Fjölskyldan í sárum og biður foreldra um að fylgjast með netnotkun barna Eiður Þór Árnason skrifar 22. júní 2026 07:00 Katrín Auðbjörg Aðalsteinsdóttir segir 764 beina spjótum sínum að viðkvæmum hópum og ungmennum í veikri félagslegri stöðu. Aðsend - Unsplash/Adrian Swancar „Maður er að vona að það séu ekki fleiri en samt er maður að vona að ef það eru fleiri að maður finni þá,“ segir Katrín Auðbjörg Aðalsteinsdóttir, móðir stúlku sem lenti í alþjóðlega netofbeldishópnum 764. Katrín stofnaði nýverið Facebook-hóp fyrir aðstandendur ungmenna sem hafa lent í 764. Markmiðið er að fólk í þessari erfiðu stöðu geti komið saman og veitt hvert öðru stuðning. Málið hefur reynt mjög á dóttur hennar og fjölskylduna alla. „Þetta hefur haft hræðileg áhrif á okkur, bara vægast sagt. Stelpan er náttúrulega alveg í molum. Andlega hliðin er ekki góð og það er það sama hjá okkur.“ Eftir að Guðbjörg Emilía Walker lenti í klóm hópsins aðeins þrettán ára gömul var hún þvinguð til að skaða sjálfa sig í beinu streymi og hvött til þess að beita aðra ofbeldi. Þá varð hún vitni að grófu ofbeldi og þremur sjálfsvígum ungmenna í beinu streymi. Í þessari frétt er fjallað um sjálfsvíg og sjálfsskaða. Fólki sem glímir við sjálfsvígshugsanir eða sjálfsskaðahegðun er bent á Hjálparsíma Rauða krossins 1717, netspjallið á 1717.is og Píeta símann 552-2218 en þjónusta þeirra er aðgengileg allan sólarhringinn. Ef þú hefur orðið fyrir hótunum eða ofbeldi líkt og fjallað er um í fréttinni er þér bent á að hafa samband við lögreglu í síma 112 eða í netspjalli á 112.is. Guðbjörg hefur áður rætt reynslu sína í Kastljósi en ákvað nú í fyrsta sinn að koma fram undir nafni. Hún greindi upphaflega frá ofbeldinu í myndskeiði á samfélagsmiðlinum TikTok og í kjölfarið setti bandaríska alríkislögreglan FBI sig í samband við hana. Hópurinn 764 er einn margra sem eru til rannsóknar hjá FBI og Evrópulögreglunni Europol. Saman mynda þeir net ofbeldishópa sem herja markvisst á börn á internetinu, beita þau kynferðisofbeldi, dreifa kynferðislegu efni af þeim og hvetja þau til ofbeldisverka. Í maí hófust réttarhöld yfir átján ára ungmenni í Umeå í Svíþjóð sem er ákærður fyrir meira en sjötíu brot þvert yfir landamæri. Hann er meðal annars sakaður um að hafa þvingað börn til að skera sig og skrifa númer hópsins með blóði sínu. Þá er honum gert að hafa stýrt sjálfsvígstilraunum, nauðgunum og ofbeldi gegn köttum í gegnum netið. Katrín segir að Guðbjörg sé meðal fórnarlamba hans. Hann var handtekinn í skólastofu í apríl 2025 og er grunaður um að hafa kerfisbundið skipað ungmennum að beita ofbeldi, stunda sjálfsskaða og taka þátt í kynferðislegum athöfnum. Brotin hafi yfirleitt verið tekin upp og myndskeiðum í kjölfarið dreift á netinu, að því er fram kemur í frétt sænska ríkisútvarpsins SVT. Hann neitar allri sök. Ekki sú eina á landinu Katrín segist hafa fengið lítil viðbrögð við stuðningshópnum enn sem komið er. Fólk hafi vissulega sýnt honum áhuga en ekkert þeirra haft reynslu af 764. „Við erum tvær hérna á Íslandi sem ég veit um sem eigum börn sem hafa lent í þessu og markmiðið var í rauninni að reyna að finna hvort það væru einhverjir fleiri.“ Hún upplifði blendnar tilfinningar þegar hún komst að því að annað íslenskt barn hefði lent í klóm netofbeldishópsins. Á meðan það væri viss léttir að þau væru ekki ein á Íslandi hafi verið sárt að hugsa til þess að önnur fjölskylda hafi gengið í gegnum svipaða eldraun. Lenti í hópnum á Discord Guðbjörg lenti í ofbeldishópnum 764 á samskiptamiðlinum Discord þar sem hún hafði átti í samskiptum við aðra spilara tölvuleiksins Roblox. Á Discord kynntist hún fólki sem hún taldi til vina sinna en átti síðar eftir að draga hana inn í myrkan vef 764. Ofbeldismenn hafa meðal annars notað spjallmiðlana Discord og Telegram til að ná til ungmenna.Unsplash/appshunter.io Hún var þrettán ára þegar hún komst í kynni við hópinn en um ári síðar fór hún að fá hótanir, þar sem henni var meðal annars skipað að skaða sjálfa sig og gæludýrin sín og deila nektarmyndum. Guðbjörg segir hótanirnar hafa verið settar fram af „háttsettum“ körlum innan hópsins og 764 stýrt lífi hennar í rúm þrjú ár. Á tímabili horfðu allt að hundrað manns á hana í beinu netstreymi, niðurlægðu hana og hvöttu til sjálfsskaða og ofbeldisverka. Foreldrar þurfi að hafa varann á Katrín segir fólk allt of værukært þegar kemur að samfélagsmiðla- og tölvuleikjanotkun ungmenna. „Það er verið að herja á börn inni á Roblox og Discord,“ bætir Katrín við og vísar til vinsæls tölvuleikjaheims og samskiptamiðils. Hún biðlar til foreldra að fylgjast betur með því hvað börn þeirra eru að gera á netinu og í tækjum sínum. Í einhverjum tilvikum sé hægt að takmarka samskipti þeirra við ókunnuga en stundum geti stillingar veitt falskt öryggi. Roblox er gríðarlega vinsæll leikur meðal ungmenna sem gerir þeim meðal annars kleift að eiga í samskiptum við ókunnuga.Unsplash/Oberon Copeland Katrín segir að í Roblox sé hægt að koma í veg fyrir að börn spjalli við aðra notendur en í öðrum tölvuleikjum geti notendur stundum átt samskipti við ókunnuga þrátt fyrir að slökkt sé á spjallvirkni. „Það er verið að leita að krökkum sem eru í félagslega slæmri stöðu. Það er mjög algengt að börn sem hafa lent í þessu séu með ADHD, einhverfu eða eitthvað svoleiðis.“ Fylgist með réttarhöldum yfir brotamanninum Katrín hefur fylgst vel með rannsóknum á meðlimum 764-hópsins en í ljósi alþjóðlegs eðlis hans eru þær í höndum erlendra lögregluyfirvalda frekar en íslenskra. 764 er sagt vera hluti af neti svipaðra hópa sem ganga undir ólíkum nöfnum og eru sjaldan með útnefnda leiðtoga. Dæmi eru um að nýir hópar spretti skyndilega upp og séu fljótir að hverfa eða breyta um heiti. Þeir fylgi jafnan svipaðri hugmyndafræði og 764-hópurinn og forveri hans CVLT. Bandaríska alríkislögreglan hefur 764 til rannsóknar. AP/Cliff Owen Bandaríska dómsmálaráðuneytið tilkynnti í síðustu viku að hinn 26 ára gamli Shawn Krishendat Premsook frá Flórída hefði játað sekt sína í málum tengdum 764 og ætti yfir höfði sér minnst fimm ára fangelsi. Hann játaði að hafa dreift barnaníðsefni og haft slíkt í vörslu sinni. Að sögn saksóknara var Premsook meðlimur í 764 og öðrum hópum af svipuðum meiði og tók þátt í því að kúga ólögráða einstaklinga til að stunda sjálfsskaða. Fleiri hafa verið handteknir í tengslum við netofbeldishópana og lýstu ríkissaksóknarar í Washington D.C. því yfir í apríl í fyrra að Leonidas Varagiannis og Prasan Nepal, meintir leiðtogar 764, hefðu verið ákærðir og handteknir. Þeir voru aðeins 21 og 20 ára gamlir. Þá var annar leiðtogi hópsins sagður hafa játað brot sín í desember. Breskir ríkissaksóknarar gáfu út fyrir helgi að hinn átján ára Elijah Palmer hafi verið dæmdur í 4 ára og 9 mánaða fangelsi fyrir að hafa hvatt ungt fórnarlamb til að skaða sig alvarlega og taka kynferðislegar myndir af sér sem hluti af langvarandi netáreitni. Hann gekkst við brotunum og er sagður tengdur 764-hópnum. Hann játaði einnig að hafa haft undir höndum óviðeigandi myndefni. „Palmer kúgaði fórnarlamb sitt, hafði í hótunum og krafðist þess að hún tæki þátt í sífellt meira niðurlægjandi athöfnum til að þjóna sjálfum sér og byggja upp orðspor sitt meðal annarra meðlima 764-hópsins,“ sagði Caroline Deacon ríkissaksóknari. Í Kanada má finna 764 á lista með Al Qaida.Skjáskot Í lok síðasta árs var 764 skilgreint sem hryðjuverkasamtök af stjórnvöldum í Kanada. Á grundvelli þessa var Jeffrey Roussel, 26 ára Quebec-búi, ákærður í apríl fyrir þátttöku í starfsemi hryðjuverkasamtaka með því að birta og dreifa ofbeldisfullu og óhugnanlegu efni með það að markmiði að fá fleiri til liðs við hópinn. Að sögn ákæruvaldsins átti þetta sér stað í spjallhópi á samskiptamiðlinum Telegram. Hvetja foreldra til að vera vakandi fyrir ákveðnum merkjum Europol varaði í fyrra við aukinni útbreiðslu hópa á netinu sem eru tileinkaðir alvarlegri og ofbeldisfullri barnamisnotkun og greindi frá því hvaða hegðunarmerkjum forráðamenn ættu að hafa augun opin fyrir. Þeirra á meðal eru að börn einangri sig, sýni skaðlegu efni áhuga og reyni að fela líkamleg merki um sjálfsskaða. Þá gaf FBI út álíka tilmæli til foreldra í febrúar. Í nóvember hvöttu barnavernd og lögregla í Vestmannaeyjum foreldra til að fara yfir samfélagsmiðlanotkun barna sinna og fylgjast vel með líðan þeirra. Lögregluembættið skoðaði þá mál tengt 764-glæpahópnum. Ef þú hefur orðið fyrir hótunum eða ofbeldi líkt og fjallað er um í fréttinni er þér bent á að hafa samband við lögreglu í síma 112 eða í netspjalli á 112.is. Í þessari frétt er fjallað um sjálfsvíg og sjálfsskaða. Fólki sem glímir við sjálfsvígshugsanir eða sjálfsskaðahegðun er bent á Hjálparsíma Rauða krossins 1717, netspjallið á 1717.is og Píeta símann 552-2218 en þjónusta þeirra er aðgengileg allan sólarhringinn. Ofbeldi gegn börnum Netglæpir Lögreglumál Stafrænt ofbeldi Kynferðisofbeldi Tengdar fréttir Íslensk stúlka í klóm 764 hvött til sjálfsskaða og ofbeldis Greint var frá því í Kastljósi í gær að ung íslensk stúlka hefði lent í alþjóðlega glæpahópnum 764 og verið neydd til að skaða sjálfa sig og hvött til ofbeldis gegn öðrum. Þá varð hún vitni að þremur sjálfsvígum ungmenna í beinu streymi. 29. október 2025 06:59 Lögregla í Vestmannaeyjum rannsakar mál tengt 764-glæpahópnum Lögreglan í Vestmannaeyjum hefur nú til skoðunar mál sem tengist 764-glæpahópnum. Barnavernd og lögregla í Vestmannaeyjum hvetja foreldra til að fara yfir samfélagsmiðlanotkun barna sinna og fylgjast vel með líðan þeirra. Greint var fyrst frá á vef Eyjafrétta. 18. nóvember 2025 23:45 Mest lesið Fjölskyldan í sárum og biður foreldra um að fylgjast með netnotkun barna Innlent „Það var alveg skýrt að það ætti bara að drepa þetta mót hjá okkur“ Innlent Starmer segir af sér Erlent Leidd út í járnum eftir lögregluaðgerð í Skipholti Innlent „Við náðum í hnakkadrambið á þeim“ Innlent Telur að það eigi að gera bíla upptæka vegna utanvegaaksturs Innlent Ekki lengur flestir sem útskrifast af náttúrufæðibraut Innlent Lést í umferðarslysi við Vík í Mýrdal Innlent Segir þörf á fræðslu um kyrkingartak í grunnskólum Innlent Fyrstu hvalirnir skotnir í nótt Innlent Fleiri fréttir Kom ekki til skoðunar að gera Land Rover-jeppana upptæka BSO-stöðin komin á nýtt heimili Hrafni bjargað af þaki Byko Hlutu Vigdísarverðlaunin fyrir baráttu fyrir jöfnu aðgengi að þungunarrofi Skartgripaþjófur sigldi undir fölsku flaggi í íbúðum aldraðra „Það var alveg skýrt að það ætti bara að drepa þetta mót hjá okkur“ Segir þörf á fræðslu um kyrkingartak í grunnskólum Ferðalangar utan EES ekki tryggðir vegna veikinda eða slysa Fyrstu hvalirnir skotnir og Starmer segir af sér Fyrstu hvalirnir skotnir í nótt Reiðhjólauppboð lögreglu hefst í dag Fundu kannabisplöntur í húsi á Suðurnesjum Ekki lengur flestir sem útskrifast af náttúrufæðibraut Telur að það eigi að gera bíla upptæka vegna utanvegaaksturs Loka Sæbraut til austurs við Hörpu í kvöld Jarðskjálfti að stærð 3,1 í nótt Fjölskyldan í sárum og biður foreldra um að fylgjast með netnotkun barna Einn kærður fyrir stórfellda líkamsárás „Við náðum í hnakkadrambið á þeim“ Flytur sig í starfi um 900 kílómetra Ekkert sem bendi til fækkunar fugla við Varmá Sjósundsmaður tilkynntur til lögreglu „Það jákvæða við þetta er að þeir verða hundeltir núna“ Árekstur við Seljalandsfoss Lést í umferðarslysi við Vík í Mýrdal Eins til tveggja ára bið eftir ADHD-greiningu: „Ekki spurning að þetta getur haft áhrif á vellíðan og námsárangur“ Mótmæla hvalveiðum Leidd út í járnum eftir lögregluaðgerð í Skipholti Bergmál, biðlistar og bongóblíða Hafi ræst úr málum eftir martraðir um 1994 Sjá meira
Í þessari frétt er fjallað um sjálfsvíg og sjálfsskaða. Fólki sem glímir við sjálfsvígshugsanir eða sjálfsskaðahegðun er bent á Hjálparsíma Rauða krossins 1717, netspjallið á 1717.is og Píeta símann 552-2218 en þjónusta þeirra er aðgengileg allan sólarhringinn. Ef þú hefur orðið fyrir hótunum eða ofbeldi líkt og fjallað er um í fréttinni er þér bent á að hafa samband við lögreglu í síma 112 eða í netspjalli á 112.is.
Ef þú hefur orðið fyrir hótunum eða ofbeldi líkt og fjallað er um í fréttinni er þér bent á að hafa samband við lögreglu í síma 112 eða í netspjalli á 112.is. Í þessari frétt er fjallað um sjálfsvíg og sjálfsskaða. Fólki sem glímir við sjálfsvígshugsanir eða sjálfsskaðahegðun er bent á Hjálparsíma Rauða krossins 1717, netspjallið á 1717.is og Píeta símann 552-2218 en þjónusta þeirra er aðgengileg allan sólarhringinn.
Ofbeldi gegn börnum Netglæpir Lögreglumál Stafrænt ofbeldi Kynferðisofbeldi Tengdar fréttir Íslensk stúlka í klóm 764 hvött til sjálfsskaða og ofbeldis Greint var frá því í Kastljósi í gær að ung íslensk stúlka hefði lent í alþjóðlega glæpahópnum 764 og verið neydd til að skaða sjálfa sig og hvött til ofbeldis gegn öðrum. Þá varð hún vitni að þremur sjálfsvígum ungmenna í beinu streymi. 29. október 2025 06:59 Lögregla í Vestmannaeyjum rannsakar mál tengt 764-glæpahópnum Lögreglan í Vestmannaeyjum hefur nú til skoðunar mál sem tengist 764-glæpahópnum. Barnavernd og lögregla í Vestmannaeyjum hvetja foreldra til að fara yfir samfélagsmiðlanotkun barna sinna og fylgjast vel með líðan þeirra. Greint var fyrst frá á vef Eyjafrétta. 18. nóvember 2025 23:45 Mest lesið Fjölskyldan í sárum og biður foreldra um að fylgjast með netnotkun barna Innlent „Það var alveg skýrt að það ætti bara að drepa þetta mót hjá okkur“ Innlent Starmer segir af sér Erlent Leidd út í járnum eftir lögregluaðgerð í Skipholti Innlent „Við náðum í hnakkadrambið á þeim“ Innlent Telur að það eigi að gera bíla upptæka vegna utanvegaaksturs Innlent Ekki lengur flestir sem útskrifast af náttúrufæðibraut Innlent Lést í umferðarslysi við Vík í Mýrdal Innlent Segir þörf á fræðslu um kyrkingartak í grunnskólum Innlent Fyrstu hvalirnir skotnir í nótt Innlent Fleiri fréttir Kom ekki til skoðunar að gera Land Rover-jeppana upptæka BSO-stöðin komin á nýtt heimili Hrafni bjargað af þaki Byko Hlutu Vigdísarverðlaunin fyrir baráttu fyrir jöfnu aðgengi að þungunarrofi Skartgripaþjófur sigldi undir fölsku flaggi í íbúðum aldraðra „Það var alveg skýrt að það ætti bara að drepa þetta mót hjá okkur“ Segir þörf á fræðslu um kyrkingartak í grunnskólum Ferðalangar utan EES ekki tryggðir vegna veikinda eða slysa Fyrstu hvalirnir skotnir og Starmer segir af sér Fyrstu hvalirnir skotnir í nótt Reiðhjólauppboð lögreglu hefst í dag Fundu kannabisplöntur í húsi á Suðurnesjum Ekki lengur flestir sem útskrifast af náttúrufæðibraut Telur að það eigi að gera bíla upptæka vegna utanvegaaksturs Loka Sæbraut til austurs við Hörpu í kvöld Jarðskjálfti að stærð 3,1 í nótt Fjölskyldan í sárum og biður foreldra um að fylgjast með netnotkun barna Einn kærður fyrir stórfellda líkamsárás „Við náðum í hnakkadrambið á þeim“ Flytur sig í starfi um 900 kílómetra Ekkert sem bendi til fækkunar fugla við Varmá Sjósundsmaður tilkynntur til lögreglu „Það jákvæða við þetta er að þeir verða hundeltir núna“ Árekstur við Seljalandsfoss Lést í umferðarslysi við Vík í Mýrdal Eins til tveggja ára bið eftir ADHD-greiningu: „Ekki spurning að þetta getur haft áhrif á vellíðan og námsárangur“ Mótmæla hvalveiðum Leidd út í járnum eftir lögregluaðgerð í Skipholti Bergmál, biðlistar og bongóblíða Hafi ræst úr málum eftir martraðir um 1994 Sjá meira
Íslensk stúlka í klóm 764 hvött til sjálfsskaða og ofbeldis Greint var frá því í Kastljósi í gær að ung íslensk stúlka hefði lent í alþjóðlega glæpahópnum 764 og verið neydd til að skaða sjálfa sig og hvött til ofbeldis gegn öðrum. Þá varð hún vitni að þremur sjálfsvígum ungmenna í beinu streymi. 29. október 2025 06:59
Lögregla í Vestmannaeyjum rannsakar mál tengt 764-glæpahópnum Lögreglan í Vestmannaeyjum hefur nú til skoðunar mál sem tengist 764-glæpahópnum. Barnavernd og lögregla í Vestmannaeyjum hvetja foreldra til að fara yfir samfélagsmiðlanotkun barna sinna og fylgjast vel með líðan þeirra. Greint var fyrst frá á vef Eyjafrétta. 18. nóvember 2025 23:45
Eins til tveggja ára bið eftir ADHD-greiningu: „Ekki spurning að þetta getur haft áhrif á vellíðan og námsárangur“