Innherji

Kári bætir veru­lega við stöðuna í Stoðum með kaupum fyrir nærri milljarð

Hörður Ægisson skrifar
Kári Guðjón Hallgrímsson er þrautreyndur bankamaður sem hefur um árabil starfað hjá erlendum fjármálastofnunum í London.
Kári Guðjón Hallgrímsson er þrautreyndur bankamaður sem hefur um árabil starfað hjá erlendum fjármálastofnunum í London.

Félag í eigu Kára Guðjóns Hallgrímssonar, fjárfestis og sjóðstjóra, hefur á fyrstu mánuðum ársins haldið áfram að stækka talsvert við eignarhlut sinn í Stoðum, en fjárfestingafélagið hefur haft uppi áform um skráningu á hlutabréfamarkað.


Tengdar fréttir

Hundrað milljarða ferðaþjónusturisi verður til sam­hliða skráningu á markað

Stjórnendur Bláa lónsins og Arctic Adventures stefna að sameiningu fyrirtækjanna, sem myndi búa til risa í íslenskri ferðaþjónustu með hlutafjárvirði upp á samtals um hundrað milljarða, samhliða áformum um skráningu á markað síðla hausts þar sem ætlunin er að sækja mögulega meira en tíu milljarða. Miðað við fyrirhuguð skiptihlutföll í samrunanum þá munu Stoðir, stór eigandi í báðum félögum, verða annar umsvifamesti hluthafinn með nærri fimmtán prósenta hlut.

Kári kaupir í Stoðum fyrir um 300 milljónir 

Félag í eigu Kára Guðjóns Hallgrímssonar, stjórnanda á skuldabréfasviði fjárfestingabankans JP Morgan í London, var í hópi þeirra fjárfesta sem keyptu undir lok síðasta mánaðar samtals um nítján prósenta hlut Arion banka í fjárfestingarfélaginu Stoðum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×