Þjóðarmorð? Finnur Th. Eiríksson skrifar 4. júlí 2026 15:10 Fá orð hreyfa jafn mikið við tilfinningum manns og „þjóðarmorð“. Orðið vekur hugrenningatengsl við einhver ógeðfelldustu verk mannkynssögunnar. Þar af leiðandi vekja ásakanir um þjóðarmorð iðulega mikla reiði í garð árásaraðilans hverju sinni. En væri samt ekki skynsamlegt að spyrja, þrátt fyrir tilfinningahitann, hvort slíkum ásökunum sé alltaf treystandi? Eru þeir sem skrifa fréttirnar marktækir eða hafa þeir kannski hag af því að setja upplýsingar fram á villandi hátt? Mætti ekki að sama skapi spyrja hvort fræðimenn sem fjalla um viðfangsefnið séu alltaf marktækir? „Þjóðarmorð“ endurskilgreint Í eina tíð var orðið „þjóðarmorð“ gagnlegt til að lýsa ákveðnum tegundum stríðsglæpa. En árið 1951 varð breyting þar á. Þá tók gildi sáttmáli Sameinuðu þjóðanna um þjóðarmorð sem endurskilgreindi hugtakið á mjög víðtækan hátt. Önnur grein sáttmálans víkkar hugtakið þannig að það nái einnig utan um trúarhópa. Auk þess eru ýmsar aðgerðir felldar undir hugtakið sem fela ekki í sér morð, til dæmis tilfærsla barna milli hópa. Þannig að samkvæmt sáttmálanum þarf „þjóðarmorð“ hvorki að hafa bitnað á þjóð né þarf nokkur í raun að hafa verið myrtur. Meint þjóðarmorð síðan 1951 Hversu mörg þjóðarmorð eru sögð hafa átt sér stað undanfarin sjötíu og fimm ár? Flestir myndu líklega giska á þrjú eða fjögur. Vissulega hafa aðeins fáir atburðir verið skilgreindir sem þjóðarmorð af dómstólum á þessu tímabili. Engu að síður hafa fjölmiðlar, menntafólk og alþjóðastofnanir útlistað fjölmörg meint fórnarlömb þjóðarmorða síðan árið 1951. Eftirfarandi listi nær yfir þau helstu: Tíbetar undir yfirráðum Kínverja (1951-), minnihlutahópar í suðurhluta Súdan (1955-1972), innfæddir Brasilíubúar (1957-1968), Arabar í Zanzibar (í dag hluti af Tansaníu) (1964), Kínverjar í Indónesíu (1965-1966), Mongólar undir yfirráðum Kínverja (1967-1969), Igbóar í Bíafra (1967-1970), innfæddir í Vestur-Papúu (hófst á sjöunda áratugnum), Indverjar og Bengalir í Bangladess (1971), minnihlutahópar í Úganda (1971-1979), Hútúar í Búrúndí (1972-), Cham-múslimar og Víetnamar (auk annarra hópa) í Kambódíu (1975-1979), íbúar Austur-Tímor (1975-1999), Sahrawi-fólkið undir yfirráðum Marokkó (1976-1992), Aché-Indíánar í Paragvæ (áttundi áratugurinn), Maya-Indíánar í Gvatemala (1981-1983), bengalskir múslimar á Indlandi (1983), ýmskir hópar á Srí Lanka (1983-2009), Síkar á Indlandi (1984), Kúrdar í Írak (1986-1989), Isaaq-ættbálkurinn í Sómalíu (1987-1989), hindúar í Kasmír (1990), Bosníakar (1992-1995), Tútsar í Rúanda (1994), Hútúar í Kongó (1996, 1997), Kósóvó-Albanir (1998, 1999), Nepalir í Bútan (tíundi áratugurinn), Téténar í Rússlandi (tíundi áratugurinn og upphaf 21. aldar), íbúar Núba-fjalla í Súdan (tíundi áratugurinn og upphaf 21. aldar), Hema- og Lendu-fólkið í Kongó (1999-2003), Bambuti-pygmíar í Kongó (2002, 2003), minnihlutahópar í Darfúr (2003-2005), Nuer-fólkið og Dinkar í Suður-Súdan ( frá 2013), Jasídar á yfirráðasvæði ISIS (2014-), Rohingjar og aðrir minnihlutahópar í Mjanmar (2016-), Úígúrar undir yfirráðum Kínverja (2010-), Tígreiar í Eþíópíu (2020-2022), Úkraínumenn í Úkraínu (2022-), Armenar í Aserbædjan (2022, 2023), Palestínuarabar á Gazasvæðinu (2023-), Masalit-þjóðflokkurinn í Vestur-Darfúr (2023-). Listinn hér að ofan er ekki tæmandi en hann telur um fjörutíu hópa sem hafa verið taldir til fórnarlamba þjóðarmorða. En fær það virkilega staðist að um fjörutíu þjóðarmorð hafi verið framin undanfarin sjötíu og fimm ár? Eða getur verið að einhver af dæmunum hér að ofan hafi verið ýkt og blásin upp úr öllu valdi? Pólitískt vopn Bókin The Politics of Genocide (gefin út árið 2010 og skrifuð af tveimur vinstrimönnum) lýsir því hvernig stórveldi og alþjóðastofnanir hafa beitt hugtakinu „þjóðarmorð“ til að koma höggi á pólitíska andstæðinga sína. Atburðirnir sem bókin fjallar um áttu sér stað eftir að hugtakið var endurskilgreint árið 1951. Þótt ég sé ósammála sjónarhóli höfundanna (þeir einskorða sig við gagnrýni á Bandaríkin) er meginstef bókarinnar sannfærandi. Þjóðarmorðs-hugtakið var greinilega endurskilgreint í pólitískum tilgangi og í leiðinni var hugtakið alvarlega gengisfellt. Lokaorð Vegna víðtækrar skilgreiningar alþjóðalaga á þjóðarmorðs-hugtakinu verður því miður að setja ákveðinn fyrirvara við ásakanir og dómsmál um þjóðarmorð. Ef Sameinuðu þjóðunum væri raunverulega umhugað um heilindi, ættu þær að njörva niður skilgreiningu sáttmálans um þjóðarmorð í samræmi við upprunalega merkingu orðsins. Og með allt þetta til hliðsjónar, væri ekki skynsamlegt að setja þennan sama fyrirvara við æsifréttalegar yfirlýsingar fjölmiðla, mennta- og alþjóðastofnana um þjóðarmorð? Höfundur er meðlimur MIFF (Með Ísrael fyrir friði) á Íslandi. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Finnur Thorlacius Eiríksson Mest lesið Gleðilegan dag læsis Auður Soffíu Björgvinsdóttir Skoðun Hjartaendurhæfing er fjárfesting Kristín E. Hólmgeirsdóttir,María Barbara Árnadóttir Skoðun Hvenær hættum við að vera þjóð? Jón Pétur Zimsen Skoðun Hvaða gervigreind og skýjaþjónustur mega opinberir aðilar nota? Karl Thoroddsen Skoðun Stækkum kökuna í stað þess að sneiða hana þynnra Rannveig Grétarsdóttir Skoðun Engin miskunn hjá Reykjavíkurborg Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir Skoðun Þrautseigja í framlínunni Sigríður Björk Þormar Skoðun Fjárfestum í heilsu – Alþjóðlegur dagur sjúkraþjálfunar Gunnlaugur Már Briem Skoðun Sjálfbærni í heimi glötunar Kristján Logason Skoðun Hvað varð um það að vilja betri heim? Indriði Þröstur Gunnlaugsson Skoðun Skoðun Skoðun Eru tómstundir allra? Margrét Júlía Rafnsdóttir skrifar Skoðun Öryggisnet í 90 ár! Unnur Sverrisdóttir skrifar Skoðun Þrautseigja í framlínunni Sigríður Björk Þormar skrifar Skoðun Hjartaendurhæfing er fjárfesting Kristín E. Hólmgeirsdóttir,María Barbara Árnadóttir skrifar Skoðun Hvaða gervigreind og skýjaþjónustur mega opinberir aðilar nota? Karl Thoroddsen skrifar Skoðun Hvenær hættum við að vera þjóð? Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Hver ertu þegar yfirmaðurinn fer út úr herberginu? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Fjárfestum í heilsu – Alþjóðlegur dagur sjúkraþjálfunar Gunnlaugur Már Briem skrifar Skoðun Varnir frá 2019, ógnir frá 2026 Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hvað varð um það að vilja betri heim? Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Sjálfbærni í heimi glötunar Kristján Logason skrifar Skoðun Ert þú kannski frábær í ofbeldisforvörnum barna? Alfa Dröfn Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Bókun 35, ESA og stjórnarskrá Íslands — hvenær verður EES samningurinn stjórnarskrárlega ólýðræðislegur? Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Gleðilegan dag læsis Auður Soffíu Björgvinsdóttir skrifar Skoðun Engin miskunn hjá Reykjavíkurborg Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Brjóstagjöf er svoddan streð… Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Stækkum kökuna í stað þess að sneiða hana þynnra Rannveig Grétarsdóttir skrifar Skoðun Er þetta ásættanleg frammistaða íslenskrar stjórnsýslu? Þorsteinn Narfason skrifar Skoðun Forsjálni því þetta reddast ekki Gunnar Hersveinn skrifar Skoðun Flokkur fólksins og fjárlögin Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Svargrein við grein Hauks Arnþórssonar Jón Sigurgeirsson skrifar Skoðun Sjálfstæðisflokkurinn og Bókun 35. Fullveldi eftir hentugleikum? Júlíus Valsson skrifar Skoðun Hvar er náungakærleikurinn? Steindór J. Erlingsson skrifar Skoðun Það sem gerist þegar við segjum frá Olga Björt Þórðardóttir skrifar Skoðun Brýtur innviðaráðherra lög, aftur? Örvar Marteinsson skrifar Skoðun Ekkert okkar á að ganga þennan veg eitt Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Kerfið sem sýndarveruleiki Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Erum við að grafa undan lýðræðinu? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Berð þú ábyrgð á stafrænni útilokun fólks með fötlun? Rósa María Hjörvar skrifar Skoðun Hvernig förum við með valdið? Halla Hrund Logadóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Bókun 35, ESA og stjórnarskrá Íslands — hvenær verður EES samningurinn stjórnarskrárlega ólýðræðislegur? Eggert Guðmundsson skrifar