Namibíumenn krefjast skaðabóta í Samherjamálinu Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 9. júlí 2026 16:27 Yfir þúsund Namibíumenn krefjast skaðabóta. Vísir/Vilhelm Yfir þúsund starfsmenn sem störfuðu í sjávarútvegi í Namibíu hafa lagt fram skaðabótakröfu á Íslandi vegna Samherjamálsins. Þetta staðfestir Eiríkur Hjálmarsson, formaður Transparancy International á Íslandi, í samtali við fréttastofu. „
Yfir 1000 namibískir starfsmenn í sjávarútvegi hafa með stuðningi frá Transparency International lagt fram formlegar kröfur til íslenskra saksóknara í sögulegum atburði sem gæti haft áhrif á hvernig fórnarlömb spillingar eru viðurkennd og tekin með í dómsmálum á Íslandi og víðar,“ segir í fréttatilkynningu Transparancy International en Ríkisútvarpið greindi fyrst frá. Allir Namibíumennirnir störfuðu í sjávarútvegi og segjast hafa orðið fyrir tjóni og þjáningu vegna meintra mútubrota Samherja ytra. „Þúsundir sjómanna og annarra starfsmanna í sjávarútvegi á svæðinu misstu að sögn vinnuna í kjölfar hneykslisins. Starfsmennirnir halda því einnig fram að atvinnumissir þeirra hafi leitt til margvíslegs viðbótarskaða, svo sem óöryggis um fæði og húsnæði, sálræns álags, vanhæfni til að greiða skólagjöld og skuldasöfnunar.“ Hópurinn starfaði annars vegar fyrir sjávarútvegsfyrirtæki sem misstu kvóta og hins vegar fyrir Samherja sem hætti starfsemi í Namibíu skyndilega, samkvæmt frétt Rúv. Þeir fara fram á að íslensk yfirvöld viðurkenni þá sem fórnarlömb og taki þá með í sakamálarannsókn. Samherji er sakaður um að hafa framið mútubrot, peningaþvætti og auðgunarbrot í Namibíu. Rannsókn héraðssaksóknara á málinu lauk í júlí síðasta sumar og hefur enn ekki verið tekin ákvörðun um hvort ákært verði í málinu eður ei. Níu, ýmist fyrrverandi eða núverandi starfsmenn Samherja, eru með réttarstöðu sakbornings í málinu. „Með því að styðja þessar kröfur á Íslandi gerum við mannlega kostnaðinn af spillingu ómögulegan að hunsa. Við erum einnig að hjálpa til við að tryggja að þessir starfsmenn – fólkið á vettvangi sem missti lífsviðurværi sitt og meira til – fái sinn dag fyrir dómi og tækifæri til að leita réttar síns, þar á meðal formlega viðurkenningu á þeim skaða sem það varð fyrir og fjárhagslegar bætur,“ er haft eftir Alison Matthews, lögfræði- og hagsmunaráðgjafa hjá Transparancy International í Berlín.
Samherjaskjölin Namibía Dómsmál Sjávarútvegur Mest lesið Draumur Demókrata að rætast Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Innlent Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli Innlent Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Innlent Bein útsending: Tölur berast frá kjörstöðum vestanhafs Erlent Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Innlent Þrír handteknir fyrir rán Innlent Fleiri fréttir Miðflokkurinn bætir við sig fylgi Skoða fæðingarorlofsmálin Dragi uppsagnirnar til baka Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Þrír handteknir fyrir rán Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk „Fræða en ekki hræða“ „Það er öllum ljóst að hann hefur frekar verið þeirra megin“ Fullyrða að Daði Már hafi logið að þinginu „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Kosningar í Bandaríkjunum og utanríkisráðherra ræðir Rússa Skipaður formaður 6. áfanga rammaáætlunar Reikna með þrettán milljarða afgangi á næsta ári Fluttur með björgunarskipi þegar þyrlan gat ekki lent vegna þoku Kynntu fjárhagsáætlun borgarinnar Kolbeinsey lifir enn þrátt fyrir spádóma um annað Játaði að hafa makað saur á hurðarhúna Kynntu verkefnið Verum viðbúin „Ekki bíða eftir fyrsta snjónum“ Rússar hnýta í Þorgerði Katrínu vegna ummæla um skrif Heimis Más Fjögurra bíla árekstur við N1 í Ártúnsbrekku „Ég neita að leyfa fæðingarorlofssjóði að stjórna mínu lífi“ Líkamsárás í miðbænum Sjá meira