Sport

Foss­blæddi af stressi fyrir þátt­töku Gulla á U.S. Open

Aron Guðmundsson skrifar
Gunnlaugur hefur leik á U.S. Open í kvöld
Gunnlaugur hefur leik á U.S. Open í kvöld Vísir/Samsett

Stór dagur í íþróttasögu Íslendinga í dag. Gunnlaugur Árni Sveinsson hefur þátttöku á U.S. Open risamótinu í golfi í kvöld, fyrstur Íslendinga. Við förum yfir það sem og HM í fótbolta þar sem að England mætir af fídómskrafti til leiks. 

Þá eru Stelpurnar okkar með gullið tækifæri á að tryggja sér sæti á HM í fótbolta í BRASILÍU á næsta ári og spennan er mikil í Mjólkurbikar kvenna. Átta liða úrslitunum lýkur í kvöld.

Spennan er mikil fyrir þátttöku Gunnlaugs Árna á U.S. Open, raunar svo mikil á óvæntar vendingar áttu sér stað í hljóðveri þegar að tók að fossblæða úr nefinu á íþróttafréttamanni Sýnar. Taugarnar þandar en engar áhyggjur, getum lofað ykkur því að Gunnlaugur Árni er pollrólegur. 

Þátt dagsins í Besta sætinu má hlusta á í spilaranum hér fyrir neðan: 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×