Hlutu Vigdísarverðlaunin fyrir baráttu fyrir jöfnu aðgengi að þungunarrofi Atli Ísleifsson skrifar 22. júní 2026 13:07 Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra ásamt Lana Čop frá My Voice, My Choice. Stjr Slóvenska grasrótahreyfingin My Voice, My Choice hlaut í dag alþjóðleg jafnréttisverðlaun sem kennd eru við Vigdísi Finnbogadóttur, Vigdís Prize for Women Empowerment, við hátíðlega athöfn í Strassborg í Frakklandi. Samtökin berjast fyrir yfirráðarétt kvenna yfir líkama sínum og jöfnu aðgengi að þungunarrofi.
Í tilkynningu á vef dómsmálaráðuneytis og utanríkisráðuneytis segir að verðlaununum fylgi 60 þúsund evrur í verðlaunafé og verðlaunagripurinn Kvika, listaverk eftir Brynhildi Þorgeirsdóttur sem sé unnið úr íslensku hrauni og gleri. „Vigdísarverðlaunin minna okkur á að framfarir í jafnréttismálum verða ekki af sjálfu sér. Þær byggja á hugrekki, hugsjón og fólki sem er tilbúið að ryðja brautina fyrir aðra. Með verðlaununum veitum við mikilvægu starfi alþjóðlega athygli og hvetjum fleiri til að leggja sitt af mörkum í jafnréttisbaráttunni,“ er haft eftir Þorbjörgu S. Gunnlaugsdóttur dómsmálaráðherra. „My Voice, My Choice er grasrótarhreyfing frá Slóveníu sem berst fyrir yfirráðarétt kvenna yfir líkama sínum og jöfnu aðgengi að þungunarrofi. Samtökin hafa haft töluverð áhrif á framvindu mála í Evrópuþinginu og hafa þegar safnað 1,2 milljónum undirskrifta. Frá athöfninni í dag.Stjr Verðlaunin eru samstarfsverkefni Evrópuráðsþingsins og ríkisstjórnar Íslands. Þeim er ætlað er að vekja athygli á einstaklingum, stofnunum eða samtökum sem hafa stuðlað að valdeflingu kvenna með framúrskarandi hætti. Horft er meðal annars til verkefna sem stuðla að jafnrétti kynjanna, jafnari samfélagslegri þátttöku kvenna eða sem vekja athygli á ójafnri stöðu kvenna og hvetja til úrbóta. 300 umsóknir bárust Valnefndinni bárust alls 300 umsóknir til valnefndar verðlaunanna og uppfylltu 100 þeirra skilyrði verðlaunanna. Auk My Voice, My Choice voru tvö önnur verkefni tilnefnd. Annar vegar nepölsku samtökin SASANE sem eru starfrækt af þolendum mansals og kynferðisofbeldis. Samtökin þjálfa konur sem hafa orðið fyrir ofbeldi í lögfræðitengdum málum og hafa komið að 1.500 lögsóknum og bjargað 238 konum og stúlkum. Og hins vegar Girl Child Counselling Women Group sem eru samtök frá Kenía. Þau styðja við börn, stúlkur og ungar mæður, sem eru með HIV/AIDS og búa við sára fátækt, til að koma í veg fyrir mansal og kynlífsþrælkun. Þetta er í þriðja sinn sem verðlaunin eru veitt. Þau voru fyrst afhent árið 2024 til grísku grasrótarsamtakanna Irida Women‘s Center sem hlutu þau fyrir starf sitt gegn fátækt, félagslegri einangrun og kynbundnu ofbeldi. Í fyrra hlutu palestínsku samtökin Women of the Sun verðlaunin fyrir að stuðla að valdeflingu palestínskra kvenna,“ segir í tilkynningunni.
Þungunarrof Vigdís Finnbogadóttir Jafnréttismál Mest lesið Ráðherra hafi hrakið hana úr starfi: „Ég mun aldrei gleyma svipnum á Ragnari“ Innlent Heimsfræg Twitch-stjarna olli örtröð í miðbænum Innlent Tugir mættir til þess að mótmæla ríkisstjórninni Innlent „Það er ótrúlega dýrt og lýjandi að hafa rétt fyrir sér“ Innlent Þyrlan lenti við Hörpu Innlent „Farið að minna mig á stöðuna í Bandaríkjunum“ Innlent Átján kíló af kókaíni undir fölskum botni Innlent Tortímir gervigreindin mannkyninu? Innlent Nýr sendiherra er Búi og kannast ekki við „þjóðarmorð á hvítum“ Erlent Siðferðislegir hugleysingjar neiti að semja um frið Innlent Fleiri fréttir Söfnuðu 32 milljónum fyrir langveik börn Tómas kominn aftur til starfa Siðferðislegir hugleysingjar neiti að semja um frið Þyrlan lenti við Hörpu Daði spreytir sig í Gettu betur Ráðherra hafi hrakið hana úr starfi: „Ég mun aldrei gleyma svipnum á Ragnari“ Umdæmin mishrifin af fækkun embætta Tugir mættir til þess að mótmæla ríkisstjórninni Buxnalaus Lalli olli glundroða Þyrlan sótti slasaðan knapa Heimsfræg Twitch-stjarna olli örtröð í miðbænum Fagnar fækkun lögregluembætta og deilt um málverk af Danakonungi Átján kíló af kókaíni undir fölskum botni Eftirlitið fellur á herðar foreldra Loka hringveginum við Jökulsárlón Fá loksins að fagna aldarafmælinu „Það er ótrúlega dýrt og lýjandi að hafa rétt fyrir sér“ Fluttur til aðhlynningar eftir umferðarslys Tortímir gervigreindin mannkyninu? „Farið að minna mig á stöðuna í Bandaríkjunum“ Mátti þrífa harkalega í leikskólabarn Hafa skotið um hundrað bjargdúfur í Vestmannaeyjum Ákærður fyrir gróf brot á barnungri stjúpsystur sinni Sjaldgæfur gestur í Eyjum Bað um álit lögreglu á gæðum fíkniefna Skriða þveraði veginn í Árneshrepp Breiðholtsbraut lokuð allan morgundaginn Allt umfram 2,8 milljarða dregið frá Segir Ingu hafa eytt sér á Facebook Húsbíll fauk út af Sjá meira