Körfubolti

Í bann fyrir „galið og hættu­legt“ brot á Caitlin Clark

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Caitlin Clark er án vafa skærasta stjarna WNBA-deildarinnar. Mörgum þykir hún fá ósanngjarna meðferð frá mótherjum og dómurum deildarinnar.
Caitlin Clark er án vafa skærasta stjarna WNBA-deildarinnar. Mörgum þykir hún fá ósanngjarna meðferð frá mótherjum og dómurum deildarinnar. getty/Andy Lyons

Alyssa Thomas, leikmaður Phoenix Mercury í WNBA-deildinni í körfubolta, hefur verið úrskurðuð í eins leiks bann fyrir að kýla Caitlin Clark í leik gegn Indiana Fever.

Í 2. leikhluta í leiknum í fyrradag kýldi Thomas Clark í hálsinn. Hún slapp við refsingu og atvikið var ekki skoðað.

Eftir leikinn kvartaði Stephanie White, þjálfari Fever, yfir meðferðinni sem Clark fær frá dómurum WNBA-deildarinnar og sagði brot Thomas galið og hættulegt.

„Við erum með einstakan leikmann, WNBA-ofurstjörnu, sem fékk tvö högg sem ekki var refsað fyrir. Það er algjörlega óásættanlegt,“ sagði White.

„Við vörðum öllum tímanum á undirbúningstímabilinu í að skoða dómgæsluna. Allt sem við biðjum um er samræmi. Hún fær ekki sömu meðferð og aðrir. Höggið í hálsinn er galið. Það er hættulegt. Það er pirrandi þegar þetta gerist aftur og aftur en mér fannst þetta vera svívirðilegt.“

Í gær brást WNBA við og dæmdi Thomas í eins leiks bann fyrir að kýla Clark. Samkvæmt reglum deildarinnar áskilur hún sér rétt til að skoða atvik sem ekki var refsað fyrir og breyta þeim í óíþróttamannslega villu.

Thomas tekur út refsingu sína þegar Mercury mætir Toronto Tempo á morgun. Sama dag mætir Fever Los Angeles Sparks. Ekki liggur fyrir hvort Clark tekur þátt í leiknum en hún fór meidd af velli gegn Mercury.

Grunnt er á því góða milli Fever og Mercury en fimm leikmenn liðanna fengu tæknivillu þegar þau mættust á mánudaginn var. Meðal þeirra var Clark sem þótti hafa ögrað leikmönnum Mercury. Sjálf taldi hún sig hafa fengið tæknivilluna fyrir að klappa saman höndunum.

Í kjölfar leiksins á miðvikudaginn og brotsins á Clark hefur skapast mikil umræða um hvort WNBA geri nóg til að vernda vinsælasta leikmann deildarinnar og hvort hún fái sanngjarna meðferð hjá dómurum.

Fever situr í 7. sæti WNBA með tíu sigra og átta töp. Clark er fjórði stigahæsti leikmaður deildarinnar á tímabilinu með 21,2 stig að meðaltali í leik og næststoðsendingahæst (8,2 í leik). Hún er á sínu þriðja tímabili í WNBA.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×