Börn fá aðeins eina bernsku Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar 9. júlí 2026 08:32 Við fullorðna fólkið fáum oft annað tækifæri. Við getum skipt um starf, farið aftur í nám, flutt, byggt upp sjálfstraustið á ný eða leitað okkur hjálpar þegar lífið reynist erfitt. En bernskan verður aldrei endurtekin. Þau ár sem móta grunninn að sjálfsmynd, öryggi og líðan barns koma aðeins einu sinni. Þess vegna skiptir svo afskaplega miklu máli hvernig við komum fram við börn. Rannsóknir síðustu áratuga hafa ítrekað sýnt að fyrstu ár lífsins hafa djúpstæð áhrif á heilaþroska, tilfinningaþroska og félagsfærni. Börn sem alast upp við öryggi, kærleika, skýrar væntingar og stuðning byggja með sér innri styrk sem verður þeim veganesti út lífið. Á sama tíma geta langvarandi streita, vanræksla, höfnun eða áföll haft áhrif sem fylgja einstaklingum langt fram á fullorðinsár og jafnvel alla ævi. Í íslenskum lögum um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna felst skýr framtíðarsýn. Þar er viðurkennt að farsæld barna verði aðeins tryggð þegar fjölskyldur, menntakerfi, velferðarþjónusta og heilbrigðisþjónusta vinna saman með þarfir barnsins í forgrunni. Barn á aldrei að þurfa að falla á milli kerfa og foreldrar eiga ekki að standa einir þegar stuðningur er nauðsynlegur. Sama sýn birtist í aðalnámskrá leikskóla og grunnskóla. Þar er lögð áhersla á að hlutverk skólans sé ekki aðeins að miðla þekkingu heldur að efla alhliða þroska barna, stuðla að vellíðan þeirra, félagsfærni, sjálfstæði og ábyrgð. Menntun er nefnilega ekki eingöngu mæld í einkunnum heldur einnig í því hvernig okkur tekst að ala upp fólk sem býr yfir seiglu, samkennd og trú á eigin getu. Við ræðum gjarnan námsárangur, samræmd mælitæki og fjárhagsáætlanir. Miklu sjaldnar spyrjum við hvort börnunum líði vel, hvort þau upplifi öryggi eða hvort þau finni að þau skipti máli. En það eru einmitt þessir þættir sem skapa grunninn að öllu námi. Barn sem býr við ótta lærir verr. Barn sem upplifir stöðuga höfnun á erfiðara með að treysta öðrum. Barn sem finnur ekki til öryggis notar orkuna sína í að komast í gegnum daginn í stað þess að læra, leika og þroskast. Þess vegna er svo mikilvægt að við þekkjum og skiljum þarfir barna. Öll börn eru ólík. Sum þurfa meiri stuðning, önnur aðlagað nám, önnur sérfræðiaðstoð eða einfaldlega meiri skilning. Börn með sérþarfir eru ekki að biðja um sérmeðferð heldur jafna möguleika til þátttöku. Þegar við mætum þeim ekki með þeim stuðningi sem þau þurfa er það ekki barnið sem hefur brugðist. Þá höfum við sem samfélag brugðist. Lífið verður aldrei áfallalaust. Öll börn munu einhvern tíma mæta mótlæti, sorg, vonbrigðum eða missi. Markmiðið er því ekki að fjarlægja allar hindranir heldur að búa börnin undir að takast á við þær. Það gerum við með því að byggja upp seiglu. Seigla verður ekki til af sjálfu sér. Hún verður til þegar barn upplifir að einhver trúi á það, hlusti á það, leiðbeini því og standi með því þegar á reynir. Hún verður til í öruggum tengslum við foreldra, kennara, starfsfólk skóla, þjálfara, afa og ömmur, nágranna og aðra fullorðna sem sýna barninu að það sé dýrmætt. Þess vegna er það eitt stærsta samfélagsverkefni okkar að styðja fjölskyldur og tryggja öfluga mennta-, heilbrigðis- og velferðarþjónustu. Þessi kerfi eru ekki kostnaðarliðir sem eigi fyrst og fremst að vera hagkvæmir. Þau eru fjárfesting í framtíðinni. Hvert barn sem fær snemmtækan stuðning, upplifir öryggi og nær að þroskast og dafna á eigin forsendum verður líklegra til að lifa heilbrigðu lífi, taka þátt í samfélaginu og leggja sitt af mörkum. Ávinningurinn er persónulegur, samfélagslegur og fjárhagslegur. Því barn sem fer með fulla verkfæratösku út í lífið er að skila svo miklu meira til baka síðar meir. Við getum haft áhrif á bernsku barnanna sem eru að alast upp í dag. Höfum hugfast að börn muna kannski ekki öll orð sem við segjum eða allar reglurnar sem við setjum. En þau muna öll hvernig við létum þeim líða. Höfundur er menntunarfræðingur, sviðsstjóri og situr í farsældarráði Suðurnesja. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir Börn og uppeldi Mest lesið Gervigreind, til góðs?Gervigreind, til góðs? Ketill Berg Magnússon Skoðun Ég hata þessa manneskju út af lífinu! Hermann Stefánsson Skoðun Ert þú gervigreindarsóði? Marín Jónsdóttir Skoðun Hvað kostar samfélag? Orri Jónsson Skoðun Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen Skoðun Foreldraupplifun Sólný Pálsdóttir Skoðun Icelandair undir verndarvæng ríkisins Kjartan Björgvinsson Skoðun Til varnar tímanum Eva Harðardóttir,Katrín Ólína Pétursdóttir Skoðun „Við“ skiptaráð Dofri Hermannsson Skoðun Útsæði á diskinn minn! Guðmundur Finnbogason Skoðun Skoðun Skoðun Gervigreind, til góðs?Gervigreind, til góðs? Ketill Berg Magnússon skrifar Skoðun Ert þú gervigreindarsóði? Marín Jónsdóttir skrifar Skoðun Smjörklípa Þorgerðar Hjörvar Sigurðsson skrifar Skoðun Þegar undantekningarnar verða að stefnu Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Foreldraupplifun Sólný Pálsdóttir skrifar Skoðun Til varnar tímanum Eva Harðardóttir,Katrín Ólína Pétursdóttir skrifar Skoðun Forsætisráðherra endurskrifar söguna og snýr staðreyndum á hvolf Pétur Óskarsson skrifar Skoðun Það á að vera gott að eldast á Íslandi Ólafur Þór Gunnarsson,Regína Ásvaldsdóttir skrifar Skoðun Hver reiknar raunverulegan kostnað hagræðingar? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Einkunnakvarði er ekki námsmat! Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Áframhaldandi skilningsleysi nýliða Kristín Helga Schiöth skrifar Skoðun Gervigreindin getur séð allt. En hver getur séð það sem hún sér? Júlíus Einar Júlíusson skrifar Skoðun Er að eignast barn samfélagsleg busun? Stefnir Húni Kristjánsson skrifar Skoðun Jöfn laun eiga ekki að ráðast af tilviljun Kolbrún Halldórsdóttir skrifar Skoðun Bannað að plata Ágúst Elvar Bjarnason skrifar Skoðun Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen skrifar Skoðun Látum Loftbrúna vera Sindri S. Kristjánsson skrifar Skoðun Öryggi í umferð framtíðarinnar Jón Gunnar Jónsson skrifar Skoðun „Við“ skiptaráð Dofri Hermannsson skrifar Skoðun Bláskógaskatturinn hefur áhrif víða Sveinn Ægir Birgisson skrifar Skoðun Skrýtnir útreikningar og fjármálalæsi Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun Er mynstrið þitt nægilega djúpt? Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Geimvera lendir á Íslandi Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Tvískinnungur ættjarðarástar Gunnlaugur Stefánsson skrifar Skoðun Íslenska Z-kynslóðin hefur hægt um sig Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Ég hata þessa manneskju út af lífinu! Hermann Stefánsson skrifar Skoðun Bandaríkin kjósa – en hver hefur eftirlit með forsetanum? Baldur Johnsen skrifar Skoðun Er norræna módelið refsilaust fyrir seljendur vændis á Íslandi? Ari Logn,Renata Arnórsdóttir,Brynhildur Ragnarsdóttir,Guðný Þorsteinsdóttir skrifar Skoðun Icelandair undir verndarvæng ríkisins Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Útsæði á diskinn minn! Guðmundur Finnbogason skrifar Sjá meira
Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen Skoðun
Skoðun Gervigreindin getur séð allt. En hver getur séð það sem hún sér? Júlíus Einar Júlíusson skrifar
Skoðun Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen skrifar
Skoðun Er norræna módelið refsilaust fyrir seljendur vændis á Íslandi? Ari Logn,Renata Arnórsdóttir,Brynhildur Ragnarsdóttir,Guðný Þorsteinsdóttir skrifar
Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen Skoðun