Tala látinna hækkar og gremja íbúa eykst Lovísa Arnardóttir skrifar 28. júní 2026 07:43 Fólk leitar í rústum og notar vinnuvélar til þess líka. Tugir þúsunda eru enn týnd. Vísir/EPA Tala látinna í Venesúela í kjölfar tveggja stórra jarðskjálfta í síðustu viku hefur hækkað og er nú 1.430. Tilkynnt hefur verið um að að minnsta kosti 68.900 séu týnd nú þegar fjórir dagar eru liðnir frá því að eftir að tveir jarðskjálftar, 7,2 og 7,5 að stærð, lögðu Suður-Ameríkuþjóðina í rúst.
Í umfjöllun BBC segir að hundruð bygginga hafi hrunið og undir rústunum séu þúsundir Venesúelabúa enn. Tala látinna og slasaðra hækkar með hverri klukkustund. Sameinuðu þjóðirnar áætla að um 50.000 manns sé saknað. Í umfjöllun AP segir að Venesúelabúar sem leituðu að ástvinum og nágrönnum hafi notað skóflur, stórvirkar vinnuvélar, reipi og berar hendur ofan á hrúgum af hruninni steypu um allt La Guaira, eitt af þeim fylkjum sem urðu verst úti. Alþjóðlegar björgunarsveitir hafa bæst í hópinn síðustu daga og byrjað að klifra í gegnum rústirnar. Spennan hefur verið mikil samkvæmt erlendum miðlum og sérstaklega vegna þess að margir íbúar Venesúela telja viðbrögð stjórnvalda ófullnægjandi. Í frétt AP segir að hermenn þeirra, slökkviliðsmenn, lögreglumenn og herforingjanemar hafi augljóslega verið vanbúnir til að bregðast við umfangi hörmunganna. Gremja fólks hafi svo magnast vegna tilrauna til að varpa fram ímynd öflugra viðbragða ríkisins. Hjálparstofnanir telja fyrstu 48 til 72 klukkustundirnar skipta sköpum til að ná fólki lifandi úr rústunum, þó að það geti lengst ef það hefur aðgang að mat og vatni. Venesúelsk yfirvöld sögðu að 17 flugvélar með meira en 1.600 björgunarsveitarmenn hefðu lent á laugardag. Þurfa leyfi til að komast inn Yfirvöld tilkynntu á föstudag að 861 sjálfboðaliði frá Mexíkó, Bandaríkjunum, El Salvador, Sviss, Kólumbíu og öðrum löndum væri í Venesúela og fleiri væru á leiðinni. „Þarna er hrúga af líkum frá því í gærkvöldi. Nýfædd börn,“ er haft eftir Mileidy Romero í frétt AP, sem var meðal þeirra sem leituðu í strandbænum Caraballeada. „Klukkan 20:00 (í gær) var fólk á lífi þarna niðri og þeir hafa ekki nennt að bjarga því. Við höfum fundið nokkur lík og þeir hafa ekki hjálpað okkur að ná þeim heldur. Eftir hverju eru þeir að bíða?“ Björgunarsveitarmenn frá Mexíkó eru komnir á vettvang til að aðstoða. Myndin er tekin í La Guaira.Vísir/EPA Starfandi forseti Venesúela, Delcy Rodríguez, sagði í ávarpi í ríkissjónvarpinu í gær að fjórtán þúsund liðsmenn hersins og lögreglunnar væru á eftirliti á svæðinu, þar sem aðgangur er nú lokaður og sérstök leyfi eru nauðsynleg til að komast inn. En margir á hamfarasvæðum sögðust lítið hafa séð af þeim. Hörmungarnar eru samkvæmt frétt AP gríðarleg áskorun fyrir Rodríguez, fyrrverandi varaforseta sem tók við embætti í janúar eftir að Bandaríkin handtóku og fjarlægðu þáverandi forseta, Nicolás Maduro. Venesúela hefur staðið frammi fyrir efnahagslegri upplausn í meira en áratug og margir hafna lögmæti þeirrar stjórnmálahreyfingar sem Rodríguez er fulltrúi fyrir. Eyðileggingin er gífurleg í La Guaira.Vísir/EPA Rodríguez sagðist hafa rætt við Donald Trump forseta Bandaríkjanna og Marco Rubio utanríkisráðherra Bandaríkjanna á föstudag og að þeir hefðu ítrekað skuldbindingu sína um að senda björgunarsveitir og hjálpargögn. Sex milljónir verði fyrir áhrifum Alþjóðafólksflutningastofnunin hefur greint frá því að hún telji að um fleiri en sex milljónir manna gætu orðið fyrir áhrifum af hörmungunum, þar af um tvær milljónir í höfuðborginni Caracas einni. Í frétt AP segir einnig að greint hafi verið frá því að eyðileggingin hefði magnast vegna þess hve hratt grunnir skjálftar fylgdu hver öðrum. Dögum saman hristu smærri eftirskjálftar af og til höfuðborgina Caracas og svæði sem urðu fyrir skjálftunum, þar á meðal einn sem mældist 4,8 á laugardag. Fólk sem hefur misst heimili sitt bíður í röð eftir því að fá aðstoð. Vísir/EPA Mannúðarhjálparstofnanir segja að fyrstu 48 til 72 klukkustundirnar séu mikilvægar til að bjarga fólki lifandi, þó að þessi gluggi geti verið lengri ef þeir sem eru fastir hafa aðgang að mat og vatni. „Hver manneskja sem bjargast er kraftaverk,“ segir Jorge Rodríguez, forseti þjóðþings landsins. „Við munum ekki fela neitt varðandi umfang þessara hörmunga.“
Venesúela Bandaríkin Mexíkó El Salvador Sviss Kólumbía Jarðskjálfti í Venesúela 2026 Tengdar fréttir Bíður milli vonar og ótta á meðan fjölskyldan er föst undir hótelrústum Venesúelsk kona á Íslandi bíður milli vonar og ótta eftir fregnum af bróður sínum og fjölskyldu sem lentu undir braki hótelbyggingar í öflugum jarðskjálfta í landinu á miðvikudag. 27. júní 2026 17:32 Leitað í rústum bygginga og þúsunda er saknað Björgunarlið vinnur nú hörðum höndum að því að leita í rústum bygginga í Caracas höfuðborg Venesúela og á fleiri svæðum í norðurhluta landsins eftir jarðskjálftana öflugu sem riðu yfir í fyrradag. 26. júní 2026 07:43 „Ég á vin og bróðir hans er enn fastur undir rústum byggingar“ Óttast er að tugir þúsunda manna séu látnir eftir öfluga jarðskjálfta í Venesúela. Umfangsmikilar björgunaraðgerðir standa nú yfir og hafa hundruðir bygginga þegar hrunið. Maður frá Venesúela sem býr á Íslandi segist ekki hafa fest svefn í alla nótt vegna hamfaranna. 25. júní 2026 22:30 Mest lesið „Þessa vanlíðan þekkir enginn nema að hafa upplifað hana“ Innlent Ísraelskir ferðamenn með ógnandi tilburði á palestínsku kaffihúsi Innlent Skilti sem átti að fæla burt ferðamenn hefur öfug áhrif Innlent Reynslan sýnt að neytendur séu ekki tilbúnir Viðskipti innlent Löng röð í öryggisleitina þriðja daginn í röð Innlent Sextán ára drengur stunginn til bana í busavígslu Erlent Prófessor sakaður um ritstuld fannst látinn Erlent Sögusagnir farið af stað þegar hann sást á fundinum Innlent Hringvegurinn lokaður í gegnum Borgarnes annað kvöld Innlent Fannst hann ekki geta haldið áfram Erlent Fleiri fréttir Fannst hann ekki geta haldið áfram Bætist í tölu látinna Sextán ára drengur stunginn til bana í busavígslu Hótar að gera Hormússundið að bandarísku yfirráðasvæði Tugir látnir eftir stóran jarðskjálfta Prófessor sakaður um ritstuld fannst látinn Önnur lestin af sporinu á innan við sólarhring Mangione játar sök: „Ég skaut herra Thompson og hann lést“ Biður hæstarétt um grænt ljós á veislusalinn „Óumflýjanlegt“ að sjúkdómar blossi aftur upp vegna aðgerða Bandaríkjanna Í basli með að finna nýjan sendiherra í Washington DC Trump skipar sjóhernum að notast aftur við gufu Gróður brennur beggja vegna Ermarsunds Sektaður fyrir að nota þokulúður til að vekja ísbjörn Búa sig undir annað áhlaup á Ceuta Fara fjallabaksleið til að koma nafni Trump á Kennedy-miðstöðina Farage sigraði en Ruslatunnufés greifi hlaut fjórðung atkvæða Komu í veg fyrir launmorð á Bandaríkjamanni í Varsjá Hafa áhyggjur af geðheilsu þúsunda sjóliða Úkraínumenn gáfu Kananum á baukinn Mangione sagður ætla að játa Mannskæð sprenging í stærstu höfn Evrópu Sagður hafa setið fyrir foreldrum sínum áður en hann myrti þau Senda inn liðsauka þar sem landtökumenn sitja um heimili Palestínumanna Handtóku og ákærðu baráttukonu gegn Kú Klúx Klan Stefna Trump vegna sölu á samfélagsmiðlafærslum hans Olíuborunum á Grænlandi frestað eftir viðræður við stjórnvöld Leavitt hættir hjá Trump ICE-liðar fá rafmagnshanska Létu sprengjum rigna á rússneska flotastöð við Svartahaf Sjá meira
Bíður milli vonar og ótta á meðan fjölskyldan er föst undir hótelrústum Venesúelsk kona á Íslandi bíður milli vonar og ótta eftir fregnum af bróður sínum og fjölskyldu sem lentu undir braki hótelbyggingar í öflugum jarðskjálfta í landinu á miðvikudag. 27. júní 2026 17:32
Leitað í rústum bygginga og þúsunda er saknað Björgunarlið vinnur nú hörðum höndum að því að leita í rústum bygginga í Caracas höfuðborg Venesúela og á fleiri svæðum í norðurhluta landsins eftir jarðskjálftana öflugu sem riðu yfir í fyrradag. 26. júní 2026 07:43
„Ég á vin og bróðir hans er enn fastur undir rústum byggingar“ Óttast er að tugir þúsunda manna séu látnir eftir öfluga jarðskjálfta í Venesúela. Umfangsmikilar björgunaraðgerðir standa nú yfir og hafa hundruðir bygginga þegar hrunið. Maður frá Venesúela sem býr á Íslandi segist ekki hafa fest svefn í alla nótt vegna hamfaranna. 25. júní 2026 22:30