Hægrimaðurinn De la Espriella nýr forseti Kólumbíu Áróra L Davíðsdóttir skrifar 23. júní 2026 08:57 De la Espriella hafði naumlega betur gegn vinstrimanninum Iván Cepeda, nánum bandamanni fráfarandi forseta, Gustavo Petro. Getty Hægrimaðurinn Abelardo de la Espriella sigraði naumlega seinni umferð forsetakosninga í Kólumbíu í fyrradag. Hann naut stuðnings Donalds Trump Bandaríkjaforseta í kosningabaráttu sinni og hefur heitið því að beita hernum gegn glæpum í landinu.
BBC segir kjör hans marka stefnubreytingu í því hvernig stjórnvöld munu takast á við vopnuð átök og ofbeldi í Kólumbíu. De la Espriella hafi heitið því að beita her landsins gegn vopnuðum hópum, eiturlyfjasmygli og glæpum í landinu. Nýkjörni forsetinn naut stuðnings Donald Trumps en stuðningsmenn De la Espriella sáust bera derhúfur prýddar slagorði sem vísar til kosningabaráttu Trumps sem á stóð „gerum Kólumbíu glæsta aftur,“ segir í frétt BBC. Trump óskaði De la Espriella til hamingju með kjörið á samfélagsmiðlinum Truth Social og sagðist hlakka til samstarfsins. De la Espriella hafi haft betur gegn vinstrimanninum Iván Cepeda, nánum bandamanni fráfarandi forseta, Gustavo Petro. Þegar talin höfðu verið yfir 99 prósent atkvæða hafði nýi forsetinn fengið um 49 prósent atkvæða, en Cepeda um 48 prósent. De la Espriella hafi notið mikils stuðnings í héruðum Karíbahafsstrandarinnar, sínum heimahögum. Reuters segir kjör De la Espriella flýta fyrir hægrisveiflu sem ríður nú yfir Rómönsku Ameríku. Petro, fráfarandi forseti, hafi verið fyrsti vinstrisinnaði forseti Kólumbíu. Frambjóðendur yst á hægri vængnum hafi náð vinsældum í álfunni með því að lofa harðari aðgerðum gegn glæpum og þrýstingi frá forseta Bandaríkjanna um að berjast gegn vaxandi áhrifum Kína í Rómönsku Ameríku og auka yfirráð Bandaríkjanna á svæðinu.
Donald Trump Kólumbía Mest lesið Dagný Ósk látin Innlent Framkvæmdastjóri hjá BL handtekinn og settur í leyfi Innlent Framkvæmdastjóri hjá þekktu fyrirtæki meðal handteknu Innlent Vaktin: Verkfallsaðgerðum flugvirkja aflýst Innlent Ætluðu að setja lög á verkfall flugvirkja Innlent Flugvirkjar aflýsa verkfalli Innlent Drengurinn er fundinn Innlent Fylgi haggast varla eftir atkvæðagreiðslu Innlent Strætisvagni ekið utan í rútu á Snorrabraut Innlent Þakkar Guði fyrir hjálminn þegar drengurinn höfuðkúpubrotnaði Innlent Fleiri fréttir Dreifðu óvart piparúða um þinghúsið fyrir leikmun í innflytjendaumræðu Íslensk lögregla hjálpaði við rannsókn á smygli á fólki til Bretlands Polo einn kröftugasti fellibylur sögunnar Segja aðgengi að heimili forsetans forréttindi en ekki rétt Fögnuður varð að fjöldamorði Taívan og mannréttindi rauðar línur fyrir Kínverja Bað Trump um „vetrarpakka“ Segir stóra ákvörðun framundan Xi vill að Trump sleppi takinu á Taívan Þetta er í samkomulaginu um Grænland Halda andstæðingum fjarri Grænlandi með samkomulagi Svona var ræða Trumps: Spurning um „gereyðingu“ og nýtt nafn á gervigreind Í leyfi á meðan kosningasvik eru til rannsóknar Bein útsending: Ræða Trumps á allsherjarþinginu Bretar ætla að aðstoða Sáda gegn Hútum Beita buddunni til að vega á móti óvinsældum Trumps Rétta yfir konu spænska forsætisráðherrans Grunur um alvarlegt kosningasvindl í Svíþjóð Stefna að tveimur nýjum herstöðvum á Grænlandi Sniðganga Hvíta húsið Bað Selenskí um að stöðva árásir á rússneskar olíuvinnslur Höfða mál gegn Trump vegna bannsins Pútín sló öll met Sigurboginn verður leyniskyttuhreiður Maður á níræðisaldri lést í átökum um sólbekk Noregur og Kanada auka samstarf í varnarmálum Fyrirgefur Lindsay fyrir að myrða börnin Mótmæli í Texas vegna ICE-liða Kallar kosningarnar „hörmung“ en heitir því að fara ekki fet Senda Trump pillu vegna Ameríkukorts Sjá meira