Golf

Lengri út­sending frá Gunn­laugi á U.S. Open

Aron Guðmundsson skrifar
Gunnlaugur Árni hefur verið að gera frábæra hluti upp á síðkastið
Gunnlaugur Árni hefur verið að gera frábæra hluti upp á síðkastið Vísir/Getty

Sýn Sport hefur tekist að landa samkomulagi um að hafa lengri útsendingu frá öðrum hring á U.S. Open risamótinu í golfi á morgun og mun útsending hefjast á Sýn Sport um leið og Gunnlaugur Árni Sveinsson fer af stað í sinn annan hring á mótinu.  

Upphaflega átti útsending að hefjast klukkan fjögur á morgun en þegar í ljós kom að Gunnlaugur Árni myndi hefja sinn annan hring á mótinu klukkan 12.25 í hádeginu fóru af stað viðræður um að fá merki frá mótinu fyrr. 

Þær viðræður skiluðu jákvæðri niðurstöðu því nú mun bein útsending á Sýn Sport frá U.S.Open hefjast klukkan hálft eitt og standa yfir langt fram á kvöld þar til öðrum hring lýkur og það kemur í ljós hvaða kylfingar komast í gegnum niðurskurð. 

Risamótið hefst hins vegar í dag og þar mun Gunnlaugur Árni rita nýjan kafla í íslenskri íþróttasögu með því að verða fyrsti Íslendingurinn til þess að spila á mótinu. 

Bein útsending frá U.S. Open í dag hefst klukkan fjögur á Sýn Sport. Við hefjum síðan leika klukkan hálf eitt á morgun. 


Tengdar fréttir

Völlurinn of erfiður á síðustu tveim risamótum

Opna bandaríska risamótið í golfi hefst í dag og er Íslendingurinn Gunnlaugur Árni Sveinsson meðal kylfinga á mótinu. Keppt verður á Shinnecock Hills-vellinum í New York-fylki en völlurinn hefur að margra mati verið of erfiður á síðustu tveim risamótum sem hafa verið leikin á vellinum.

Íslendingarnir fengu mjög góð ráð frá Patrick Reed

Gunnlaugur Árni Sveinsson þarf að eiga meira en góð högg til að hitta flatirnar á Shinnecock Hills, þegar hann verður fyrstur Íslendinga til að keppa á Opna bandaríska mótinu í golfi á morgun. Hann býr núna að góðum ráðum frá Patrick Reed sem þekkir það að vinna risamót.

„Ís­land ætti ekki að eiga kylfing sem spilar svona vel“

Gunn­laugur Árni Sveins­son er klár í stóra sviðið sem U.S. Open risamótið í golfi er. Þetta segir þjálfari hans við LSU háskólann í Bandaríkjunum. Gunn­laugur sé með nálgun at­vinnu­manns og geti nú sýnt heiminum hversu góður kylfingur hann sé.

At­hyglin mun meiri en Gunn­laugur með báða fætur á jörðinni

Íslenski kylfingurinn Gunnlaugur Árni Sveinsson fær nú umtalsvert meiri athygli frá fjölmiðlum og viðskiptatengdum aðilum nú þegar dregur nær fyrsta risamóti hans á ferlinum. Umboðsmaður Gunnlaugs segir hann með báða fætur á jörðinni.

Gunnlaugur æfði óvænt með DeChambeau og Reed

Gunnlaugur Árni Sveinsson fær frábæran undirbúning fyrir Opna bandaríska meistaramótið í golfi. Fyrir æfingahringinn með besta kylfingi heims fékk hann óvænt að æfa með Bryson DeChambeu og Patrick Reed.

Gunn­laugur æfir með þeim besta í heimi fyrir U.S. Open

Gunnlaugur Árni Sveinsson fær dýrmæta reynslu í aðdraganda síns fyrsta risamóts á golfferlinum. Hann mun taka æfingarhring með besta kylfingi heims um þessar mundir, Scottie Scheffler. Þjálfari Gunnlaugs hjá LSU segir hann tilbúinn fyrir stóra sviðið. 

Á sama sviði og hetjurnar: „Verður ótrú­lega skemmti­legt að upp­lifa“

Gunnlaugur Árni Sveinsson varð á dögunum fyrsti íslenski kylfingurinn til að tryggja sig inn á US Open risamótið í karlaflokki. Kappinn fann á sér á keppnisdeginum að þetta yrði hans dagur, mótlæti braut hann ekki, heldur efldist hann bara við það. Mót með þeim bestu í heimi bíður.

Stoltir foreldrar: Gunn­laugur „mani­festaði“ birtu eftir erfitt vor

„Þetta er svo ofsalega stórt og ég held að maður átti sig ekki alveg á þessu fyrr en mótið rennur upp eftir rúma viku,“ segir Sveinn Kristinn Ögmundsson, pabbi Gunnlaugs Árna sem fyrstur íslenskra karla vann sig inn á Opna bandaríska mótið í golfi. Foreldrar Gunnlaugs Árna mættu í Bítið á Bylgjunni, eðlilega að rifna úr stolti.

Risa af­rek Gunn­laugs og saman­burður við þá bestu áhuga­verður

Gunn­laugur Árni Sveins­son tryggði sér í fyrradag, fyrstur Ís­lendinga, sæti á U.S. Open risamótinu í golfi í karla­flokki eftir bráða­bana á úrtökumóti í Ohio í Bandaríkjunum. Risastór tíðindi sem koma þó ekki einum helsta golfsér­fræðingi landsins á óvart. Þetta sé ekki endastöð hjá Gunn­laugi, bara byrjunin.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×