Geirvörtur og latex vekja athygli í París Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar 6. júlí 2026 15:54 Tískusýning Schiaparelli í París í morgun vakti athygli að vanda. Schiaparelli Tískuhúsið Schiaparelli er eitt það heitasta í dag og vekur alltaf hvað mesta athygli á tískuvikum víða um heim. Daniel Roseberry er listrænn stjórnandi merkisins og einkennist hönnun hans af gríðarlegri sköpunargleði og frumlegheitum sem hafa aldrei sést fyrr.
Ný haustlína Schiaparelli var afhjúpuð á hátískuvikunni í París í morgun við góðar undirtektir. Þar mátti sjá skúlptúraða kjóla í ýmsum litum, mótuð brjóst og geirvörtur yfir, glansandi latex-sett með mörgum örmum og axlapúða svo eitthvað sé nefnt. View this post on Instagram A post shared by Vogue (@voguemagazine) Ofurfyrirsætan Karlie Kloss var meðal þeirra sem gekk tískupallinn fyrir Schiaparelli en hún var meðal gesta í stjörnubrúðkaupi Taylor Swift og Travis Kelce í New York um helgina. Hún virtist ekkert þreytt eftir veisluhöldin og rokkaði stórbrotinn ljósbláan kjól með geirvörtum og gegnsæju bláu bróderuðu og steinuðu blómapilsi. View this post on Instagram A post shared by Vogue (@voguemagazine) Gestalistinn á tískusýninguna var auðvitað stjörnum prýddur. Púertó-ríski tónlistarmaðurinn Bad Bunny sat á fremsta bekk klæddur ljósgulum jakkafötum frá Schiaparelli. Bad Bunny glæsilegur í Schiaparelli. Marc Piasecki/WireImage Þar voru sömuleiðis leikarinn Emma Corin klætt í fjaðrajakka með klær yfir brjóstin, stílistinn Law Roach í stílhreinum brúnum frakka og tískuhönnuðurinn Vera Wang með íburðarmikið skart algjörlega í anda Schiaparelli. Emma Corin rokkaði einstakan jakka. Stephane Cardinale - Corbis/Corbis via Getty Images View this post on Instagram A post shared by Vera Wang (@verawang)
Tíska og hönnun Frakkland Mest lesið Ekkert annað í stöðunni en að fara á brókinni í ísbúðina Lífið Hlutir sem þú ættir aldrei að deila með maka þínum Lífið „Ég vil ekki sjá neina punga takk fyrir“ Tíska og hönnun Týndi farangrinum og klæddist íslensku merki frá toppi til táar Lífið Svona verður dagskráin á Menningarnótt Lífið Íslenskar systur slá í gegn í módelbransanum Tíska og hönnun Harry og Meghan ætla að flytja aftur til Bretlands Lífið Guðmundur Felix frumsýnir nýja nefið Lífið Einkaréttur Netflix á stiklu GTA 6 vekur athygli Leikjavísir Þorsteinn Leó orðinn pabbi Lífið Fleiri fréttir Íslenskar systur slá í gegn í módelbransanum „Ég vil ekki sjá neina punga takk fyrir“ María Hrund á lista Vogue yfir þau best klæddu „Hef engar áhyggjur af því hvað þeim finnst“ Tilraunakennd tískusýning í bílakjallara „Betra að vera sein og sæt en fljót og ljót“ Heitast að vera aðeins of fín, alltaf Stórbrotinn stíll Zendayu Geirvörtur og latex vekja athygli í París Osaka best klædd á Wimbledon Krýndur tískukóngur fótboltans Sjá meira