Mikilvægur áfangi fyrir Norðurland og landið allt Heimir Örn Árnason skrifar 18. júní 2026 08:32 Í dag, fimmtudaginn 18. júní 2026, verður tekin fyrsta skóflustungan að nýrri legudeild Sjúkrahússins á Akureyri. Það er stór stund fyrir sjúkrahúsið, starfsfólkið og samfélagið allt. Um leið er þetta áfangi sem minnir okkur á hversu mikilvægt það er að byggja upp sterka heilbrigðisþjónustu víðar en á höfuðborgarsvæðinu. Öflug heilbrigðisþjónusta skiptir máli Sjúkrahúsið á Akureyri er ein af grunnstoðum heilbrigðisþjónustu á Íslandi. Fyrir íbúa Norðurlands er það ekki aðeins stofnun eða vinnustaður, heldur öryggisnet sem skiptir máli þegar mest á reynir. Það skiptir máli fyrir fjölskyldur, atvinnulíf og byggðaþróun að fólk geti treyst því að öflug heilbrigðisþjónusta sé til staðar um land allt. En hlutverk SAk nær einmitt langt út fyrir Norðurland. Sjúkrahúsið gegnir mikilvægu hlutverki sem varaspítali Landspítalans og er þannig hluti af öryggiskerfi þjóðarinnar allrar. Sterkt heilbrigðiskerfi þarf traustar stoðir á fleiri en einum stað. Þar hefur SAk lykilhlutverki að gegna. Samtök sveitarfélaga og atvinnuþróunar á Norðurlandi eystra (SSNE) og sveitarfélögin innan þeirra hafa lengi talað fyrir því að SAk fái þann stuðning sem þarf til að standa undir þessu hlutverki. Ársþing samtakanna hefur ítrekað undirstrikað mikilvægi þess að tryggja örugga mönnun, traustan rekstrargrundvöll og fullnægjandi húsnæði og búnað til framtíðar. Þar hefur einnig verið minnt á að efling SAk er ekki aðeins heilbrigðismál heldur líka byggðamál, atvinnumál og þjóðaröryggismál. Betri aðstæður fyrir sjúklinga og starfsfólk Ný legudeild mun bæta aðstæður sjúklinga og starfsfólks til muna. Hún skapar betri ramma um þjónustu, umönnun og faglegt starf sem fer fram alla daga ársins. Slík uppbygging snýst ekki aðeins um húsnæði heldur líka um gæði, öryggi og mannúð. Það má heldur ekki gleyma því að Sjúkrahúsið á Akureyri er kennslusjúkrahús. Þar mótast framtíð heilbrigðisþjónustunnar í gegnum menntun, þjálfun og faglega þróun. Góð aðstaða eykur möguleika á að laða að og halda í ungt og vel menntað fólk sem sér framtíð sína á Norðurlandi. Mikil sóknarfæri felast einnig í að byggja upp og efla það hlutverk SAk og verða þau enn skýrari með uppbyggingu nýja húsnæðisins. Höldum áfram að byggja upp Fyrsta skóflustungan er táknræn, en hún markar jafnframt raunverulegt upphaf nýs kafla. Það er óhætt að segja að við fögnum öll þessum áfanga af heilum hug. Þetta er mikilvægt skref fyrir Akureyri, fyrir Norðurland og fyrir heilbrigðisþjónustu í landinu öllu. Nú skiptir máli að halda áfram af festu. Uppbygging SAk er fjárfesting í framtíðinni og þá sérstaklega í öryggi íbúa, sterkari byggðum og heilbrigðiskerfi sem þjónar landinu öllu. Höfundur er formaður Samtaka sveitarfélaga og atvinnuþróunar á Norðurlandi eystra (SSNE). Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Heimir Örn Árnason Sjúkrahúsið á Akureyri Mest lesið Eineltið byrjar kannski við eldhúsborðið! Birta Róbertsdóttir Skoðun Þegar veikindaleyfi verður að fríi Gunnar Ármannsson Skoðun Icelandair undir verndarvæng ríkisins Kjartan Björgvinsson Skoðun Ég hata þessa manneskju út af lífinu! Hermann Stefánsson Skoðun Hvaða skilaboð erum við að senda framtíðarkennurum? Eyrún Ósk Hjartardóttir Skoðun Hvað kostar samfélag? Orri Jónsson Skoðun Útsæði á diskinn minn! Guðmundur Finnbogason Skoðun Við erum rétt að byrja Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir Skoðun Er norræna módelið refsilaust fyrir seljendur vændis á Íslandi? Ari Logn,Renata Arnórsdóttir,Brynhildur Ragnarsdóttir,Guðný Þorsteinsdóttir Skoðun Tvískinnungur ættjarðarástar Gunnlaugur Stefánsson Skoðun Skoðun Skoðun Forsætisráðherra endurskrifar söguna og snýr staðreyndum á hvolf Pétur Óskarsson skrifar Skoðun Það á að vera gott að eldast á Íslandi Ólafur Þór Gunnarsson,Regína Ásvaldsdóttir skrifar Skoðun Hver reiknar raunverulegan kostnað hagræðingar? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Einkunnakvarði er ekki námsmat! Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Áframhaldandi skilningsleysi nýliða Kristín Helga Schiöth skrifar Skoðun Gervigreindin getur séð allt. En hver getur séð það sem hún sér? Júlíus Einar Júlíusson skrifar Skoðun Er að eignast barn samfélagsleg busun? Stefnir Húni Kristjánsson skrifar Skoðun Jöfn laun eiga ekki að ráðast af tilviljun Kolbrún Halldórsdóttir skrifar Skoðun Bannað að plata Ágúst Elvar Bjarnason skrifar Skoðun Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen skrifar Skoðun Látum Loftbrúna vera Sindri S. Kristjánsson skrifar Skoðun Öryggi í umferð framtíðarinnar Jón Gunnar Jónsson skrifar Skoðun „Við“ skiptaráð Dofri Hermannsson skrifar Skoðun Bláskógaskatturinn hefur áhrif víða Sveinn Ægir Birgisson skrifar Skoðun Skrýtnir útreikningar og fjármálalæsi Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun Er mynstrið þitt nægilega djúpt? Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Geimvera lendir á Íslandi Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Tvískinnungur ættjarðarástar Gunnlaugur Stefánsson skrifar Skoðun Íslenska Z-kynslóðin hefur hægt um sig Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Ég hata þessa manneskju út af lífinu! Hermann Stefánsson skrifar Skoðun Bandaríkin kjósa – en hver hefur eftirlit með forsetanum? Baldur Johnsen skrifar Skoðun Er norræna módelið refsilaust fyrir seljendur vændis á Íslandi? Ari Logn,Renata Arnórsdóttir,Brynhildur Ragnarsdóttir,Guðný Þorsteinsdóttir skrifar Skoðun Icelandair undir verndarvæng ríkisins Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Útsæði á diskinn minn! Guðmundur Finnbogason skrifar Skoðun Heimili á hjólum er líka heimili Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Almannaréttur er heilagur réttur Þórarinn Eyfjörð skrifar Skoðun Við erum rétt að byrja Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Að eldast er að lifa Halldór S. Guðmundsson,Sirrý Sif Sigurlaugardóttir skrifar Skoðun Hver ber ábyrgð á gervigreindinni? Kristján Logason skrifar Skoðun Draumsýn menntamála Álfhildur Leifsdóttir ,Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Sjá meira
Er norræna módelið refsilaust fyrir seljendur vændis á Íslandi? Ari Logn,Renata Arnórsdóttir,Brynhildur Ragnarsdóttir,Guðný Þorsteinsdóttir Skoðun
Skoðun Gervigreindin getur séð allt. En hver getur séð það sem hún sér? Júlíus Einar Júlíusson skrifar
Skoðun Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen skrifar
Skoðun Er norræna módelið refsilaust fyrir seljendur vændis á Íslandi? Ari Logn,Renata Arnórsdóttir,Brynhildur Ragnarsdóttir,Guðný Þorsteinsdóttir skrifar
Er norræna módelið refsilaust fyrir seljendur vændis á Íslandi? Ari Logn,Renata Arnórsdóttir,Brynhildur Ragnarsdóttir,Guðný Þorsteinsdóttir Skoðun