skoðanafrelsi - á rétti okkar til að vera ósammála. Það byggir ekki síður á hæfni okkar til að hlusta, skilja sjónarmið annarra og leita sameiginlegra lausna. Farsæld samfélagsins veltur á því að við lítum á hvert annað sem samferðafólk fremur en andstæðinga.“ „Við höfum byggt upp samfélag þar sem skoðanaskipti eru eðlilegur og mikilvægur þáttur þjóðlífsins, en líka samfélag þar sem við finnum til sameiginlegrar ábyrgðar hvert á öðru. Í fáum löndum gegna almannaheillasamtök og sjálfboðaliðar jafn stóru og mikilvægu hlutverki og hér. Þetta er dýrmæt arfleifð en ekki sjálfsögð. Við þurfum að rækta hana áfram.“ Fjörutíu ár liðin frá leiðtogafundinum í Höfða Hún segir leiðtogafundinn í Höfða öllum áminning um áhrifamátt samtalsins og hann eigi sérstaklega brýnt erindi við Íslendinga hér og nú. „Leiðtogafundurinn árið 1986 er heiminum öllum áminning um áhrifamátt samtalsins. Hann vekur vonir um að jafnvel á tímum djúpstæðs ágreinings sé hægt að brúa bil, sætta ólík sjónarmið og leita sameiginlegra lausna. Hann minnir okkur einnig á að friður er aldrei sjálfgefinn. Friður er afrakstur vilja, hugrekkis og trúar á gildi þess að halda samtalinu lifandi. Þessi lærdómur má ekki gleymast. Ég held raunar að hann eigi sérstaklega brýnt erindi við okkur Íslendinga hér og nú“
17. júní Forseti Íslands Reykjavík Halla Tómasdóttir Mest lesið Bandaríkin hafi samið við Danmörku um Grænland Erlent „Þetta er örugglega dauðastríð sem tekur langan tíma“ Innlent Løkke um samninginn: „Næsta vika getur orðið góð vika“ Erlent Íhuga að fara nýja leið og bjóða Rússum viðskiptasamninga Erlent KR-ingar harma sundátökin: „Mikilvægt að við hlúum hvert að öðru“ Innlent „Við höfum iðulega verið tossinn í bekknum“ Innlent „Ég þekkti strax höfuðið á henni úr fjarska“ Innlent Vill þyngri refsingu fyrir Margréti Löf Innlent „Það var bara blankalogn hjá þeim og þeir voru með óvirka vél“ Innlent Eftirlýstur og með vopn á sér Innlent Fleiri fréttir Danir sigurvegarar og ofurfólk í Heiðmörk Má heita Himbrimi og Aðalsól en ekki Kamban eða Heiðarr Eftirlýstur og með vopn á sér „Þetta er örugglega dauðastríð sem tekur langan tíma“ „Það var bara blankalogn hjá þeim og þeir voru með óvirka vél“ Sjö um borð þegar bíll valt á Barðastrandarvegi „Við höfum iðulega verið tossinn í bekknum“ KR-ingar harma sundátökin: „Mikilvægt að við hlúum hvert að öðru“ „Ég þekkti strax höfuðið á henni úr fjarska“ Steinhissa á sjö ára kröfu yfir „burðardýrum“ Undirrituðu viljayfirlýsingu um stækkun VMA Segja kröfulista Icelandair tefja samninga Carlsberg og Kamala komu við sögu í málsvörnum Sundþjálfari KR með hníf á lofti fyrir lykilfund sundfólks Ölvunarakstur ungmenna nálgast sögulegt hámark Fara fram á sjö og átta ár í Dettifossmálinu Fundi lokið án árangurs fimm dögum fyrir verkfall flugvirkja Viðar Örn gaf Sævari Louis Vuitton-tösku Miklar áhyggjur af þekkingunni sem glatist með starfslokunum Moskítóflugan virðist hafa gufað upp Enginn með stöðu sakbornings vegna banaslyssins Játar innbrot í búin Reyna að afstýra verkfalli og moskítóflugan horfin Níu ákærðir fyrir að flytja inn rúm hundrað kíló kókaíns „Er þetta ekki komið út í hártoganir?“ Lífsnauðsynlegt að meðhöndla risarækjur líkt og kjúkling Ríkissjóður gæti tekið yfir skuldir Rúv: „Skattgreiðendur borga reikning sem þeir áttu ekki von á“ Útlit fyrir úrkomubakka og þokuloft Vill þyngri refsingu fyrir Margréti Löf Fundað í flugvirkjadeilu Sjá meira