Innherji

Á­fall fyrir keppi­nautinn í hlið­stæðum við Simponi talið geta styrk stöðu Al­vot­ech

Hörður Ægisson skrifar
Róbert Wessman, stjórnarformaður og aðaleigandi Alvotech, sagði á fjárfestafundi fyrr í þessum mánuði samkeppnina vera „mjög takmörkuð“ í Bandaríkjunum og Alvotech gerir enn ráð fyrir að vera í fararbroddi með hliðstæðu við Simponi og Simponi Aria í Bandaríkjunum.
Róbert Wessman, stjórnarformaður og aðaleigandi Alvotech, sagði á fjárfestafundi fyrr í þessum mánuði samkeppnina vera „mjög takmörkuð“ í Bandaríkjunum og Alvotech gerir enn ráð fyrir að vera í fararbroddi með hliðstæðu við Simponi og Simponi Aria í Bandaríkjunum.

Alvarlegar athugasemdir Evrópsku lyfjastofnunarinnar við framleiðsluaðstöðu kínverska líftæknifyrirtækisins Bio-Thera gætu styrkt stöðu Alvotech verulega á einum verðmætasta markaði félagsins á næstu árum. Bio-Thera hefur hingað til verið eini þekkti keppinautur Alvotech á markaði með hliðstæður við frumlyfið Simponi en Róbert Wessman hefur nýlega sagt að hann geri ráð fyrir að félagi verði í fararbroddi í sölu á því lyfi í Bandaríkjunum.


Tengdar fréttir

Hvað segja grein­endur erlendra banka um stöðu og horfur Al­vot­ech?

Eftir að hafa hríðfallið á fáeinum mánuðum þá endurspeglar núverandi hlutabréfaverð Alvotech að stórum hluta þær tafir sem hafa orðið á markaðssetningu nýrra lyfja í Bandaríkjunum og skýrari mynd þarf að fást á framhaldið áður en búast megi við snörpum viðsnúningi, að mati sérfræðinga. Greinendur erlendra fjármálastofnana hafa á síðustu dögum verið að uppfæra verðmöt sín á Alvotech, sem flestir telja að sé undirverðlagt á markaði, og sumir eru „hóflega“ bjartsýnir á að félagið sé að snúa vörn í sókn á meðan aðrir undirstrika að óvissan er enn mikil.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×