Klára kaupin á Ofar og leita að nýjum framkvæmdastjóra Agnar Már Másson skrifar 19. júní 2026 17:48 Sylvía Kristín Ólafsdóttir er forstjóri Nova. Vísir/Vilhelm Nova hefur gengið frá kaupum á öllu hlutafé í félaginu Ofar og leitar nú að nýjum framkvæmdastjóra. Heildarvirði kaupanna er talið um 4,3 milljarðar króna.
Greint er frá því í kauphallartilkynningu frá Nova að með kaupunum verði Ofar, sem er þjónustufyrirtæki á sviði tæknibúnaðar og lausna, hluti af samstæðu Nova Klúbbsins frá og með 1. júní síðastliðnum. Tilkynnt var um fyrirhuguð kaup hinn 20. febrúar þessa árs. Í ljósi þess hyggst Nova Klúbburinn endurskoða útgefnar fjárhagslegar horfur fyrir árið í heild og birta á markaði svo fljótt sem unnt er, segir í tilkynningunni. Endanlegt heildarvirði (e. Enterprise value) kaupanna að teknu tilliti til nettóstöðu veltufjármuna og hreinna vaxtaberandi skulda á uppgjörsdegi nemur 4.349 m.kr. sem greiðist með nýju láni, að fjárhæð 2.700 m.kr., og handbæru fé. „Ofar hefur um árabil verið í fararbroddi á sviði tæknilausna fyrir íslensk fyrirtæki og stofnanir með framúrskarandi þjónustu og öflugu samstarfi við alþjóðlega tæknirisa á borð við Lenovo, Canon, IBM, Bose og Sony. Kaupin eru mikilvægt skref í að styrkja Nova Klúbbinn sem eignarhaldsfélag með aðgreindar tekjustoðir á sviði þjónustu, tækni og innviða,“ segir í tilkynningunni. Leit stendur nú yfir að nýjum framkvæmdastjóra Ofar en stjórn félagsins munu skipa Sylvía Kristín Ólafsdóttir, forstjóri Nova Klúbbsins, sem gegna mun stjórnarformennsku, Þórhallur Jóhannsson, fjármálastjóri Nova Klúbbsins, og Jón Björnsson, forstjóri Veritas, sem gegnt hefur stjórnarformennsku í Ofar. „Ofar mun að öðru leyti starfa áfram undir eigin vörumerki og stjórnendum,“ segir í tilkynningunni.
Nova Tækni Kaup og sala fyrirtækja Mest lesið Karl Wernersson opnar sig Viðskipti innlent Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Viðskipti innlent Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Viðskipti innlent Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Viðskipti innlent Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Viðskipti innlent Yfir hundrað prósenta munur á verði fyrir umfelgun Neytendur Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Viðskipti innlent Vinkonur í bissness: Búnar að yfirtaka bílskúr foreldranna Atvinnulíf Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Viðskipti innlent 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Karl Wernersson opnar sig Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Sjá meira