Albert um KA: „Eins og þú hafir verið fullur í Football Manager“ Aron Guðmundsson skrifar 30. júní 2026 11:31 Albert Brynjar Ingason, einn af sérfræðingum Stúkunnar, hafði sitthvað að segja um KA-liðið sem gengur hvorki né rekur hjá í Bestu deildinni um þessar mundir Vísir/Samsett Rætt var um stöðu KA í Bestu deildinni í Stúkunni á Sýn Sport Ísland í gær. Liðið hefur tapað fimm leikjum í röð og er að mati sérfræðinga Stúkunnar illa samsett. Þá hefur ekki tekist að ná því besta út úr Danijel Djuric og Oliver Heiðarssyni sem voru keyptir fyrir væna summu heim úr atvinnumennskunni.
KA tapaði sínum fimmta leik í röð í Bestu deildinni á sunnudaginn síðastliðinn gegn Stjörnunni. Lokatölur í Garðabænum urðu 3-1 Stjörnunni í vil. KA vermir nú 10. sæti Bestu deildarinnar og er aðeins þremur stigum frá fallsæti. Aðeins sótt tíu stig af 36 mögulegum í fyrstu tólf umferðum deildarinnar. „Danijel Dejan Djuric og Oliver Heiðarsson eru leikmennirnir sem KA-menn settu peningana í og ætluðu bara að treysta á að liðið myndi skora fleiri mörk núna og bæta varnarleikinn seinna. En þessir leikmenn hafa heldur betur ollið vonbrigðum,“ sagði Albert Brynjar, einn af sérfræðingum Stúkunnar. Klippa: Stúkan um KA: „Svo illa samsett lið“ „Ég var mjög spenntur fyrir kaupum KA á Djuric og hef enn mikla trú á honum hjá KA sem og Oliver. Þetta eru leikmenn á fínum aldri. Þegar að þeir finna sitt lið þá hefur maður enn trú á því að þetta muni smella hjá þeim. Það þarf að brjóta ísinn. Fyrir tímabilið var Ívar Örn Árnason, fyrirliði KA liðsins í fyrra, seldur til Breiðabliks og var liðið styrkt með fjölda leikmann á miðsvæði sem og fram á við. Albert er ekki hrifinn af því hvernig liðið er samsett. „Fyrir mitt leyti lítur þetta út eins og þú hafir verið fullur í Football Manager, vaknað daginn eftir og séð að þú seldir fyrirliðann þinn og gleymdir að kaupa varnarmenn í staðin. Án gríns. Þetta er svo illa samsett lið. Það er málið.“Umræðuna um KA í Stúkunni frá því í gær má sjá í heild sinni í spilaranum hér ofar í fréttinni.
Besta deild karla KA Stúkan Mest lesið „Fiðringurinn breyttist smá í að kúgast annað slagið“ Íslenski boltinn Liverpool og City muni ekki berjast um titilinn Enski boltinn „Búinn að missa töluna af leikmönnum sem FH-ingar eru búnir að fá“ Sport Hamilton pirraður á Ferrari: „Erfitt að horfa á þetta“ Formúla 1 Emery bað Watkins um að útskýra fjarveru sína: „Það er spurning fyrir hann“ Enski boltinn „Verið að drekkja þeim í áhyggjum að þetta verði bara aftur sama sagan“ Enski boltinn Salah skoraði fyrstu mörkin fyrir Trabzonspor Fótbolti Átta marka veisla í fyrsta leik Eiðs Smára og Víkingsvélin mallar áfram Íslenski boltinn Kvaddi stuðningsmenn Víkings: „Það er hluti af mér núna“ Íslenski boltinn Uppgjörið: Víkingur - Valur 2-0 | Frábærar tíu mínútur voru nóg í Víkinni Íslenski boltinn Fleiri fréttir Átta marka veisla í fyrsta leik Eiðs Smára og Víkingsvélin mallar áfram Uppgjörið: Víkingur - Valur 2-0 | Frábærar tíu mínútur voru nóg í Víkinni Kvaddi stuðningsmenn Víkings: „Það er hluti af mér núna“ „Aron er frábær leikmaður en ég vil samt fá meira frá honum“ Uppgjörið: KA - KR 3-5 | Aron með þrennu fyrir norðan „Fiðringurinn breyttist smá í að kúgast annað slagið“ Haukar komnir upp í Lengjudeildina Uppgjörið: ÍA - FH 1-1 | Jafnt á Skaganum Uppgjörið: Keflavík - ÍBV 1-0 | Keflvíkingar tengdu saman sigra í fyrsta skipti í sumar Uppgjörið: Stjarnan - Þór 4-2 | Stjarnan sýndi sparihliðarnar með nýja menn við stjórnvölinn Sara skoraði tvö og Haukar fóru upp í annað sætið Njarðvíkingar stöðvuðu sigurgöngu Húsvíkinga Ísfirðingar geta andað léttar HK vann enn einn heimaleikinn og Fylkir flengdi Grindavík Sjáðu Bergdísi bjarga botnliðinu, kraftaverk Lillýar og óheppni fyrirliðans „Kærkomið að fá eitt svona mark“ „Ég skora náttúrulega ekki oft þannig að þetta er eiginlega kraftaverk“ „Ég þekki náttúrulega Ásdísi svolítið vel“ Sjáðu Eið Smára stýra sinni fyrstu æfingu með KA Uppgjörið: FH - Víkingur R 0-1 | Magnaður sigur Víkinga Uppgjörið: Þór/KA - Valur 0-1| Valskonur úr fallsæti Uppgjörið: ÍBV - Þróttur 1-2 | Ekki góð endurkoma BBC birtir innslag um sögulegt einvígi KR og Liverpool Strippaði á Kópavogsvelli fyrir Bestu deildina Sjáðu mörkin: Útsendari FH refsaði toppliðinu og Ása Björg með sýningu „Hún fær fullt frelsi til að fara í öll skógarhlaup sem henni dettur í hug“ „Til skammar á Bestu deildar stigi að vökva ekki völlinn“ Uppgjörið: Grindavík/Njarðvík - Fram 4-0 | Unnu Fram í þriðja sinn í sumar Uppgjörið: Stjarnan - Breiðablik 2-0 | Garðabærinn með hreðjatak á Kópavogi Aðalþjálfarar KFG stýra Stjörnunni út tímabilið Sjá meira