Bláa lónið eykur hlut sinn í þremur baðlónum Atli Ísleifsson skrifar 9. júlí 2026 08:37 Sigríður Margrét Oddsdóttir, forstjóri Bláa lónsins. Bláa lónið Bláa lónið hf. hefur samið um aukningu á eignarhlut sínum í Norðurböðum ehf. sem eru hluthafi í Jarðböðunum við Mývatn og Sjóböðunum á Húsavík. Jarðböðin eru jafnframt hluthafi í Vök á Egilsstöðum.
Í tilkynningu frá Bláa lóninu segir að kjarnastarfsemi þessara félaga sé rekstur baðlóna. Markmið viðskiptanna sé að styrkja grunnrekstur Bláa lónsins hf. á fjölbreyttum áfangastöðum á Íslandi og auka áhættudreifingu í rekstri félagsins. Fram kemur að Bláa lónið hafi frá upphafi staðið í fararbroddi í uppgangi baðlónsmenningar á Íslandi. Kaupin séu markviss liður í áformum félagsins um áframhaldandi áherslu á hágæða upplifun og vellíðan í vexti félagsins til framtíðar víða um land. Haft er eftir Sigríði Margréti Oddsdóttur, forstjóra Bláa lónsins, að uppbygging baðlóna á Íslandi hafi verið einn helsti vaxtarsproti ferðaþjónustu allt frá stofnun Bláa lónsins og skýr sérstaða landsins sem áfangastaðar. „Bláa lónið hefur fjárfest í einstökum áfangastöðum víða um land og staðirnir þrír eiga það allir sameiginlegt að hafa sína eigin sögu að segja. Um leið endurspegla þeir þau miklu gæði afþreyingar og vellíðunar sem Bláa lónið hefur lagt áherslu á og falla því vel að vörumerki félagsins. Við sjáum af mánaðarlegum könnunum sem við gerum að þrír fjórðu ferðamanna heimsækja baðlón á meðan á dvöl þeirra á Íslandi stendur. Árangur Bláa lónsins hefur veitt fjölmörgum innblástur og er rekstur baðlóna í dag mikilvægur þáttur í sérstöðu og styrkleika landsins sem áfangastaðar“ segir Sigríður Margrét. Í tilkynningunni segir að kaupin séu gerð með fyrirvara um samþykki hluthafafundar Bláa lónsins hf. og Samkeppniseftirlitsins. „Nái viðskiptin fram að ganga mun Bláa Lónið hf. eiga meirihluta í Norðurböðum. Áður hafði félagið tryggt sér meirihluta í Fontana á Laugarvatni. Bláa Lónið undirbýr nú skráningu á íslenskan hlutabréfamarkað. Landsbankinn og Fossar fjárfestingarbanki eru umsjónaraðilar útboðsins,“ segir í tilkynningunni.
Bláa lónið Sundlaugar og baðlón Kaup og sala fyrirtækja Múlaþing Þingeyjarsveit Ferðaþjónusta Tengdar fréttir Bláa lónið festir kaup á Arctic Adventures og stefnir á markað Bláa lónið hefur fest kaup á ferðaþjónustufyrirtækinu Arctic Adventures og er stefnt að samruna fyrirtækjanna. Þá hefur Bláa lónið hafið formlegan undirbúning að skráningu félagsins á íslenskan hlutabréfamarkað. 16. júní 2026 14:05 Mest lesið Karl Wernersson opnar sig Viðskipti innlent Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Viðskipti innlent Yfir hundrað prósenta munur á verði fyrir umfelgun Neytendur Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Viðskipti innlent Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Viðskipti innlent Vinkonur í bissness: Búnar að yfirtaka bílskúr foreldranna Atvinnulíf Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Viðskipti innlent 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Viðskipti innlent Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa Viðskipti innlent Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Viðskipti innlent Fleiri fréttir Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Karl Wernersson opnar sig Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki Sjá meira
Bláa lónið festir kaup á Arctic Adventures og stefnir á markað Bláa lónið hefur fest kaup á ferðaþjónustufyrirtækinu Arctic Adventures og er stefnt að samruna fyrirtækjanna. Þá hefur Bláa lónið hafið formlegan undirbúning að skráningu félagsins á íslenskan hlutabréfamarkað. 16. júní 2026 14:05