Telja ekkert annað í kortunum en að verð sjávarafurða hækki enn meira
Sögulega hátt verð á sjávarafurðum, einkum þorski, munu halda áfram að styðja við afkomu Brims á næstu misserum og ekkert sem bendir til annars en að verð hækki meira, að mati greinenda. Þótt verðmat á Brim sé hækkað talsvert þá er fjárfestum ráðlagt stöðu sinni í félaginu óbreyttri og meðal annars varað við þeirri „raunverulegu hættu“ að sjávarútvegur færist aftur úr fremstu röð ef fjárfestingum er ekki sinnt af sama magni.
Tengdar fréttir
Uppgjör Brims framar væntingum en horfur framundan sagðar „blendnar“
Þrátt fyrir samdrátt í bolfisksafla þá þýddi hátt afurðaverð að rekstrarhagnaður Brims á fyrstu þremur mánuðum ársins, sem var talsvert yfir væntingum greinenda, var sá næstmesti í sögu félagsins. Hlutabréfaverð Brims er núna í hæstu hæðum en stjórnendur segja að horfur framundan séu „blendnar“.