Alex Freyr: „Það er kominn hundur í menn” Katla Margrét Jónsdóttir skrifar 4. júlí 2026 19:50 Alex Freyr Hilmarsson, fyrirliði Eyjamanna, var í aðalhlutverki í dag þegar ÍBV vann 1-0 sigur á Val úti í Eyjum. Alex Freyr skoraði sigurmarkið og fiskaði einnig fyrirliða Vals út af með rautt spjald.
Alex Freyr var ánægður með sigurinn og stigin þrjú en vildi sjá liðið nýta yfirburði sína betur í leiknum. „Menn eru bara að læra og við erum að átta okkur á því hvað þjálfarinn vill. Það er kominn meiri hundur í liðið, menn eru orðnir aggressífari og þetta snýst allt um litlu hlutina,“ sagði Alex Freyr Hilmarsson þegar hann var spurður hvað hefði breyst hjá ÍBV á síðustu vikum. Þrátt fyrir 1:0 sigurinn var Alex ekki fyllilega sáttur við frammistöðu Eyjamanna. Hann taldi að liðið hefði getað stjórnað leiknum betur, þó að hann væri ánægður með stigin þrjú. „Þetta var ekkert frábær leikur hjá okkur. Við þurfum að ná að stjórna leiknum betur, en á endanum fengum við þrjú stig og það er það sem skiptir m0-sigurinn“ Alex skoraði eina mark leiksins á 58. mínútu en gerði lítið úr eigin afreki þegar hann var spurður út í markið. „Ég hljóp bara á boltann. Hann fór inn. Það er nóg,“ sagði hann léttur. ÍBV þurfti að verja naumt forskot sitt allt til leiksloka. Alex sagði að þrátt fyrir að það fylgdi alltaf ákveðin spenna því að vera aðeins marki yfir hefði sér aldrei fundist Valur skapa mikla hættu. „Það er alltaf smá skjálfti þegar maður er bara marki yfir. En mér fannst þeir í raun ekkert skapa sér neitt. Ég man ekki eftir einhverjum stórum augnablikum hjá þeim. Við vorum hins vegar klaufar undir lokin, tókum vondar ákvarðanir í mjög góðum stöðum og eigum einfaldlega að vera búnir að klára leikinn með fleiri mörkum.“ Að hans mati voru það helstu mistök ÍBV í leiknum að hafa ekki gengið frá honum fyrr. „Við tökum bara einn leik í einu og reynum að byggja ofan á frammistöðuna. Þessi leikur var ekkert augnakonfekt af okkar hálfu, rétt eins og leikirnir gegn FH og Stjörnunni. Samt erum við búnir að taka sjö stig úr þessum þremur leikjum og ég lít á það sem styrkleikamerki.“
Besta deild karla ÍBV Valur Mest lesið Kemur Íslendingnum unga til varnar Fótbolti „Þetta hefði getað komið fyrir mig“ Fótbolti „Allur heimurinn veit hvað þessir leikmenn gera“ Handbolti „Við eigum bara svalasta fyrirliða í Evrópu“ Fótbolti Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Íslenski boltinn Arnar kynnti landsliðshópinn Fótbolti Hópurinn í lokaleikjunum: Kristian snýr aftur og Daníel er með Fótbolti „Mikið af lygum um margt sem hefur gerst á milli mín og stjórans“ Fótbolti Sjáðu upprisu United og öll hin mörkin úr Meistaradeildinni Fótbolti „Ég er ekki Mohamed Salah“ Enski boltinn Fleiri fréttir FH fær miðvörð aftur heim Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Fer frá Stjörnunni í FH Gummi Ben væri svo til í að spila með KR í dag Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Marc McAusland tekur við Njarðvík Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi Sjá meira