Tvær stöndugar fasteignasölur sameinast Jakob Bjarnar skrifar 8. júlí 2026 12:58 Á meðfylgjandi mynd eru eigendur stofunnar, frá vinstri: Monika Hjálmtýsdóttir, Ragnar Þorgeirsson, Brynjólfur Snorrason, Andri Sigurðsson, Freyja Rúnarsdóttir, Sveinn Eyland, Sigurður Samúelsson, Finnbogi Hilmarsson & Sigríður Lind Eyglóardóttir. aðsend Landmark fasteignamiðlun og Heimili fasteignasala sameinast og tekur ný fasteignasala til starfa í haust.
Í tilkynningu segir að með sameiningunni verði til ein öflugasta fasteignasala landsins en hún verður skipuð rúmlega tuttugu starfsmönnum, allt löggiltum fasteignasölum með víðtæka reynslu af íslenskum fasteignamarkaði. Heimili fasteignasala var stofnuð árið 2002 og er því 24 ára í dag. Landmark fasteignamiðlun var stofnuð árið 2010 og er 16 ára. Í tilkynningu segir að bæði fyrirtækin hafi á sínum starfsvettvangi byggt upp sterkt orðspor fyrir fagmennsku og árangur á íslenskum fasteignamarkaði. Eigendur hins nýja félags eru níu löggiltir fasteignasalar sem hafa um langt árabil starfað við fasteignamiðlun. Með sameiginlegri sýn leggja þeir áherslu á fagmennsku, persónulega þjónustu og öfluga ráðgjöf fyrir einstaklinga, fjölskyldur og fyrirtæki á öllum stigum fasteignaviðskipta. „Með þessari sameiningu verður til öflugur vettvangur fyrir bæði starfsfólk og viðskiptavini. Við sameinum reynslu, sérþekkingu og sterkan mannauð tveggja farsælla fyrirtækja og getum þannig boðið enn öflugri þjónustu á öllum sviðum fasteignaviðskipta. Markmið okkar er að byggja upp leiðandi fasteignasölu sem sameinar fagmennsku, traust og nýsköpun,“ er haft eftir Finnboga Hilmarssyni sem verður framkvæmdastjóri hinnar nýju fasteignasölu. Þá er vitnað í Moniku Hjálmtýsdóttur, sem er stjórnarformaður hinnar nýju fasteignasölu, sem segir sameininguna litast af sameiginlegri sýn eigendanna á framtíð fyrirtækisins. „Við höfum um nokkurt skeið séð tækifæri til að sameina styrkleika Heimilis og Landmark undir einu þaki. Með því skapast öflugra fyrirtæki sem býr yfir breiðari þekkingu, sterkari innviðum og enn meiri getu til að mæta síbreytilegum þörfum viðskiptavina. Við teljum að þetta sé farsælt skref fyrir fyrirtækið, starfsfólkið okkar og viðskiptavini til framtíðar.“ Undirbúningur að starfsemi félagsins stendur nú yfir og verður nýtt nafn og vörumerki kynnt síðar í sumar. Meðan á undirbúningi stendur munu Heimili og Landmark halda áfram starfsemi sinni með óbreyttum hætti og áður. Í tilkynningu segir jafnframt að sameiningin endurspegli þá þróun sem orðið hefur á fasteignamarkaði á síðustu árum, þar sem auknar kröfur um sérfræðiþekkingu, stafrænar lausnir og öfluga ráðgjöf kalla á sterkari og fjölbreyttari rekstrareiningar.
Fasteignamarkaður Kaup og sala fyrirtækja Mest lesið Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Viðskipti innlent Karl Wernersson opnar sig Viðskipti innlent Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Viðskipti innlent Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Viðskipti innlent Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Viðskipti innlent Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Viðskipti innlent Yfir hundrað prósenta munur á verði fyrir umfelgun Neytendur Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Viðskipti innlent 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Viðskipti innlent Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa Viðskipti innlent Fleiri fréttir Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Karl Wernersson opnar sig Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Sjá meira