Biður bosnísku þjóðina afsökunar: „Get ekki bent á landið á korti“ Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 28. júní 2026 14:00 Sigri Bosníu á Katar var vel fagnað á götum Sarajevo. getty/Elman Omic Bandarísk sjónvarpskona hefur beðist afsökunar á ummælum sínum um Bosníu, næsta mótherja Bandaríkjanna á heimsmeistaramótinu í fótbolta. „
Ég gæti ekki bent á landið á korti. Ég veit ekkert um Bosníu og vil ekki vita neitt. Því Bandaríkin eru komin til baka, betri en nokkru sinni fyrr,“ sagði sjónvarpskonan Abigail Velez eftir að ljóst var að Bandaríkin myndu mæta Bosníu í 32-liða úrslitum HM. „Þetta er næsta miðvikudag. Vertu klár, Bosnía, því þú vilt þetta ekki. Þú vilt þetta ekki svona. En þú færð það,“ bætti Velez við. Ummæli hennar féllu í grýttan jarðveg hjá Bosníumönnum og hún fann sig því knúna til að biðjast afsökunar. „Í misheppnaðri tilraun til að hafa gaman gekk ég of langt og í hugsunarleysi lét ég óviðeigandi ummæli falla,“ skrifaði Velez á Instagram. „Ég bið bosnísku þjóðina og bosníska fótboltalandsliðið afsökunar. HM á að snúast um sameinuð samfélög en ummæli mín voru ekki í þeim anda. Ég óska öllum liðum alls hins besta á vegferð sinni á HM.“ View this post on Instagram A post shared by Abigail Vélez (@abc7abigail) Bosnía tryggði sér sæti í 32-liða úrslitum HM með 3-1 sigri á Katar í lokaumferð riðlakeppninnar. Bosníumenn enduðu í 3. sæti B-riðils með fjögur stig. Bandaríkin fengu sex stig í D-riðli og enduðu í efsta sæti hans. Leikur Bandaríkjanna og Bosníu fer fram á Levi's-leikvanginum í Santa Clara í San Francisco á miðvikudaginn kemur. Sigurvegarinn mætir annað hvort Belgíu eða Senegal í sextán liða úrslitum.
HM 2026 í fótbolta Bosnía og Hersegóvína Mest lesið Brotinn Gylfi Þór fórnar sér: „Brynja, ég elska þig“ Fótbolti Arnar um Aron Einar: „Ekkert persónulegt“ Fótbolti Ákvörðun Vals algjörlega galin og það sýnir sig núna Íslenski boltinn Allt á suðupunkti: Saka Ísraela um að hrækja á aðstoðarmann Heimis Fótbolti „Þetta er ástæðan fyrir því að allir hata Bandaríkin“ Fótbolti Bakgarðsáskorunin: Hroturnar heyrðust í beinni útsendingu Sport Ökuþórar hrista hausinn: „Eins og Lego kappakstur“ Formúla 1 Ráða nýjan yfirþjálfara eftir líkamsárás forverans Sport Meiddist í Portúgal Enski boltinn Gylfi með til Eistlands Fótbolti Fleiri fréttir Óvæntur meðlimur á liðsmynd Manchester United Mikið sem þarf að hugsa um áður en fyrirkomulagi Íslandsmótsins sé breytt Ronaldo snúinn aftur til félagsliðsins Frakkland - Belgía 4-1 | Varamennirnir björguðu Frökkum Selfoss missir mikið efni Arnar um Aron Einar: „Ekkert persónulegt“ Arnar sat fyrir svörum í Tallinn Dregur sig úr landsliðshópnum Brotinn Gylfi Þór fórnar sér: „Brynja, ég elska þig“ Markvörður Eista meiddur Gylfi með til Eistlands Fljúga til Færeyja í hádeginu Meiddist í Portúgal „Skilgreinandi augnablik“ „Þetta er ástæðan fyrir því að allir hata Bandaríkin“ Segir dyrnar opnar fyrir Ronaldo en biðst ekki afsökunar Ákvörðun Vals algjörlega galin og það sýnir sig núna Allt á suðupunkti: Saka Ísraela um að hrækja á aðstoðarmann Heimis Zirkzee með sigurmark en Klopp áfram í brasi Sjáðu fernu Niu og þrennu Ásu í ótrúlegum leik Sveindís til Króatíu eftir dramatík gegn toppliðinu Karólína skoraði og Cecilía hélt hreinu í síðasta leik fyrir HM-umspilið Súrt jafntefli í seinni leiknum sem enginn vildi spila Arftaki Ronaldo áfram sjóðheitur í sigri Tveir í bann fyrir að bauna á Heimi og Ísraelar með sorgarbönd „Við erum alltaf að fara að taka þetta“ „Þetta er bara víti og rautt spjald“ Breiðablik - Þróttur 5-4 | Ótrúleg endurkoma meistaranna Fýluferð til Keflavíkur: „Vitum ekkert eins og staðan er núna“ Sjáðu mörkin úr slátrun Englands Sjá meira