Innlent

„Ætlum að sækja að olíu­fé­laginu sem heldur þessu slátur­húsi gangandi“

Oddur Ævar Gunnarsson skrifar
Frá Hvalfirði.
Frá Hvalfirði. Vísir/Vilhelm

Paul Watson-samtökin boða atlögu að olíufélaginu sem þjónustar Hval hf, í færslu á samfélagsmiðlum. Samtökin segja þar að önnur langreyðanna sem veidd hafi verið í gær hafi verið kálffull.

Þetta kemur fram í harðorðri færslu á samfélagsmiðlinum Instagram. Líkt og fram hefur komið er skip Paul Watson, Bandero, nú í íslenskri efnahagslögsögu og hefur Watson boðað aðgerðir gegn hvalveiðum Íslendinga. Varðskipið Þór hefur fylgt Bandero eftir undanfarna daga.

„Tveir hvalir til viðbótar dregnir á land. Annar þeirra var kálffull kýr. Tíu hvalir drepnir það sem af er og vertíðin er varla hafin. En Bandero er að koma til Íslands og nýja aðgerðin okkar með @chilli.app er komin í loftið: Við beinum spjótum okkar að olíufélaginu sem heldur þessum drápum gangandi. Saman munum við stöðva þetta fyrir fullt og allt.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×