Körfubolti

Caitlin Clark kýld í hálsinn og þjálfarinn segir dómarana sýna henni van­virðingu

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Stephanie White, þjálfari Indiana Fever, þykir Caitlin Clark fá illa meðferð frá dómurum WNBA-deildarinnar.
Stephanie White, þjálfari Indiana Fever, þykir Caitlin Clark fá illa meðferð frá dómurum WNBA-deildarinnar. getty/Andy Lyons

Þjálfari Indiana Fever segir að meðferðin sem ofurstjarnan Caitlin Clark fái hjá dómurum WNBA-deildarinnar í körfubolta sé óásættanleg og þeir sýni henni vanvirðingu.

Clark fór meidd af velli í 3. leikhluta þegar Fever laut í lægra haldi fyrir Phoenix Mercury í gær, 111-109.

Varnarmenn Mercury tóku fast á Clark í leiknum. Alyssa Thomas kýldi hana meðal annars í hálsinn en slapp við refsingu.

Skömmu síðar var brotið á Clark í þriggja stiga skoti. Hún lenti illa og haltraði þegar hún stóð á fætur. Dómarar leiksins skoðuðu atvikið, ekki vegna brotsins á Clark heldur til að skoða hvort hún hefði slegið til varnarmannsins.

Stephanie White, þjálfari Fever, fór hörðum orðum um dómgæsluna í viðtali eftir leikinn og segir Clark ekki fá sanngjarna meðferð. Clark fór af velli vegna bakmeiðsla í 3. leikhluta og kom ekkert meira við sögu í leiknum.

„Við erum með einstakan leikmann, WNBA-ofurstjörnu, sem fékk tvö högg sem ekki var refsað fyrir. Það er algjörlega óásættanlegt,“ sagði White.

„Við vörðum öllum tímanum á undirbúningstímabilinu í að skoða dómgæsluna. Allt sem við biðjum um er samræmi. Hún fær ekki sömu meðferð og aðrir. Höggið í hálsinn er galið. Það er hættulegt. Það er pirrandi þegar þetta gerist aftur og aftur en mér fannst þetta vera svívirðilegt.“

Clark sló í gegn með Iowa-háskólanum en hún er stigahæst í sögu háskólakörfuboltans, bæði hjá konum og körlum.

Fever valdi Clark með fyrsta valrétti í nýliðavali WNBA fyrir tveimur árum. Hún var valin nýliði ársins á fyrsta tímabili sínu í WNBA og var þá einnig stoðsendingahæsti leikmaður deildarinnar.

Hin 24 ára Clark er sannkölluð ofurstjarna og þykir hafa átt stóran þátt í því að auka vinsældir kvennakörfuboltans.

Fever er í 7. sæti WNBA með tíu sigra og átta töp. Clark er með 21,2 stig, 4,0 fráköst og 8,6 stoðsendingar að meðaltali í leik á tímabilinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×