Undrast „leiðinlega“ Íslendinga Agnar Már Másson skrifar 19. júní 2026 22:27 Jón Bjarni Steinsson, Einar Bárðarson, Máni Pétursson og Grímur Atlason hafa allir haldið fjölda tónleika í gegnum tíðina. „Eru bara engin takmörk fyrir því hvað Íslendingar geta verið leiðinlegir?“ spyr Máni. Samsett Umboðsmenn og tónleikahaldarar eru margir hverjir gáttaðir á umræðunni í kringum tónleikana Bergmál sem haldnir verða á Þingvöllum um helgina. Það sé fullkomlega eðlilegt að ekki megi taka með sér eigin veitingar eða stóla á tónleika. Einn spyr hvort engin takmörk séu fyrir leiðindum þjóðarinnar.
Umboðsmaðurinn Máni Pétursson, framkvæmdastjóri Paxal, leggur orð í belg með færslu á Facebook þar sem hann vill meina að umræðan sé ósanngjörn og í raun fáránleg um Bergmál, tónleika Kaleo sem haldnir verða á morgun á Þingvöllum. Dagskráin er frá kl. 14 til miðnættis en tónleikarnir eru skipulagðir af stuðmanninum Jakobi Frímanni. Sjá einnig: Veðrið á Þingvöllum um helgina Umræða hafði skapast undanfarna daga á spjallþráðum Facebook-hópa eftir að í ljós kom að ekki mætti taka með sér stóla, regnhlífar eða veitingar á svæðið og borið hefur á því í vikunni að fólk reyni að selja miðana sína, en miðaverð er tæpar 24 þúsund krónur. „Eru bara engin takmörk fyrir því hvað Íslendingar geta verið leiðinlegir?“ spyr Máni, sem er í umboði fyrir GDRN og bræðurna Friðrik Dór og Jón Jónssyni. Hann kveðst sjálfur vera á leið á tónlistarhátíð í sumar en þar fái hann heldur ekki að mæta með eigin mat, drykki eða stól. „Ef tónleikahaldari væri ekki að taka tekjur af veitingum þyrfti miðaverðið að vera margfalt dýrara,“ skrifar hann og bætir við að miðaverð á tónlistarviðburði á Íslandi sé að hækka og að það hafi lítið með græðgi tónleikahaldara að gera. Þorkell Máni Pétursson. „Hið opinbera hækkar alltaf á hverju ári, skattkerfið er ósanngjarnt og Stef, sem ætti í raun að vilja hróður tónlistar sem mestan, er að henda á þessa hátíð tæpum auka 4 milljónum frá því í fyrra. Með nákvæmlega engum rökum. Ef mér reiknast allt rétt er hið opinbera að taka 30% af öllum tekjum hátíðarinnar.“ Þá segir Máni að enn eigi eftir að greiða fyrir kerfi, tónlistarmenn, gæslu og aðra starfsmenn, sem allir eigi síðan eftir að greiða skatt af sínum tekjum. „Það er brjálað verkefni að halda þennan viðburð og ég myndi aldrei treysta mér í svona verkefni. Ég óska þessu hugrakka og frábæra fólki alls hins besta á morgun. Ég veit þetta verður frábært gigg!“ Leiðindaseggir hafi hvergi meira vægi Margir taka undir þetta í ummælakerfinu, einkum fleiri þekkt nöfn úr skemmtanabransanum. Grímur Atlason, fyrrverandi tónleikahaldari Iceland Airwaves og nú framkvæmdastjóri Geðhjálpar, tekur undir. „Netop!“ slettir hann. Grímur Atlason, framkvæmdastjóri Geðhjálpar.vísir/bjarni Það gerir Jón Bjarni Steinsson, tónleikahaldari og veitingamaður á Dillon, einnig en hann svarar spurningu Mána: „Það er engin þjóð þar sem leiðinlegt fólk hefur meira vægi.“ Jón Bjarni Steinsson Bubbi Morthens, sem hélt á dögunum risatónleika í tilefni sjötugsafmælis síns, skrifar einnig undir færsluna: „Við ættum að fagna því að fólk haldi tónleika af metnaði og leggi allt undir frábært framtak.“ Bubbi Morthens.Vísir/Viktor Freyr „Bara hluti af því hvernig svona viðburðir virka“ Umboðsmaðurinn Einar Bárðarson, önnur kanóna í bransanum, stingur einnig niður penna á Facebook, þar sem hann segist hlakka mikið til hátíðarinnar en honum finnist umræðan sömuleiðis sérkennileg. Hann segir það ekki einu sinni hafa hvarflað að sér að taka með eigin veitingar eða kælibox á tónleikana enda tíðkist það ekki á tónleikum. „Það er bara hluti af því hvernig svona viðburðir virka, alveg eins og á tónleikum, íþróttaleikjum og hátíðum út um allan heim.“ Hann furðar sig einnig á því hversu fljótt Íslendingar virðast leita að því sem er að frekar en að sjá það sem vel er gert. Einar BárðarsonVísir/anton brink „Að setja upp viðburð af þessari stærðargráðu er ekkert grín,“ skrifar Einar. „Kostnaður hækkar á hverju ári. Skattar og opinber gjöld taka stóran skerf af tekjum áður en búið er að greiða fyrir tónlistarfólkið, tæknina, öryggisgæsluna, starfsfólkið og allt hitt sem þarf til að skapa upplifun sem þúsundir manna njóta.“ Einar, sem er í dag framkvæmdastjóri Samtaka fyrirtækja í veitingarekstri (Sveit), segist þekkja það vel að mikinn kjark, úthald og bjartsýni þurfi til að leggja í svona verkefni. „Stundum held ég að við Íslendingar mættum vera örlítið örlátari á hrósið. Ef einhver ákveður að leggja mánuði eða ár af vinnu, fjármunum og svefni í að skapa upplifun fyrir annað fólk, þá er fyrsta viðbragðið kannski ekki að leita að því sem má gagnrýna heldur einfaldlega að óska því góðs gengis,“ bætir Einar við og gerir svo einmitt það.
Þingvellir Kaleo Tónleikar á Íslandi Tónleikar Kaleo á Þingvöllum 2026 Tengdar fréttir Þingvellir stærsta verkefni Kaleo frá upphafi Kaleo snýr aftur heim í sumar eftir að hafa spilað á stórum sviðum víða um heim og orðið ein þekktasta íslenska rokksveit síðari ára. Hljómsveitin segir tónleikana Bergmál á Þingvöllum í sumar þó vera í sérflokki. 28. maí 2026 16:40 Sautján þúsund miðar seldir á Kaleo Nánast uppselt er á stórtónleika hljómsveitarinnar Kaleo á Þingvöllum í sumar. Í tilkynningu sem Jakob Frímann Magnússon tónleikahaldari sendi frá sér kemur fram að af þeim tuttugu þúsund miðum sem séu í boði hafi sautján þúsund þegar verið seldir. 10. apríl 2026 12:11 Mest lesið Bandaríkin hafi samið við Danmörku um Grænland Erlent „Þetta er örugglega dauðastríð sem tekur langan tíma“ Innlent Løkke um samninginn: „Næsta vika getur orðið góð vika“ Erlent Íhuga að fara nýja leið og bjóða Rússum viðskiptasamninga Erlent KR-ingar harma sundátökin: „Mikilvægt að við hlúum hvert að öðru“ Innlent „Við höfum iðulega verið tossinn í bekknum“ Innlent „Ég þekkti strax höfuðið á henni úr fjarska“ Innlent Vill þyngri refsingu fyrir Margréti Löf Innlent „Það var bara blankalogn hjá þeim og þeir voru með óvirka vél“ Innlent Trump rekur CNN og fleiri fjölmiðla úr Hvíta húsinu Erlent Fleiri fréttir Eftirlýstur og með vopn á sér „Þetta er örugglega dauðastríð sem tekur langan tíma“ „Það var bara blankalogn hjá þeim og þeir voru með óvirka vél“ Sjö um borð þegar bíll valt á Barðastrandarvegi „Við höfum iðulega verið tossinn í bekknum“ KR-ingar harma sundátökin: „Mikilvægt að við hlúum hvert að öðru“ „Ég þekkti strax höfuðið á henni úr fjarska“ Steinhissa á sjö ára kröfu yfir „burðardýrum“ Undirrituðu viljayfirlýsingu um stækkun VMA Segja kröfulista Icelandair tefja samninga Carlsberg og Kamala komu við sögu í málsvörnum Sundþjálfari KR með hníf á lofti fyrir lykilfund sundfólks Ölvunarakstur ungmenna nálgast sögulegt hámark Fara fram á sjö og átta ár í Dettifossmálinu Fundi lokið án árangurs fimm dögum fyrir verkfall flugvirkja Viðar Örn gaf Sævari Louis Vuitton-tösku Miklar áhyggjur af þekkingunni sem glatist með starfslokunum Moskítóflugan virðist hafa gufað upp Enginn með stöðu sakbornings vegna banaslyssins Játar innbrot í búin Reyna að afstýra verkfalli og moskítóflugan horfin Níu ákærðir fyrir að flytja inn rúm hundrað kíló kókaíns „Er þetta ekki komið út í hártoganir?“ Lífsnauðsynlegt að meðhöndla risarækjur líkt og kjúkling Ríkissjóður gæti tekið yfir skuldir Rúv: „Skattgreiðendur borga reikning sem þeir áttu ekki von á“ Útlit fyrir úrkomubakka og þokuloft Vill þyngri refsingu fyrir Margréti Löf Fundað í flugvirkjadeilu Þurftu að keyra á hnífamann sem slóst við lögreglu Fjárlögin leiði til stöðnunar Landspítalans Sjá meira
Þingvellir stærsta verkefni Kaleo frá upphafi Kaleo snýr aftur heim í sumar eftir að hafa spilað á stórum sviðum víða um heim og orðið ein þekktasta íslenska rokksveit síðari ára. Hljómsveitin segir tónleikana Bergmál á Þingvöllum í sumar þó vera í sérflokki. 28. maí 2026 16:40
Sautján þúsund miðar seldir á Kaleo Nánast uppselt er á stórtónleika hljómsveitarinnar Kaleo á Þingvöllum í sumar. Í tilkynningu sem Jakob Frímann Magnússon tónleikahaldari sendi frá sér kemur fram að af þeim tuttugu þúsund miðum sem séu í boði hafi sautján þúsund þegar verið seldir. 10. apríl 2026 12:11