Vill afnema sektir við vændiskaupum Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 7. júlí 2026 14:43 Þorbjörg er dómsmálaráðherra. Vísir/Vilhelm Dómsmálaráðherra hyggst afnema sektir sem viðurlagategund við vændiskaupum. Ekki hefur verið tekin ákvörðun um hvað komi í staðinn.
Líkt og lögin eru í dag getur sá sem greiðir, heitir greiðslu eða annars konar endurgjaldi fyrir vændi fengið sekt eða fangelsisvist allt að einu ári. Sé um vændi barns að ræða getur fangelsisvistin verið allt að tvö ár. Í tilkynningu frá stjórnarráðinu segir að dómsmálaráðuneytið hyggist leggja fram frumvarp um breytingu á lögunum og fella niður sektina. Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra meti svo að tilefni sé til að endurskoða refsirammann og draga þannig úr eftirspurn eftir vændi. Áformin hafa verið birt í samráðsgátt stjórnvalda. Litið er til Svíþjóðar sem afnam sekt sem viðurlagategund vændiskaupa fyrir ári síðan. Ekki hefur verið tekin endanleg ákvörðun um hvaða leið verði fyrir valinu en horft verður til löggjafar annarra Norðurlanda. Lögreglan greindi frá því í gær að fimm hefðu verið handteknir í aðgerðum lögreglu gegn skipulagðri vændisstarfsemi í júní. Fimmtíu vændiskaupendur náðust á myndskeið en aðgerðirnar voru þáttur í alþjóðlegum aðgerðum lögregluyfirvalda í 59 ríkjum. Málið tengist að hluta kínversku glæpaneti og segir lögreglu að kínverskar vændiskonur séu gerðar út hér á landi fyrir um tuttugu þúsund krónur á hálftímann. Borin voru kennsl á sextán mögulega þolendur vændis og þeim boðin aðstoð.
Vændi Lögreglumál Mansal Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Innlent Sögðu Írisi hafa beðið sig um að lemja brotaþola Innlent „Hann hótaði að drepa okkur“ Innlent Fleiri fréttir Þriðjungur undir áhrifum í rafskútuslysum Bein útsending: 18 ára og hvað svo? Viðreisn í Kópavogi vill fresta nýjum einkunnakvarða Daði svarar fyrir Landsvirkjunarmálið Stjórnin láti hendur standa fram úr ermum við brottvísanir Mörgum þyki netspjall þægilegra en símtal Tíu tonna grjóthnullungur fór í gegnum nýja varnarvegginn Sögðu Írisi hafa beðið sig um að lemja brotaþola Dómurinn skoðaður og farið yfir framhaldið í Bandaríkjunum Sé óásættanlegt að vændiskaupendur hafi sloppið með sekt „Hann hótaði að drepa okkur“ Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Lögreglumenn fari huldu höfði af ótta við ofbeldi Forvitinn minnihluti styggir bæjarstjórn: „Sláandi tölfræði“ Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Miðflokkurinn bætir við sig fylgi Skoða fæðingarorlofsmálin Dragi uppsagnirnar til baka Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Þrír handteknir fyrir rán Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk „Fræða en ekki hræða“ „Það er öllum ljóst að hann hefur frekar verið þeirra megin“ Sjá meira