Sameinaður sjóður ætti rúma þúsund milljarða Árni Sæberg skrifar 9. júlí 2026 11:16 Frá undirritun samrunasamnings. Stjórnir SL lífeyrissjóðs og Almenna – Lífsverks lífeyrissjóðs hafa undirritað samrunasamning um tillögu að sameiningu sjóðanna. Verði tillagan samþykkt mun sameinaður lífeyrissjóður hefja starfsemi 1. janúar 2027. Sjóðurinn yrði fjórði stærsti lífeyrissjóður landsins með heildareignir að fjárhæð 1.035 milljarðar króna miðað við stöðu eigna í lok síðasta árs.
Í fréttatilkynningu þess efnis segir að með sameiningu lífeyrissjóðanna sé stefnt að því að styrkja grunn góðra lífeyrisréttinda með stærri sjóði, sem verði betur í stakk búinn til að mæta auknum kröfum um rekstraröryggi og veita betri þjónustu. Markmiðið sé jafnframt að ná fram hagræðingu í rekstri sem geti stuðlað að lægri kostnaði og hærri ávöxtun fyrir sjóðfélaga. Tillaga um sameiningu og breytingar á samþykktum verði lögð fyrir sjóðfélagafund Almenna – Lífsverks og stjórnarfund SL og fjármála- og efnahagsráðherra í september 2026. Samruni sjóðanna sé háður því að nauðsynlegar breytingar verði gerðar á lögum um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða og lögum um Söfnunarsjóð lífeyrisréttinda. Fjölmargir fulltrúar sjóðanna tveggja voru viðstaddir ásamt fjármála- og efnahagsráðherra. Daði Már Kristófersson, fjármála- og efnahagsráðherra, hafi verið viðstaddur undirritun samrunasamnings sjóðanna og undirritað viljayfirlýsingu um að hann muni beita sér fyrir nauðsynlegum lagabreytingum verði sameiningin samþykkt með þeim hætti sem gildandi lög og samþykktir sjóðanna áskilja.
Lífeyrissjóðir Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Tengdar fréttir Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Stjórnir SL og Almenna – Lífsverks hafa ákveðið að hefja könnunarviðræður um mögulega sameiningu sjóðanna. Sjóðurinn yrði sá fjórði stærsti á Íslandi með eignir upp á rúma þúsund milljarða króna. 29. maí 2026 14:44 Nýr sameinaður lífeyrissjóður verði með þeim stærstu Almenni lífeyrissjóðurinn og Lífsverk stefna að sameiningu eftir að sjóðfélagafundir beggja samþykktu tillögu þess efnis. Samruninn er háður samþykki Samkeppniseftirlitsins og staðfestingu fjármála- og efnahagsráðuneytisins á samþykktum sameinaðs sjóðs. 13. nóvember 2025 18:04 Mest lesið Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Viðskipti innlent Karl Wernersson opnar sig Viðskipti innlent Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Viðskipti innlent Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Viðskipti innlent Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Viðskipti innlent Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Viðskipti innlent Yfir hundrað prósenta munur á verði fyrir umfelgun Neytendur 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Viðskipti innlent Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa Viðskipti innlent Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Viðskipti innlent Fleiri fréttir Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Karl Wernersson opnar sig Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Sjá meira
Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Stjórnir SL og Almenna – Lífsverks hafa ákveðið að hefja könnunarviðræður um mögulega sameiningu sjóðanna. Sjóðurinn yrði sá fjórði stærsti á Íslandi með eignir upp á rúma þúsund milljarða króna. 29. maí 2026 14:44
Nýr sameinaður lífeyrissjóður verði með þeim stærstu Almenni lífeyrissjóðurinn og Lífsverk stefna að sameiningu eftir að sjóðfélagafundir beggja samþykktu tillögu þess efnis. Samruninn er háður samþykki Samkeppniseftirlitsins og staðfestingu fjármála- og efnahagsráðuneytisins á samþykktum sameinaðs sjóðs. 13. nóvember 2025 18:04