Golf

Gunn­laugur Árni á U.S. Open

Aron Guðmundsson skrifar
Gunnlaugur á Shinnecock Hills vellinum í kvöld ásamt kylfusveini sínum og vini, Bjarka Péturssyni
Gunnlaugur á Shinnecock Hills vellinum í kvöld ásamt kylfusveini sínum og vini, Bjarka Péturssyni Vísir/Getty

Gunnlaugur Árni hefur leik á öðrum keppnisdegi U.S. Open risamótsins klukkan hálf ellefu að íslenskum tíma. Hann byrjar á að leika þær fjórar holur sem hann átti eftir þegar að fyrsta hring var seinkað seint í gærkvöldi og mun síðan halda inn í annan hring sinn á mótinu fljótlega eftir að hafa lokið við þær

Í beinni textalýsingu sem finna má hér neðar í fréttinni verður Gunnlaugi fylgt eftir í gegnum þennan annan keppnisdag hans á U.S. Open. 

Íslendingurinn opnaði nýjan kafla í íslenskri golfsögu í gær með því að verða fyrsti íslenski kylfingurinn til þess að leika á þessu risamóti í karlaflokki. 

Það er rými til bætinga hjá Gunnlaugi fyrir þennan keppnisdag. Hann endaði leik í gær á níu höggum yfir pari, lenti í brasi með teighöggin sín en endaði daginn á frábærum fugli.

Okkar maður verður að taka þann meðbyr inn í daginn en bein útsending frá mótinu hefst á Sýn Sport klukkan hálf tólf. 




Fleiri fréttir

Sjá meira
×